Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Qupperneq 1
Fréttir og þjóðmál Veður Akureyri Veturinn minnir á sig Veturinn er farinn að minna á sig að minnsta kosti á Norðurlandi og Vestfjörðum. Á 'Akureyri snjóaði niður í miðjar hlíðar og þæfings færð var á fjallvegum fyrir norðan. Leiðindaveður var á hálendinu og snjó var farið að festa. Hálka var á Möðrudalsöræf- um og Vopnafjarðarheiði. Á Öx- arfjarðarheiði var krapi og snjór og sama var að segja um Hellisheiði eystri og Fljótsheiði. Á Lágheiði var skafrenningur og krapasnjór. Að sögn vegfar- enda voru skaflar á veginum og hann ekki fólksbílafær. Þeir sem eiga leið um fjall- vegi þurfa nú að fara að huga að útbúnaði bfla sinna, en flest- ir vona þó að Vetur konungur láti það vera enn um sinn að koma til byggða. Slátrun hófst hjá KEA í gær og er búist við að standi í 5 vikur. Loks tókst að manna sláturhúsið, eftir að illa leit út i fyrstu, en nú starfa þar færri vanir en áður. Þessir sem hér sjást virðast þó albúnir í slaginn! Og þeir sem vilja ná sér í slátur fara í Hrísalund, en þar verður aðalslátursalan. Mynd. Bnn. Akureyri Höfuðborgarbúar í aðgerðir á Akureyri Æ fleiri landsmenn leita sér lækninga hjá Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Reykvíkingar farnir að koma í bæklunar- aðgerðir vegna biðlista syðra. Mjög erfið fjárhagsstaða er hjá Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri (FSA) og er sýnt að spítalinn fer töluvert fram úr heimildum í ár. Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær var lögð fram ályktun frá stjórn FSA þar sem skorað var á sveitarstjórnarmenn á Norð- ur- og Austurlandi að leggja sjúkrahúsinu lið. Fjárveitingar- valdið yrði að verja auknu fé til stofnunarinnar ef hún ætti að geta sinnt skilgreindu hlutverki sínu. Sjúklingar koma víða að Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri FSA, segir að þjónusta spítalans hafi aukist mjög mikið að undanförnu sem sé í sam- ræmi við áætlanir, en fjárveit- ingar hafi ekki vaxið að sama skapi. Nánast hafi tekist í fyrra að halda rekstrargjöldum innan ramma fjárveitinga, hallinn hafi verið um 1% eða 14 milljónir, en nú horfi illa vegna sívaxandi fjölda sjúklinga. „Mestöll starf- semin jókst um 10-12% í fyrra á sama tíma og rekstrarkostn- aður hækkaði aðeins um 2%. Sjúklingum hefur svo enn fjölg- að mikið fyrri hluta þessa árs miðað við í fyrra án þess að ég kunni skýringu á því úr hvaða sveitarfélögum þetta fólk kem- ur. Við eigum eftir að greina það nánar en þetta virðist fólk af öllu landinu og m.a. suðvest- urhorninu. Það eru dæmi um að Reykvíkingar hafi komið til Akureyrar í bæklunaraðgerðir á árinu,“ segir Halldór. Sami vandi áfram? Líkur eru á að stjórnvöld veiti sjúkrahúsinu aukna fjármuni á fjáraukalögum vegna halla þessa árs en hann hefur verið 6-7 milljónir á mánuði sem samsvarar 70-80 milljónum á ársgrundvelli. Hins vegar er að sögn Halldórs gert ráð fyrir að fjárveitingar næsta árs verði svipaðar og í fyrra. „Ef svo fer ráðum við engan veginn við þau verkefni sem hingað streyma.“ BÞ Krikjumálaráðherra Sigrún til Noregs Kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að ráða séra Sigrúnu Óskarsdóttur prest til íslenska safnaðarins í Noregi til þriggja ára. Safnað- arstjórn hafði einróma mælst til þess að Sigrún yrði skipuð en biskup íslands, Ólafur Skúla- son, ákvað bréflega til ráðherra að gera ekki tillögu um prest. í yfirlýsingu frá biskupi segir að ekki hafi verið virt sam- komulag um faglegar aðferðir við ráðninguna og því geti hann ekki skipað í stöðuna. Auk Sig- rúnar stóð valið milli sr. Krist- jáns Björnssonar og sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Ánægja var með niðurstöðuna hjá Islend- ingum í Noregi í gær, enda virð- ist Sigrún hafa notið almenns fylgis þótt skoðanir væru eitt- hvað skiptar. BÞ i BIACK&DECKER _Handverkfæri SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNi 31 * SÍMI 562 7222 • BRÉFASIMI 562 1024

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.