Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Síða 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Síða 12
iDHgur-ÍDtmtmt Laugardagur 26. júlí 1997 KNATTSPYRNA • EM 18 Úr leik Islands gegn Spánverjum í fyrrakvöld. Góð frammi- staða íslands Islensku strákarnir stóðu sig frábærlega í baráttunni við Spánverja á Laugar- dalsvellinum í fyrrakvöld. Þeir afsönnuðu allar hrakspár um ófarir og náðu verðskulduðu 1-1 jafntefli með marki eina atvinnumannsins í liðinu, Bjarna Guðjónssonar hjá Newcastle. Okkar strákar sýndu mót- herjum sínum á stundum full mikla virðingu og bökkuðu um of en sýndu góða baráttu, þó enginn meiri en Árni Ingi Pét- ursson sem var besti maður ís- lenska Uðsrns. Mark Spánverja var heppnismark. Menn geta ekki reiknað með því að fá stoð- sendingu frá markmanni á hverjmn degi en það nýttu Spánverjarnir sér 100%. Þetta voru einu mistök markmanns- ins og varnarmannanna, sem hefðu getað komið í veg fyrir markið. Þjálfari liðsins, Guðni Kjart- ansson, var ánægður með strákana eftir leikinn. „Ætlun- arverkið var að vinna, en það er raunhæft með skynsamleg- rnn leik. En þetta er líka mjög gott“. Austramaðurinn, Stefán Gíslason frá Eskiíirði, var einnig ánægður með frammi- stöðuna. „Þetta var alveg frá- bært. Góð barátta, góð liðsheild og allt sem þurfti", sagði ánægður Eskfirðingurinn. Næst mætir ísland Portúgal, sem talið er vera sterkasta liðið í keppninni. Leikurinn fer fram á Skaganum og hefst kl. 16:00 AUir á völlinn! Mótið heldur áfram í dag. B - RIÐILL kl 14:00 KR-völIur Ísrael-Frakkland kl 14:00 Fjölnisv. Sviss-írland A - RIÐILL kl 14:00 Kaplakriki Spánn-Ungverjal. kl 16:00 Akranesv. Ísland-Portúgal GBÆNTTNÚMER: 800 70 80 |Dag«r-®tmmn -besti tími dagsins! PARADISO 4 manna hústjald. 28 kg. VERÐ: 39.900,- TILBOÐ ÆGIR 5 manna tjald og fleygahiminn. 2í>kg. VERÐ: 48.000,- TT SAVANNA IOO 3 manna tjald. 3,5 kg. VERÐ: 8.900,- I DAKOTA 400 4 manna tjald. 4,8 kg. VERÐ: 17.980,- CERÐIRAF TJÖLDUM HÚSTJÖLD KÚLUTJÖLD BRACCATJÖLD A-TJÓLD JÖKLATJÖLD SAMKOMUTJÖLD ALPHA \ 2 manna göngutjald. 3,2 kg. i VERÐ: 34.800,- Eitt vandaðasta göngu- og fialla- íjzkiið á markaðnum. teð hcfur reynst frábasHega við (slenskar a&taeðuri SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLÓÐ 7 107 REYKJAVÍK Sími 511 2200 Af Hirerju ekki? Veistu hver er hafnarstjóri á Akureyri, byggingarfulltrúi á Dalvík, slökkviliðsstjóri á Ólafsfirði eða. Af hverju kíkirðu ekki í Gulu bókina? Bláu síðurnar koma þér skemmtilega á óvart. Gula bókin sími 520 2000

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.