Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Síða 13

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Síða 13
C_7 ' Laugardagur 21. maí 1997 - 25 Hrísgijón meö ávöxtum og karrý 200 g basmati hrísgrjón soðin í 400 ml af vatni 50 g smjör 500 g svína- eða kjúklingakjöt 2 mandarínur eða 2 grœn epli 1 dós ananasbitar 1 laukur 100 g kókosmjólk karrý, gott að nota austur landakarrý salt og pipar 1. Hrísgrjónin eru soðin í 20 mínútur. 2. Kjötið skorið í bita, steikt á pönnu og brúnað, kryddað með salti og pipar og laukur- inn brytjaður og steiktur með. 3. Mandarínurnar eða eplin sett saman við og aðeins lát- ið malla. Ananas bætt út í, þar á eftir hrísgrjónunum og kryddað með karrýinu og kókosmjólkinni hellt yfír. Lát- ið malla í 15 mínútur. Mexíkóskur hrísgijónapottur 200 g jasmín hrísgrjón 400 g vel kryddað kjúklinga- soð 125 g beikon 2 laukar 2 hvítlauksrif 8 tómatar 3 tsk. ólívuolía 4 egg 4 tsk. sýrður rjómi 4 roast beef sneiðar salt, svartur pipar, chillipipar 1. Sjóða hrísgrjónin. 2. Skera lauk, hvítlauk og beikon í bita. Skera tómatana í báta. Steikt saman í beikonfeit- inni. Kryddað með cliillipiparn- um og hrísgrjónunum bætt saman við. Sett í góða skál eða á pönnu. 3. Eggin hrærð með sýrða rjómanum, kryddað með salti og pipar og hellt yfir hrísgi'jón- in. Þarna þarf að hita blönduna örlítið til að vökvinn fari saman við grjónin. 4. Roast beef sneiðunum rúllað upp og settar ofan á. 5. Gott að bera fram með réttinum salat og brauð. • • Oðruvísi eftirréttnr með hrísgijómm 200 g grautargrjón 500 g mjólk örlítið salt safi og börkur úr hálfri sítrónu 65 g smjör 2 bananar 3 egg 150 g sykur 250 g mascarpone rjómaostur nokkur kirsuber 1. Hrísgrjónin eru soðin í mjólkinni sem er söltuð og sítrónubörkurinn settur saman við. Soðin í 30 mínút- ur. 2. Bananarnir skornir í kross, settir í eldfast mót og sí- trónusafanum hellt yfir þá. 3. Eggjahvítur úr 3 eggjum hrærðar ásamt nokkrum dropum úr sítrónunni og ör- litlu salti þar til þær verða stífar. 100 g af sykrinum bætt út í. 4. Eggjarauður og ostur hrært saman, þeirri blöndu ásamt hrísgrjónunum bætt í hvít- urnar en einunigs lítið magn í einu. Helmingnum af þeirri blöndu helt yfir bananana. 5. Berin eru skorin í bita og hellt yfir blönduna ásamt safanum úr þeim. Síðan er afgangurinn af blöndunni settur ofan á berin. Brætt smjör smurt lauslega ofan á allt og bakað í ofni á 200°C í 45 mínútur. 6. Hægt er að taka safann af berjunum, þykkja hann með vatni og kartöflumjöli, krydda með kanil og vanillu og bera fram með réttinum. \ 1 1 \l J J f J helgina 21.-22. júní H Aodi Reynsluakstur Opið: Laugardag kl. 12-17 og sunnudag kl. 13-17 IHI Möldurehf. HEKLA Tryggvabraut 22 • Sími 461 3000 ■ Akureyri

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.