Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Qupperneq 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Qupperneq 8
20 - Laugardagur 6. septemher 1997 jDagurÁCmtmn LIFIÐ I LANDINU Myndir: E.Ól Starfsferill Þrastar Ólafssonar hag- frœðings hefur ver- ið afar fjölbreyttur. í viðtali við Kol- brúnu Bergþórs- dóttur lítur Þröstur yfirfarinn veg þar sem oft hafa ríkt átök og sviptingar. s yfirborðinu virðistu vera rökhyggjumaður sem lœtur tilfinningarnar ekki rugla þig í ríminu. Hvenœr tók rökhyggjan yfirhöndina? „Allt til þess tíma er ég fór til náms í Þýskalandi mótaðist ég mjög af tUfmningum, lét þær stjórna viðhorfum mínum og ef ég þurfti að verja skoðanir mín- ar gerði ég það með tilfmninga- legum rökum. Á námstíma mín- um í Þýskalandi komst ég fljót- lega að því að tilfinningaFÖkin dugðu skammt í þjóðfélagslegri umræðu, og ég lærði að meta rökhyggju og rökfræði. Áhrifin frá Þýskalandi hafa alltaf fylgt mér, en hins vegar hef ég einnig fundið mjög sterkt fyrir tilfinn- ingamanninum sem fór að heiman.“ Afhverju fórstu aö lœra hag- frœði? „Ég ætlaði að leggja stund á heimspeki, jafnvel bókmenntir, enda hneigðist hugur minn mjög til þeirra greina. En móðir mín sem var mjög hagsýn kona, enda Vestfirðingur, talaði um fyrir mér, hrædd við fátækt og basl taldi hún heimspekistúss ekki starf sem hægt væri að lifa af. Ég ákvað þá að læra hag- fræði, grein sem gæti skilað mér liíibrauði og snýst um áhugasvið mitt, hugmyndir manna um heiminn og tilver- una.“ Þú hafðir mjög róttœkar stjórnmálaskoðanir á þínum yngri árum, hvenær mótuðust þœr? „Faðir minn var framsóknar- maður, mikill aðdáandi Jónasar frá Hriflu, en fyrir vestan urðu skoðanir hans fyrir kratískum áhrifum. Sem veganesti úr heimahúsum fékk ég hugsjón jafnaðarmennskunnar, þótt hún væri á þessum árum nokkuð grænlituð af framsóknar- mennsku Jónasar frá Hriflu. Á Þýskalandsárum mínum urðu mikil þjóðfélagsátök í landinu. Innra uppgjör þjóðarinnar við arfleifð nasismans var að heíj- ast. Ungt fólk skoraði á hólm staðnað og líflaust samfélag. Það vildi ekki láta móta sig í lífsmunstur og hugsunarhátt sem rekja mátti til óheillatíma. Við þetta bættist Vietnam stríð- ið, óheilindi og hræsni ráðandi stétta og stjórnarfars. Við leit- uðum hins nýja tóns, bæði í hugsun, stjórnmálum og einka- lífi. Ungt fólk taldi sig finna hina hreinu sósíalísku línu sem væri laus við þær syndir sem sósíalistar í austri höfðu drýgt. Kannski var leitin að betri heimi barnaskapur, en það breytir engu um að þessi tími var einn sá lærdómsríkasti og mest heillandi á ævi minni.“ Finnst þér þá að þið hafið haft rétt fyrir ykkur á þeim tíma? „Já, við höfðum það, en okk- ur skjátlaðist líka. Við vorum ungir og ákafir og til að viðhalda baráttukraftinum þörfnuðumst við einfaldra skýr- inga. Auðvitað er það einkenni ungra manna að mála andstæð- urnar sterkum litum, ekki hvað síst til að vekja athygli á þeim, og draga síðan ályktanir sem oft eru einlitar. Lífið og pólitíkin eru miklu flóknari en menn á þessu aldurskeiði vilja vera láta.“ Ólafur Ragnar biðlar Ágætur maður sagði mér að eftir að þú komst frá námi hefði Ólafur Ragnar reynt að fá þig í Framsóknarflokkinn og sagt þér að framtíðin lœgi þar. „Já, það er ýmislegt til í því. Ólafur var á þeim tíma með herbergi á Hótel Sögu og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera boðinn þangað og þar var rætt við mig um pólitík. En ég var ekkert á þeim buxunum að ganga í Framsóknarflokkinn.“ En þú gekkst í Alþýðubanda- lagið. „Ég gerði það, ekki hvað síst fyrir tilstuðlan Magnúsar Kjart- anssonar. Það talaðist þannig til milli okkar Magnúsar að ég legði Alþýðubandalaginu lið. Síðar þegar ég varð eins konar aðstoðarmaður Magnúsar, gekk ég í flokkinn. Magnús er ein- hver allra gáfaðasti maður sem ég hef kynnst. Ef maður sat nokkra stund hjá Magnúsi þá var ekki hægt að komast hjá því að heillast af honum. Hann var töfrandi persónuleiki.“ Finnst þér þú hafa átt góða vist í Alþýðubandalaginu? „Hún var góð framan af, en ekki leið á löngu þar til ég fann að ég átti ekki málefnalega samleið með flokknum. Ég var í flestum atriðum ósammála Áhrifin frd Þýska- landi hafa alltaf fylgt mér, en hins vegar hefég einnig fundið mjög sterkt fyrir tilfinninga- manninum sem fór að heiman. stefnu flokksins í sjávarútvegs- málum og gat alls ekki sætt mig við efnahagsstefnu flokksins. Ég hafði mikinn fyrirvara á land- búnaðarstefnunni og fljótlega hætti ég að taka undir þá skoðun að ísland ætti að ganga úr Nató. Það sem fyllti mælinn var ódrengileg framkoma ýmsra forystumanna Alþýðu- bandalagsins í málefnum Guð- mundar J. Guðmundssonar sem tengdust Hafskipsmálinu. Það var dropinn sem fyllti mælinn. Ég gekk úr flokknum. Stuttu síðar gekk ég í Alþýðuflokkinn þar sem ég taldi mig eiga mesta málefnalega samstöðu. Til gamans má geta þess að innan Alþýðubandalagsins var það haft í flimtingum að hag- fræðingar ættu ekki heima þar, þeir myndu annað hvort ruglast eða fara úr flokknum." Þið Guðmundur jaki virðist við fyrstu sýn hafa verið and- stœður. Hugsaði hann ekki allt út frá tilfinningum? „Jú, hann gerði það. Það var ótrúlegt hvað hann var glöggur á andardrátt tímans, þótt hann beitti engu öðru en tilfinning- um. Tilflnningar hans voru fín- stilltar og heilbrigðar og í þær var inngreipt réttlætiskennd svo mikil að hann komst oftast að nokkuð réttri niðurstöðu. Sam- starf okkar var mjög náið og innilegt. Guðmundur var afar heilsteyptur og yndislegur mað- ur. Hann var besti vinur minn, það kemur enginn í hans stað. Ég sakna hans mjög.“ Átök um Mál og menningu Sigfús Daðason var útgáfustjóri Máls og menningar þegar þú gerðist þar framkvœmdastjóri árið 1974, og þið voruð ekki sammála um ýmsa hluti.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.