Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Side 12
24 - Laugardagur 21. júní 1997
'iiucvgm.- \i>w inm
|Dagur-®TOttmt
Meira um hrísgrión
Það eru engin
ákveðin lögmál sem
fylgja því að sjóða
hrísgrjón en það er
alltaf gott aðfá ráð
til að hrísgrjónin
verði ennþá betri.
Eitt af þeim ráðum er
hversu mikið af grjónum
þarf á hvern einstakiing.
Áætlað er að einstaklingur þurfi
80-100 grömm ef hrísgrjón eru
uppistaðan í
máltíðinni, að
liann þurfi 50-
60 grömm ef
þau eru borðuð
sem meðlæti
með öðrum
mat og reiknað
er með 30
grömmum á mann ef þau eru
sett í súpu.
Einfaldasta notkunin á hrís-
grjónum er að borða þau soðin.
Aðferðirnar eru þó nokkrar við
vatnið er soðið
að sjóða hrísgrjón. Einfaldast er
að sjóða þau í miklu vatni,
a.m.k. helmingi meira vatni en
notað er af
grjónum, setja
salt, sjóða þau
við háan hita í
nokkrar mínút-
ur en síðan
lækka hitann
og setja lokið á
pottinn og
sjóða þau
þannig þar til
upp.
Með því að nota þessa suðu
þá eru grjónin einnig góð til
steikingar með
grænmeti eða
einhverju góðu
meðlæti.
Sérstök
grautargrjón,
styttri og feitari
en þau venju-
legu, eru gjarn-
an notuð í sæta
grauta og hrísgrjónarétti. Yfir-
leitt eru þau soðin í mjólk þar
til þau eru orðin vel mjúk undir
tönn og saft eða einhverjum
safa blandað saman við.
Þegar grautargrjón eru soðin
í mjólk er suðutíminn um 40
mínútur. Hýðis-
hrísgrjón þurfa
venjulega að
sjóða í 35 til 40
mínútur. Hvít
hrísgrjón í 20
til 25 mfnútur
til að vatnið
sjóði upp af
þeim.
Best er að geyma ósoðin
hrísgrjón á köldum, þurrum og
dimmum stað.
Hægt er að frysta soðin hrís-
grjón í góðri plastdollu ef hún
er vel lokuð.
Auðvelt er að gera dagsgöm-
ul grjón sem ný með því að
setja vatn saman við þau og
hita í örbylgjuofni eða potti.
Gott er að steikja afganga af
hrísgrjónum í ólívuolíu á pönnu
með góðu grænmeti og soya-
sósu.
7VÍ iitíirkrókm
að er Bryndís Hákonar-
dóttir í Reykjavík sem
leggur til uppskriftir í
matarkrókinn að þessu sinni
en Una Jóna Sigurðardóttir
skoraði á hana í síðustu 'viku.
Bryndís býður upp á kjúk-
lingarétt, rækjupasta og rice
crispies marengstertu sem til-
valið er að prófa um helgina.
Það er Hildur Nanna Jónsdótt-
ir í Keflavík sem kemur í
næsta matarkrók að beiðni
Bryndísar.
Kjúklingaréttur
1 stór kjúklingur, kryddaður
með season all, hvítlaukssalti
og svörtum pipar
500 g spergilkál
maribo ostur
Sósa:
1 dós sveppasúpa, Campbells
4 msk. majones
2 tsk. karrý (gott að nota
Rajah)
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. kjötkraftur
Kjúklingurinn er kryddaður
og grillaður í ofni. Spergilkálið
er soðið og sósan löguð á með-
an. Þegar kjúklingurinn er til-
búinn er kjötið af honum skorið
í bita og sett í eldfast mót,
spergilkálið sett yfir, sósan þar
á eftir og að lokum osturinn.
Rétturinn er bakaður 200°C
heitum ofni og borinn fram með
brauði og grænsalati.
Rœkjupasta
Pastaskrúfur eða slaufur
púrrulaukur
1 grœn paprika
1 rauð paprika
10 meðalstórir sveppir
2 hvítlauksrif smátt söxuð
250 g rœkjur
200 g rjómaostur, með krydd-
blöndu
/ peli rjómi
Pastað er soðið, grænmetið
skorið niður og steikt í olíu á
pönnu. Það er síðan kryddað
eftir smekk, rjómaostinum og
rjómanum blandað saman við
og suðan látin koma upp. Þá
eru rækjurnar settar út í sós-
una, suðan aftur látin koma
upp og pastað sett að lokum út í
hana líka. Gott með hvítlauks-
brauði.
Rice crispies
marengsterta
Botnar:
4 eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk. lyftiduft
2 bollar rice crispies
Eggjahvíturnar stífþeyttar,
sykri og lyftidufti bætt út í
smám saman og að lokum er
rice crispie handhrært saman
við. Sett í tvö lausbotna form
með smjörpappír og botnarnir
bakaðir við 150-170°C hita í
u.þ.b. 40 mínútur.
1 peii rjómi, þeyttur, og 2
græn epli afhýdd og smátt skor-
in. Sett á milli botnanna.
Krem ofan á kökuna:
4 eggjarauður
60 g flórsykur, sigtaður
100 g Ijóst súkkulaði, brœtt
saman við 50 g af smjöri.
Eggjarauðurnar eru stíf-
þeyttar og flórsykurinn settur
saman við í litlum skömmtum.
Súkkulaðibráðin fer því næst út
í og allt saman er þetta hrært
þar til kremið hefur kólnað. Þá
sett ofan á kökuna.
uðtið ovnum listmummenlun
og 'fjursta vísi að húvéíasafm
kí. 14 sunnuðaainn 22. júnt.
Sýning á lokaverkefni Sveinu Bjarkar Jóhannsdóttur textilhönnuðar.
Jóna Fanney Svavarsdóttir syngur nokkur lög við opnunina.
Kaffisala frá kl. 14-18.
Tónleikar Jónu Fanneyjar Svavarsdóttur kl. 21 sama dag.
Fjölbreytt söngskrá eftir innlenda og erlenda höfunda.
Undirleikari Helga Bryndís Magnúsdóttir.
* *
Ferðaþjónustan Ongulsstöðum III
býður upp á gistingu í herbergjum
með baði og í þriggja herbergja fbúð
fyrir allt að 40 manns.
Fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar
í nágrenninu.
Eyjafjarðarsveit • Sími 463 1380 • Fax 463 1390.