Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Side 6
18 - Laugardagur 6. september 1997
iDitgur-CÍIímmri
LIFIÐ I LANDINU
Miklar breytingar eru (gangi í Vaxtarræktinni. Verið er að koma upp bættri búningsaðstöðu, sér spinningsal, setustofu og nýjum tækjum. Vaxtarræktin mun verða ein best
búna líkamsræktarstöð á landinu. Myn&. gs
Þekkíngin þarf
nýtast fjöldanum
að
Sigurður Gestsson á
og rekur Vaxtar-
ræktina á Akureyri
ásamt eiginkonu
sinni, Höllu Stefáns-
dóttur. Hann er bú-
inn að vera lengi í
bransanum og er
hvergi banginn við
aukna samkeppni
sem blasir við í
vetur.
að er rosalega langt síðan
hann fékk áhuga á vaxtar-
rækt. Hann var keppnis-
maður á skíðum en ákvað að
snúa sér að vaxtarræktinni þeg-
ar hann fann að hann var ekki
nógu góður. Metnaðurinn var til
staðar og þá var ekkert til fyrir- •
stöðu.
Vaxtarræktin hentaði
vei
Hvers vegna vaxtarrœkt?
„Hún heillaði mig. Ég var bú-
inn að kynna mér hana í erlend-
um blöðum og stúdera í bak og
fyrir. Ég hafði verið að lyfta á
sumrin í tengslum við skíðin svo
ég kom ekki alveg hrár inn í
þetta þegar ég byrjaði."
Varstu alltaf ákveðinn í því
að keppa í greininni?
„Það kom af sjálfu sér. Menn
eru náttúrulega misvel gerðir td
að stunda vaxtarrækt en hún
hentaði mér. Ég er líka þannig
að þegar tek mér eitthvað fyrir
hendur þá geri ég það með því-
líkum látum að ekki þýðir annað
en að fara alla leið. Ég vann all-
ar keppnir í mínum flokki frá
fyrsta móti, átta sinnum í röð,
og ijórum sinnum heildarkeppn-
ina.“
Hvenœr hœttirðu keppni?
„Ég er ekki hættur. Ég er
bara ekki að keppa núna. Viður-
kenni ekki að ég sé hættur. Þoli
ekki þá tilíinningu. Það er bara
þannig að ég hef ekki tíma tU að
æfa eins og ég þyrfti ætlaði ég
mér að keppa. Vinnudagurinn
er langur hjá mér og við það fer
þessi neisti sem ég þarf á að
halda tU að geta æft af krafti. Ég
þyrfti sex til tólf mánuði tíl að
verða bestur aftur. Veit nám-
kvæmlega hvað ég þyrfti að
ganga í gegnum og væri til í það.
Ég lifí aUtaf í voninni um meiri
tíma fyrir sjálfan mig og betri
tíð.“
Hvað fœrðu út úr því að
standa á sviði og hnikla vöðv-
ana?
„Ekkert annað en það að
uppskera fyrir erfiðar æfingar
og fá sönnun á því að ég væri
ennþá í fremstu röð.“
Mér líst ágœtlega á
aukna samkeppni
en við munum
halda okkar sér-
stóðu. Við hóldum
áfram að sinna
þeim sem við hóf-
um gert.
Var þörf á
líkamsræktarstöð
Hvernig datt þér í hug að stofna
líkamsrœktarstöð?
„Það var óvart. Á Akureyri
var engin stöð en mildl þörf fyrir
eina slíka. Mér fannst því eina
ráðið að setja hana upp. Ég er
lærður rennismiður og gat smíð-
að mörg tækjanna sjálfur en
þetta þróaðist í atvinnurekstur
fyrir sex árum síðan. Ég er þó
ennþá í smíðinni því ég á h'tið
verkstæði þar sem ég smíða lík-
amsræktartæki fyrir sjálfan mig
og aðra. Ég hef bara svo lítinn
tíma til þess. Það fer mildU tími í
að hanna tækin og teikna og
þess vegna er oft ódýrara fyrir
mig að kaupa þau, ef þau eru til
það er að segja. Það er nefnilega
svo mikið af tækjum á markaðn-
um sem hafa ekki nógu góða
virkni og eru ekki með góða
hreyfiferla. Ég get lagað það ef
ég geri þetta sjálfur."
Alltaf verið á undan
Líkamsrœkt hefur alltaf verið
vinsœl á Akureyri, hvernig
stendur á því?
„Nú verð ég að vera ánægður
með mig og mína félaga eins og
Einar Guðmann og Gísla Rafns-
son, svo og Eddu Hermannsdótt-
ur og Helgu Alice heitina. Það
hafa margir unnið hér góða
hluti og komið þeim í gang.
Standardinn hér varð strax
mjög góður og í sambandi við
alla tækjaþjálfun þá vorum við
einfaldlega á imdan því mörg
olckar komu úr keppnisgeiran-
um. Þar þurftum við að fylgjast
mjög vel með tU að ná árangri
og þeirri þekkingu beittum við
þegar við byrjuðum."
Hefurðu fundið fyrir saman-
burði við stóru stöðvarnar í
Reykjavík?
„Já, það er aUtaf eitthvað um
hann. Við erum ekkert að hugsa
um það því við höfum ekki átt í
samkeppni við þær fyrr en nú.
Við fórum ekki út í þennan
rekstur í upphafi tU þess að
græða sem mesta peninga. Það
var hugsjónin ein sem réði. Það
eru aðrir tímar í dag og við
verðum að reka okkar fyrirtæki
vel og gerum það. En hugsjónin
lifir enn. Við viljum sinna öUum
og erum með nánast allt íþrótta-
fólk í bænum. Einfaldlega því við
getum boðið þeim þessa aðstöðu
og mikla þekldngu fyrir lág
gjöld.“
Að mínu mati
munum við koma
til með að standa
framar en aðrir.
Höldum okkar
sérstöðu
Hvernig lýst þér á aukna sam-
keppni frá nýjum stöðvum sem
eru að skjóta upp kollinum?
„Mér líst ágætlega á hana en
við munum halda okkar sér-
stöðu. Við höldum áfram að
sinna þeim sem við höfum gert
eingöngu vegna áhugans, þ.e.
keppnisfólkinu, en við þurfum
líka að standa okkur á sama
vettvangi og aðrar stöðvar. Að
mínu mati munum við koma tU
með að standa framar en aðrir.