Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Blaðsíða 7
<30agur-®mrám
Föstudagur 12. september 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Dýrlingur
Díana: Lát hennar meiri viðburður en upphaf heimstyrjaldanna, ef marka
má viðbrögð fjölmiðla.
Baksvið
Dagur Þorleifsson
s
sögnum af Arthúri konungi
stendur að dís er réði stöðu-
vatni hafl gefið honum
sverðið Exkalíbúr, tákn konung-
dóms hans. Sagnir af dauða
konungs þessa, sem einhverjir
sagnfræðingar telja að hafi í
raun verið uppi og ríkt um
skeið yfir fyrrverandi róm-
verska Bretlandi á 5. öld, benda
til þess að goðmagn það kven-
kyns er gaf honum brand þenn-
an ágætan hafi einnig ríkt yfir
hafinu.
Gyðjur í norðanverðri Evr-
ópu, í heiðnum sið bæði kelta
og germana, voru gjarnan mjög
tengdar vatni og sjó (eins og t.d.
Frigg í Fensölum, Sága á
Sökkvabekk og hafgyðjan eða
hafgýgurin Rán benda til).
Vilhjálmur en ekki
Karl?
Díana prinessa af Wales var að
sögn jarðsett á eyju í stöðu-
vatni. Hún varð nærri jafnskjótt
og lát hennar í bílslysi í París
fréttist að einskonar dýrlingi
fyrir allan heiminn, tekin að
vissu marki í goðatölu að segja
má, með hliðsjón af harminum
eftir hana og lofi því er henni er
flutt. Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar vilja yfir 70%
Breta að Vilhjálmur (William),
15 ára sonur Díönu, taki við
ríki af ömmu sinni, Elísabetu 2.,
en aðeins liðlega fimmtungur
landsmanna vill að Karl krón-
prins, fyrrum eiginmaður Díönu
og faðir Vilhjálms, verði kon-
ungur eftir móður sína. Margir
telja um þessar mundir líklegt
að Vilhjálmur verði næsti kon-
ungur Bretlands.
Ef svo verður þiggur hann,
eins og sagnakonungurhin Art-
húr sem miklu skiptir í enskri
menningarerfð, konungdóm
sinn úr hendi gyðju í vatni.
Ef marka ætti viðbrögð ijöl-
miðla er andlát Díönu meiri
viðburður en upphaf heims-
styrjaldanna tveggja, lok kalda
stríðsins og fjöldamorðin í Rú-
anda. í grein eftir Bjarke Moller
í danska blaðinu Information
stendur að „aldrei í sögunni
hafi nokkur einstakur atburður
valdið slíkri fjöldamóðursýki"
sem dapur dauði prinsessu
þessarar, í bíl sem drukkinn bíl-
stjóri ók á 200 kflómetra hraða
á klukkustund. Valdamiklir
stjórnmálamenn gripu tækifær-
ið til þess að auðsýna samúð,
meðaumkvun og sorg, gefa
þannig ástæðu til að ætla að
þeir væru hjartagóðir og mann-
eskjulegir og reyna með því að
efla sig með dýrðarljómanum
frá Díönu. Þar var fremstur í
flokki sá voldugasti þeirra, Bill
Clinton Bandaríkjaforseti, en
honum fygldu fast á eftir Jacqu-
es Chirac Frakklandsforseti,
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
Nelson Mandela Suður-Afríku-
forseti og Helmut Kohl, sam-
bandskanslari Þýskalands.
Talebanar daprir
Samúðarbréf barst frá Sinn Fe-
in, pólitískum armi norðurírska
hryðjuverkaliðsins IRA, sem
talið er að fyrirhugað hafi að
myrða Díönu. Leila Khaled, pal-
estínskur flugræningi, sagði Dí-
önu vera „hetju fyrir gleymd
fórnarlömb heimsins,“ herfor-
ingjar þeir er nú stýra Vestur-
Afríkuríkinu Sierra Leone létu
draga fánana í hálfa stöng,
tæplega fertugur Pakistani, sem
Díana kvað hafa snert í heim-
sókn á þær slóðir í vor, svipti
sig lfll með eitri og var þá með
mynd af henni í brjóstvasanum.
f Hongkong, sem heyrði Breta-
veldi til þangað fyrir fáeinum
mánuðum, hljóp maður út um
glugga á 33. hæð skýjakljúfs er
honum barst dánarfregnin og
skildi eftir á skrifborði sínu
haug af blaðaúrklippum um
prinsessuna. Meira að segja
Talebanar í Afganistan, sem
ekki mega sjá konur opinber-
lega nema næstum alveg huldar
slæðum, kváðu vera miður sín.
Ekki er að vita nema þessi
sorglegi atburður hafi áhrif í
sögunni, ef það skyldi nú sýna
sig - í fyrsta sinn í sögunni - að
mannkyninu hefði birst goð eða
dýrlingur sem það allt gæti
sameinast um að tilbiðja.
Díönur og María
Sálfræðingar tala um „sjúklega
þörf fyrir sorg, sem alltaf sýni
sig öðru hvoru,“ viðvíkjandi
alls mannkyns?
Kona í Lundúnum sá
andlit Díönu geisla í
töfraþrunginni birtu
út úr málverki af Karli
konungi 1sem háls-
höggvinn var.
harmi heimsins eftir Díönu. En
undur eru þegar farin að gerast
í þessu tilviki sem fleirum
meira eða minna áþekkum. Dí-
ana er tekin að birtast fólki í
sýnum. Þannig segist kona
nokkur í Lundúnum hafa séð
andlit Díönu í töfraþrunginni
birtu geisla út úr málverki af
Karli konungi 1. (1625-49), sem
Cromwell lét höggva og af
einhverjum mun vera talinn til
píslarvotta. í breska blaðinu
Independent stendur að fólk sé
þegar farið að líta á Díönu sem
einskonar veraldlega útgáfu af
Maríu mey, sem í kaþólskum
löndum hefur gjarnan birst
fólki þegar erfiðleikar steðjuðu
að.
Nafninu Díana hét upphaf-
lega ítölsk/rómversk gyðja
tungls, villtrar náttúru og frjó-
semi og verndari kvenna. Dýrk-
unin á henni rann saman við
dýrkun á gyðjum austan að og
mun sá átrúnaður hafi búið í
haginn fyrir Maríudýrkun í
kristni.
Einn greinarhöfundur skrifar
að meiri eða minni helgun al-
mennings á manneskjum eins
og Díönu prinsessu og Móður
Teresu sé vottur þess að menn-
ina dreymi enn um hið góða og
leiti hins góða, óeigingirni,
fórnfýsi. Fólk dýrki manneskjur
sem verði í augum þess per-
sónugervingar þeirra eigin-
leika. Önnur skýring á vinsæld-
um Díönu, sem komu einkum
upp á yfirborðið fyrst eftir
dauða hennar, er að hispurs-
leysi hennar og árekstrar við
siðavanda konungsfjölskyldu
hafi leitt til þess að alþýðan hafi
farið að telja hana til sín, þótt
hún væri dóttir áttunda jarlsins
af Spencer.
VWTransporter sincro 4x4 ek. 70 þús.
árg. 1995 Díselverð 1.780.
MMC L-300 2,4i árg. 1991 ek. 154
þús. km. Verð 1.000.000,-
WV Camper 4x4 árg. 1985.
Verð 1.500.000,-
Bflaskipti • Bflasala
Nissan King cab árg. 1993 ek. 93 þús.
km.Verð 1.280.000,-
SuzukiVitara árg. 1994 ek. 64 þús. km.
Verð 1.350.000,-
WV Polo 1000 árg. 1996 ek. 55 þús.
km.Verð 780.000,-
MMC Lancer 4x4 árg. 1996 ek. 34
þús. km.Verð 1.400.000,-
Subaru Legacy Sedan AT árg. 1991
ek. 85 þús. km.Verð 920.000,-
þús. km.Verð 1.150.000,-
Bflaskipti • Bflasala
Land Rover Langir árg. 1981 - 1982.
Verð 400.000,- 4 stk.
Land Rover Langir árg. 1986V-8.
Verð 900.000,- 2 stk.
Land Rover Stuttur árg. 1987V-8.
Verð 800.000,-
Cherokee laredo 4.0 árg. 1989 ek. 74
þús. míl.Verð 1.320.000,- Eigum
einnig 1987 og 1988 árg.
Vantar bíla á skrá
og á staðinn
Gula Bjallan hans Gulla Magg er loks-
ins til sölu árg. 73 ek. 70 þús.
Verð 350.000,- staðgreitt.
fRÍLÁSAUNNl
BÍLASALA
við Hvannavelli, Akureyri
Símar 461 3019 & 461 3000