Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Page 7
JBagur-'CÍItmrrat Laugardagur 6. september 1997 -19 Golds Gym California. Sigurður æfði þar sumarið 1982. „Ég er rosalega hallærislegur þarna.“ Ég er með mjög hæft starfsfólk, hér er góður andi, og ég held að með það í farteskinu þá þurfum við ekkert að óttast. Erum helm- ingi stærri en hinar stöðvarnar sem eru á Akureyri. En við er- um ekki eingöngu að tala um samkeppni frá þessum stöðvum því hér eru sterkir aðilar fyrir ein og Bjarg. Ágústa og Hrafn eru ekki viðbót á markaðinn því þau yíirtaka aðeins rekstur sem var hér fyrir. En World Class er ný stöð og ég óttast þá ekki neitt því ég hef alltaf þrifíst best í mikilli samkeppni þar sem ég þarf að treysta á sjálfan mig.“ Hví sœkja þessar stöðvar hingað? „Ég veit það satt að segja ekki. Ætli það sé ekki inn að vera á Akureyri. Ekki er mark- aðurinn það stór ef verið er að hugsa um hann. Höfuðborgar- svæðið er tíu sinnum stærra markaðssvæði sem þýðir að um fjörtíu öflugar æfingastöðvar ættu að vera þar miðað við ijór- ar á Akureyri. Ég hefði haldið að það væri miklu gáfulegra fyrir World Class að fara upp í Breið- holt en til Akureyrar. En þau sjá kannski einhvern annan ílöt á þessu en ég.“ Ýmis gylliboð í gangi Hver finnst þér vera aðal mun- urinn á líkamsrœkt í dag og var þegar þú byrjaðir? „Þessi lögmál að byggja upp líkamann og brenna fitu hefur h'tið breyst. Það hafa helst verið færðar sönnur á ýmislegt sem maðrn- var ekki alveg viss um. Þekking á næringarfræðinni er meiri og æfingatæknin hefur batnað. í grundvallaratriðum er búið að gera hkamsræktina að- gengilegri fyrir almenning. Þol- Ég hef alltaf þrifist best í mikilli sam- keppni þar sem ég þarfað treysta d sjdlfan mig. fimi, pallar og nú spinning er í rauninni hluti af því að koma fram með fjölbreytni í líkams- þjálfuninni. Að vísu virðist spinningið ekki ætla að verða tískubóla. Það er eingöngu góð viðbót við þessa flóru." Er það nýjasta í líkamsrœkt- inni alltaf það besta? „Nei, alls ekki. Það þarf bara að fá tilbreytingu í hlutina. Það er margt að gerast sem í sjálfu sér mætti sleppa. En öll fjöl- breytni er góð og skilyrði fyrir því að stunda hkamsrækt er að hafa gaman af henni. Það er þó líka margt gert til að hún seljist betur. Ýmis gylliboð eru í gangi, t.d. öll þessi fitubrennslunám- skeið. Það nafn selst vel þó svo flestir sem æfa líkamsrækt séu í bullandi fitubrennslu. Fitumæl- ingar eru líka vinsælar í dag en þær eru oft gróflega misnotaðar og fólk veit ekki út á hvað þær ganga. Það fer á námskeið, er fitumælt í upphafi þess og enda. Fituprósentan hefur kannski falhð um 15% en kílóin hafa htið fækkað. Sumar stöðvarnar beita þá þeirri taktík að segja að fólk hafi breyst mikið, fita sé farin og vöðvar komnir í staðinn. Það gerist hins vegar rosalega hægt hjá konu í leikfimi að safna einhverjum vöðvum. Þegar fólk kemur og er kannski íjörtíu kíló- um yfir kjörþyngd þá skiptir ekki nokkru máli hvað fitupró- sentan segir, það bara verður að léttast. Það er ekki gott að vera að búa til einhvern svona blekk- ingarvef. Þetta er engin árás á aðrar stöðvar mér bara leiðist þegar svona hlutir eru notaðir. Og sem dæmi uin hluti sem ég þoli afar illa er þegar Gaui litli kemur og segir að galdurinn bak við sinn árangur sé eitthvert fat-burner efni. Þessi efni eru það sem minnstu máh skiptir þegar fólk er þetta þungt. Þar er númer eitt rétt mataræði og hreyfing sem hefur eitthvað að segja. Fólk sem er of þungt ríkur auðvitað til og kaupir en ekkert gerist." Menntun af hinu góða Telurðu þig sjálfmenntaðan í þessum geira? „Það er erfitt að svara því þar sem enginn skóh kennir þetta fag, ef hægt er að tala um það. Til þess að ná árangri í líkams- rækt þá verður maður að lesa og pæla endalaust. Það er auð- vitað fólk sem veit meira en ég í næringarfræði og hfeðlisfræði en aftur á móti er ég ekkert viss um að því gangi endilega betur að tengja hana við líkamsræktina. Mér hefur þótt alltof lítið um það að þetta fólk komi þeirri þekkingu sem það býr yfir til skila þannig að hún nýtist fjöldanum. Aftur á móti er fullt af liði sem stendur þarna uppi og setur út á það sem aðrir gera sem eru minna menntaðir í prófgráðum. Menntun er alltaf góð. Það þarf bara að ná að tengja hana því sem skiptir máli. Vaxtarræktin er þar engin undantekning." hbg Bestu vaxtarræktarmenn á íslandi. Þrisvar mættust þeir í keppni um ís- landsmeistaratitilinn. Jón Páll vann tvisvar sinnum en Sigurður einu sinni. Fyrstu vaxtarræktarmennirnir á Akureyri á sýningu í Gagganum í desem- ber 1981. Frá vinstri er Gísli Rafnsson, Sigmar Knútsson, Sigurður Páls- son, Hjörtur Guðmundsson og þá Sigurður. Barnakór Glerárkirkju Vetrarstarf Barnakórs Glerárkirkju hefst með æfingu í Glerárkirkju, þriðjudaginn 9. september nk. kl. 16. Kórfélagar frá því í fyrra eru hvattir til að mæta, einnig eru nýir kórfélagar velkomnir. Stjórnandi barnakórsins í vetur verður Michael Jón Clarke. Sóknarnefndin. Skrifstofuaðstaða óskast Óskað er eftir snyrtilegri skrifstofuaðstöðu á Akureyri, þ.e. skrifstofuherbergi með aðgangi að sameiginlegri þjónustu s.s. símsvörun, Ijósritunarvél, faxi o.þ.h. Um er að ræða ábyrgan aðila með trausta starfsemi. Upplýsingar í síma 562 4321 á skrifstofutíma. Námskeið í náttúru- vernd og landvörslu Náttúruvernd ríkisins stendur fyrir námskeiði í náttúru- vernd og landvörslu í september og október nk. Markmið námskeiðisins er að vekja áhuga á náttúrufari landsins og náttúruvernd, svo og að þjálfa einstaklinga til starfa við landvörslu og fræðslu um náttúruna og náttúruvernd. Námskeiðið verður haldið í Reykjavík og einnig á Akur- eyri ef næg þátttaka fæst. Fyrirkomulag námskeiðisins í Reykjavík verður sem hér segir: Kvöldfyrirlestrar verða dagana 29. september til 2. október frá kl. 18 til 22. Skoðunarferðir verða farnar dagana 4., 5. og 11. októ- ber. Kvöldfyrirlestrar verða dagana 13.-16. október frá kl. 18 til 22. Skoðunarferð og fyrirlestrar verða dagana 18. og 19. október. Dagana 23.-26. október verður dvalið utan Reykjavík- ur. Skriflegar umsóknir, á þar til gerð eyðublöð, skulu ber- ast Náttúruvernd ríkisins, Hlemmi 3, Pósthólf 5324, 125 Reykjavík, fyrir 15. september nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu stofnun- arinnar, Hlemmi 3, 2. hæð. Námskeiðsgjald er kr. 42.000,- Náttúruvernd ríksins. Verkalýðsfélagið Eining Fulltrúakjör! Samkvæmt lögum Verkalýðsfélagsins Einingar fara kosningar fulltrúa félagsins á 25. þing Alþýðusam- bands Norðurlands og 19. þing Verkamannasambands íslands fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð A.S.Í. um slíkar kosningar. Félagið hefur rétt til að senda 38 fulltrúa á þing Alþýðu- sambands Norðurlands, sem haldið verður að lllug- astöðum í Fnjóskadal dagana 3. og 4. október nk. Á þing Verkamannasambands íslands, sem haldið verður að Hótel Loftleiðum í Reykjavík dagana 21. til 24. október nk., hefur félagið rétt á að senda 19 full- trúa. Framboðslistum til beggja þessara þinga, þar sem til- greind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn marga til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn 15. september nk. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 full- gildra félagsmanna. Akureyri, 5. september 1997, Verkalýðsfélagið Eining.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.