Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Side 4
4 - Laugardagur 26. júlí 1997 IDagur-Htmirax F R E T T I R Tölvur 2000 vandamál Nýútkomin skýrsla ríkisendurskoðunar um ártalið 2000 segir rekstraröryggi fjöl- margra stofnanna geta verið í hættu verði ekki brugðist við vandanum sem fyrst. s t er kominn skýrsla ríkis- endurskoðunar um ártal- ið 2000 og endurskoðun upplýsingakerfa en fyrirsjáan- legt er að ýmis vandamál munu koma upp þegar nota þarf ár- talið 2000 í tölvuvinnslu. í skýrslunni segir að vandamálið sé ekki eingöngu bundið við stórtölvur heldur sé þetta þekkt vandamál í mörgum nýrri teg- undum tölvuumhverfa. Vanda- máhð er heldur ekki bundið við hugbúnaðarkerfi sem skrifuð hafa verið fyrir einstakar stofn- anir. Það nær og tU almenns notendahugbúnaðar, kerfishug- búnaðar og vélbúnaðar. Þá er í þeim kerfum sem vinna með dagsetningar fram í tímann ekki nægUegt að búið sé að leysa þetta vandamál 31. desember 1999 heldur er loka- fresturinn í sumum tilvikum 31. desember 1998 eða jafnvel fyrr. Þetta vandamál er ekki bundið við upplýsingakerfi, það nær og til annarra kerfa sem byggja á tölvum, svo sem símkerfa, sjálf- stýringa ýmiss konar og jafnvel tölvuúra. Vandamál tengd hug- búnaði eru tvenns konar: Ann- ars vegar viðurkennir hugbún- aður „00“ ekki sem ártal og hins vegar, þegar reikna þarf út tíma mUli tveggja dagsetninga, þar sem annað ártalið er t.d. 1997 og hitt 2011, verður nið- urstaðan ekki 14 heldur 86 ár. Ástæðan er sú að hugbúnaður- inn vinnur aðeins með tvo stafi sem ártal þ.e. 97 og 11. Rekstraröryggi í hættu Þá segir í skýrslu rUdsend- urskoðunnar að vandamálið virðist einfalt úrlausnar í fyrstu þar sem hér er ekki um tækni- legt vandamál að ræða heldur lýtur það einungis að fram- kvæmd, þ.e. með hvaða hætti forritarar hafa hagað vinnu sinni. En ef ekki er brugðist við í tíma, getur rekstraröryggi þeirra stofnanna sem byggja starfsemi sína á slíkum kerfum verið í hættu. Hið raunverulega vandamál felst í því hve tölvu- vinnsla er orðin umfangsmikil. Afleiðingar þess að leiðrétting- um á upplýsingakerfum ríkisins verði ekki lokið fyrir árið 2000 geta verið allt frá því að valda smávægis óþægindum til þess að upplýsingakerfin verði ónot- Ekki auravonin ein sem ræður Endurvinnsla Forritarar verða að hafa snör handtök ef ekki eiga að hljótast af veruleg vandræði í tölvukerfum árið 2000. hæf. Einnig getur þetta valdið því að niðurstöður úr tölvukerf- um séu óáreiðanlegar eða ónot- hæfar og því óendurskoðunar- hæfar og vera kann að endur- vinna þurfi mikið magn upplýs- inga eftir öðrum leiðum. Talið er að vandamálið á heimsvísu komi til með að verða dýrasta vandamálið í sögu mannkyns. rm Nýr og fullkominn miöstöðvarketill fró CTC ♦ Allt að 25% sparnaður frá eldri gerðum (m.v. olíu). ♦ Oflug álagsstýring á rafmagni. ♦ Skiptir sjálfvirkt á milli olíu og rafmagns. ♦ Varmaskiptir fyrir neysluvatn. ♦ Stillanlegt hitastig á miðstöðvarvatni óháð hita ketils- ins (sparar mikla orku). ♦ Þægilegur í uppsetningu, er á stærð við þvottavél. Ennfremur mikið úrval af hitadunkum á lager. CTC Regent Fjölnota miðstöðvarketill fyrir rafmagn, olíu og viðarbrennslu Okkar mat: Frábær miðstöðvarketill. Hentar öllum heimilum þar sem orka, sparnaður og rekstraröryggi þurfa að fara saman. Flmm fælrl I einu! 1. Kraftmiklar rafmagnstúpur. Rafmagnsketill 2. Brennsluhólf fyrir olíubruna. Olíuketill 3. Brennsluhólf fyrir við eða kol. Viöarketill 4. InnbyggSur neysluvatnskútur. Neysluvatnskútur 5. Álagsstýring. Sparar orkukaup Ljósgjafinn hf. Alls 1.560 tonn af plasti og áli úr umbúðum öls og gosdrykkja flutt út árlega. Skil íslendinga á öl- og gos- drykkjaumbúðum til end- urvinnslu er hlutfallslega með því hæsta sem þekkist í heiminum, að sögn umhverfis- ráðherra. Og þar virðist langt í frá auravonin ein sem þessu ræður, ef marka má þúsunda tonna skil á gömlum dagblöð- um í gáma. Um 85% allra öl- og gosum- búða skilaði sér í fyrra. Endur- vinnslan tók við um 3.500 tonn- um (rúmum 50 kg. á fjölskyldu) af plast-, ál- og glerumbúðum á ári. Um 1.130 tonn af plasti og 430 tonn af áli úr þessum um- búðum eru flutt út árlega og seld erlendum endurvinnslufyr- irtækjum. Greiðslur eru greinilega ekki eina ástæðan fyrir þessari skilasemi landsmanna. Því landsmenn skiluðu 3.000 tonn- um af dagblöðum til endur- vinnslu í gáma á síðasta ári, án þess að fólk fengi nokkra aðra umbun fyrir en að leggja sitt af mörkum til umhverfisverndar. Þetta svarar til 40-45% af öllum þeim dagblaðapappír sem fiutt- ur er til landsins. Skil á dag- blaðapappír halda áfram að aukast jafnt og þétt og voru um íjórðungi meiri á fyrri hluta þessa árs en í fyrra. Skil á pappafernum til end- urvinnslu virðast stefna í sömu átt, en móttaka á fernum hófst fyrst í fyrra. Um 45 tonn af fernum var skilað á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. - HEI Norðurland vestra Skorað á stjómvöld Héraðsráð Skagfirðinga Qallaði um vanda lands- byggðarsjúkrahúsanna á fundi sínum nýlega og sam- þykkti þá eftirfarandi ályktun: „Að undanförnu hefur mikið verið rætt um góðæri í þjóðar- búskap íslendinga og lýsti for- sætisráðherra þeirri skoðun sinni í fréttum nú nýlega, að það svigrúm sem nú skapist, verið nýtt til að styrkja heil- brigðis- og menntakerfi lands- manna. í ljósi þessa skorar Héraðsráð Skagfirðinga á stjórnvöld að hætta við áform um 160 milljóna króna niður- skurð á ijárveitingum til lands- byggðarsjúkrahúsa á næstu þremur árum.“

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.