Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Blaðsíða 10
mmírilDiírpKÍl V^s— TOUV mu\mici\«o»9 í\ 22 - Laugardagur 6. september 1997 LIFIÐ I LANDINU Jkgur-®œróm Gekk ég yfir sjó og land Við höfnina í Færeyjum. Unga fólkið er nú farið að snúa aftur til eyjanna eftir þrengingar fyrra ára. Sigurður Bogi Sævarsson Skrifar Færeyjar heilsuðu í þoku og rigningarsudda á flugveli- inum í Vogum. Það var ekki annað en búast mátti við, enda eru eyjarnar þekkt rign- ingarbæli. Þetta er allt eftir bókinni, hugsaði ég með mér þegar ég steig upp í rútuna sem flutti okkur til Þórshafnar. Ég fór að hugsa með mér á leiðinni þangað hverjar hugmyndir ís- Ltklegt að viðskipti og samstarf milli þjóðanna eigi eftir að aukast, en mestu skipir sá áhugi og virðing sem Fcereyingar sýna Islendingum. lendinga af Færeyingum væri. Satt að segja held ég að við höf- um aldrei gert okkur stórar hugmyndir um land og þjóð. Grindhvaladráp, skerpukjöt og þjóðargjaldþrot, kemur fyrst upp í hugann. Unga fólkið snýr heim Að orðið þjóðargjaldþrot sé okkur hugleikið er skiljanlegt. Óneitanlega guldu eyjaskeggjar afhroð á árunum 1992 og 1993, þegar kurl komu til grafar í uppgjöri á stórkostlegri upp- byggingu í eyjunum. Þegar dæmið var gert upp var spari- grísinn tómur. Þá hlupu Danir undir bagga, enda eru Færeyjar enn hluti af danska konung- dæminu. Margir búast hins veg- ar við að það breytist á næstu árum, og innan 15 til 20 ára verði eyjarnar orðnar sjálfstætt lýðveldi. í dag ríkir bjartsýni í Færeyj- um, eftir dimma daga síðustu ára. Gætu helstu stikkorðin hvað varðar eyjarnar nú verið bjartsýni og duglegt fólk. Eyja- skeggjum fer íjölgandi á nýjan leik, en margir fóru á brott í skuldaskilunum miklu. Árið 1989 voru Færeyingar flestir, 47.838, en urðu fæstir 1995, 43.719. En nú er talan upp á við, og til eyjanna er að snúa aftur mikilvægasti hópurinn; unga fólkið. Margt þeirra fór til starfa í Danmörku á þreöging- artímunum, en hefur alltaf haft bak við eyrað að heima er best. Svona alla jafna, að minnsta kosti. Tengjumst íslandi traustum böndum Sámar Pétur í Grund er samgöngu- og menningarmála- ráðherra Færeyja. Á ferðalagi mínu um Fæieyjar gafst mér tækifæri á að spjalla við hann og spyrja almælrta tíðinda úr eyjunum átján. - Hann sagði mór að einkum sé horft til þess að finna megi olíu innan fær- eysku lögsögunnar, þegar ég spyr hann um stóra drauma eyjaskeggja. „Vísindamenn segja að um það bil 10% líkur séu á því að olía finnist innan lögsögunnar. En ég minni á að litlar líkur voru taldar á því að finna mætti olíu í lögsögu Nor- egs. En hún fannst samt,“ segir hann. Allar eyjar Færeyja, utan ein, er í byggð. Sámar Pétur er hins vegar ekki bjartsýnn á að byggð haldist þar áfram. Að minnsti kosti ekki með óbreytt- um hætti. Hann segir að stjórn- völdum sé ekki megnugt að halda í öllum eyjum og útnár- um uppi þeirri þjónustu sem krafist er, til dæmis í skólamál- um. Því megi búast við að byggðin grisjist á næstu árum, en helstu þéttbýlisstaðir eyj- anna muni styrkjast að sama skapi; Þórshöfn, Klakksvík, Fuglafjörður og Vestmanna, svo nokkrir staðir séu nefndir. „Við Færeyingar tengjumst íslend- ingum meira en Dönum, þó við séu hluti Danaveldis. Danir eru fyrst og fremst Evrópuþjóð, en íslendingum tengjumst við traustum böndum þar sem bæði við og þeir erum eyþjóð og mörg úrlausnarefni því svipuð," segir Sámar. Barátta fyrir fær- eyskri tungu Það vakti athygli mína hve margir Færeyingar eru mæltir á íslensku. Annar hver maður getur bjargað sér á íslensku og haldið uppi einhverjum sam- ræðum. Einn Færeyinganna sem ég tók tali, vitaskuld á ís- lensku, var Jóhann Hendrik Polsen, sem býr í Kirkjubæ. Hann er málvísindamaður og „íslendingum tengjumst við traust- um böndum, þar sem bæði við og þeir erum eyþjóð og mörg úrlausn- arefni landanna eru svipuð," segir Sámar Pétur í Grund, menningar- og samgönguráðherra Færeyja. starfar við Fróðskaparsetrið í Þórshöfn, og er formaður fær- eysku málnefndarinnar. „Vitaskuld ætti færeyksa tungan ekki að vera til, svo fáir tala hana. Nágrannar okkar á Hjaltlandi töpuðu til dæmis sinni tungu niður. En ætli það Fjör í færeyskum Vikivaka. sem bjargaði íslenskunni hafl ekki verið þjóðernisvakningin á íslandi á síðari hluta 19. aldar,“ segir Jóhann. Hann segir að hjá færeysku málnefndinni fari mikil vinna í að snara yfir á færeysku nýjum orðum sem koma inn í málsamfélagið. Hann segir að baráttan í þeim » Eyjas keggjar guldu afhroðþegar kurl komu til graf- ar í uppgjöri á stórkostlegri upp- hyggingu í eyjun- um. Þá var spari- grísinn tómur.(í efnum só hörð; hin engilsax- nesksa veröld sé allt um kring og í seinni tíð svífandi yfir í gervitunglum himinsins. „Það dugir ekki fyrir okkur að vera svartsýn á að framhaldið í þess- um efnum. Síðan er eitt að líta á sig sem málvísindamann eða málræktarmann,“ segir Jóhann, sem vill bera síðarnefnda titil- inn. Miðjupunktur siglinga Sem vonlegt er vakti starfsemi Eimskips í Færeyjum athygli mína, en fyrirtækið er áberandi í eyjunum. „Við köllum Þórs- höfn og ísland miðjupunkta okkar siglingaáætlana," segir Svavar Ottóson, forstöðumaður Eimskips í Færeyjum, en hann tók nýlega tók við því starfi. Hann segir flskflutninga veiga- mesta þáttinn í starfseminni. Nú þegar sé Eimskip komið með um fjórðungs hlutdeild flutningum til og frá eyjunum og er stefnt að frekari aukningu næstu ár. „Hér hefur verið atvinnuleysi síðustu misseri, en það hefur minnkað og nú er jafnvel eftir- „Hér getur þú ekki þekkt Islendinga og Fcereyinga í sund- ur, nema Fcerey- ingarnir séu í fcer- eyskri peysu. spurn eftir starfsfólki,“ segir Svavar. - Hann segir að sam- vinna og viðskipti séu milli nokkurra fyrirtækja í sjávarút- vegi hér heima og í Færeyjum. Eigi þessi samvinna væntanlega eftir aukast á næstu árum. Þá starfrækja Bónus og Rúmfata- Myndirsbs lagerinn verslanir í Þórshöfn, og fleira mætti nefna. Þú skynjar þig aldrei í útlöndum „Ef þú ert í Skandinavíu getur þú þekkt íslendinga úr í marg- menni, svo áberandi og auð- þekktir eru þeir. Hér úti getur þú hins vegar ekki þekkt ís- lendinga og Færeyinga í sund- ur, nema Færeyingarnir séu í færeyskri peysu. Þetta er af sama meiði sprottið og það að hér skynjar þú þig aldrei sem útlending," sagði einn íslend- inganna í Færeyjum, sem ég ræddi við. Það var þetta - og annað á svipuðum nótum - sem vakti mig til umhugsunar um hugtak- ið bræðraþjóð. íslendingar og Færeyingar eru það svo sann- arlega. Líklegt er að viðskipti og samstarf milli þjóðanna eigi eftur að aukast næstu ár, en mestu skiptir þó sá mikli áhugi og virðing sem Færeyingar sýna íslendingum, og það eigum við gjalda líku líkt - og einnig færa okkur ínyt.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.