Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Page 6
18 - Laugardagur 6. september 1997 iDitgur-CÍIímmri LIFIÐ I LANDINU Miklar breytingar eru (gangi í Vaxtarræktinni. Verið er að koma upp bættri búningsaðstöðu, sér spinningsal, setustofu og nýjum tækjum. Vaxtarræktin mun verða ein best búna líkamsræktarstöð á landinu. Myn&. gs Þekkíngin þarf nýtast fjöldanum að Sigurður Gestsson á og rekur Vaxtar- ræktina á Akureyri ásamt eiginkonu sinni, Höllu Stefáns- dóttur. Hann er bú- inn að vera lengi í bransanum og er hvergi banginn við aukna samkeppni sem blasir við í vetur. að er rosalega langt síðan hann fékk áhuga á vaxtar- rækt. Hann var keppnis- maður á skíðum en ákvað að snúa sér að vaxtarræktinni þeg- ar hann fann að hann var ekki nógu góður. Metnaðurinn var til staðar og þá var ekkert til fyrir- • stöðu. Vaxtarræktin hentaði vei Hvers vegna vaxtarrœkt? „Hún heillaði mig. Ég var bú- inn að kynna mér hana í erlend- um blöðum og stúdera í bak og fyrir. Ég hafði verið að lyfta á sumrin í tengslum við skíðin svo ég kom ekki alveg hrár inn í þetta þegar ég byrjaði." Varstu alltaf ákveðinn í því að keppa í greininni? „Það kom af sjálfu sér. Menn eru náttúrulega misvel gerðir td að stunda vaxtarrækt en hún hentaði mér. Ég er líka þannig að þegar tek mér eitthvað fyrir hendur þá geri ég það með því- líkum látum að ekki þýðir annað en að fara alla leið. Ég vann all- ar keppnir í mínum flokki frá fyrsta móti, átta sinnum í röð, og ijórum sinnum heildarkeppn- ina.“ Hvenœr hœttirðu keppni? „Ég er ekki hættur. Ég er bara ekki að keppa núna. Viður- kenni ekki að ég sé hættur. Þoli ekki þá tilíinningu. Það er bara þannig að ég hef ekki tíma tU að æfa eins og ég þyrfti ætlaði ég mér að keppa. Vinnudagurinn er langur hjá mér og við það fer þessi neisti sem ég þarf á að halda tU að geta æft af krafti. Ég þyrfti sex til tólf mánuði tíl að verða bestur aftur. Veit nám- kvæmlega hvað ég þyrfti að ganga í gegnum og væri til í það. Ég lifí aUtaf í voninni um meiri tíma fyrir sjálfan mig og betri tíð.“ Hvað fœrðu út úr því að standa á sviði og hnikla vöðv- ana? „Ekkert annað en það að uppskera fyrir erfiðar æfingar og fá sönnun á því að ég væri ennþá í fremstu röð.“ Mér líst ágœtlega á aukna samkeppni en við munum halda okkar sér- stóðu. Við hóldum áfram að sinna þeim sem við hóf- um gert. Var þörf á líkamsræktarstöð Hvernig datt þér í hug að stofna líkamsrœktarstöð? „Það var óvart. Á Akureyri var engin stöð en mildl þörf fyrir eina slíka. Mér fannst því eina ráðið að setja hana upp. Ég er lærður rennismiður og gat smíð- að mörg tækjanna sjálfur en þetta þróaðist í atvinnurekstur fyrir sex árum síðan. Ég er þó ennþá í smíðinni því ég á h'tið verkstæði þar sem ég smíða lík- amsræktartæki fyrir sjálfan mig og aðra. Ég hef bara svo lítinn tíma til þess. Það fer mildU tími í að hanna tækin og teikna og þess vegna er oft ódýrara fyrir mig að kaupa þau, ef þau eru til það er að segja. Það er nefnilega svo mikið af tækjum á markaðn- um sem hafa ekki nógu góða virkni og eru ekki með góða hreyfiferla. Ég get lagað það ef ég geri þetta sjálfur." Alltaf verið á undan Líkamsrœkt hefur alltaf verið vinsœl á Akureyri, hvernig stendur á því? „Nú verð ég að vera ánægður með mig og mína félaga eins og Einar Guðmann og Gísla Rafns- son, svo og Eddu Hermannsdótt- ur og Helgu Alice heitina. Það hafa margir unnið hér góða hluti og komið þeim í gang. Standardinn hér varð strax mjög góður og í sambandi við alla tækjaþjálfun þá vorum við einfaldlega á imdan því mörg olckar komu úr keppnisgeiran- um. Þar þurftum við að fylgjast mjög vel með tU að ná árangri og þeirri þekkingu beittum við þegar við byrjuðum." Hefurðu fundið fyrir saman- burði við stóru stöðvarnar í Reykjavík? „Já, það er aUtaf eitthvað um hann. Við erum ekkert að hugsa um það því við höfum ekki átt í samkeppni við þær fyrr en nú. Við fórum ekki út í þennan rekstur í upphafi tU þess að græða sem mesta peninga. Það var hugsjónin ein sem réði. Það eru aðrir tímar í dag og við verðum að reka okkar fyrirtæki vel og gerum það. En hugsjónin lifir enn. Við viljum sinna öUum og erum með nánast allt íþrótta- fólk í bænum. Einfaldlega því við getum boðið þeim þessa aðstöðu og mikla þekldngu fyrir lág gjöld.“ Að mínu mati munum við koma til með að standa framar en aðrir. Höldum okkar sérstöðu Hvernig lýst þér á aukna sam- keppni frá nýjum stöðvum sem eru að skjóta upp kollinum? „Mér líst ágætlega á hana en við munum halda okkar sér- stöðu. Við höldum áfram að sinna þeim sem við höfum gert eingöngu vegna áhugans, þ.e. keppnisfólkinu, en við þurfum líka að standa okkur á sama vettvangi og aðrar stöðvar. Að mínu mati munum við koma tU með að standa framar en aðrir.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.