Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Qupperneq 7
Föstudagur 3. janúar 1997 - 7
E R L E N D A R F R É T T I R
Lögreglumenn gefa japanska sendiráðinu í Lima gætur: vinstriskæruliðar ekki alveg búnir að vera.
Rómanskamerískir
vmstriskæruliðar
Um skeið hafði verið geng-
ið að því sem vísu að
vinstriskæruliðar í stríði
gegn stjórnvöldum í Perú væru
því sem næst eða alveg búnir
að vera. En frá því að um 20
slíkir skæruliðar tóku á vald sitt
japanska sendiráðið í Lima,
höfuðborg Perú, skömmu fyrir
jól og þar með fjölmarga hátt-
setta menn í gíslingu, eru
margir orðnir annarrar
skoðunar um það.
Af flokkum perúskra vinstri-
skæruliða var lengi miklu um-
svifamestur Sendero Luminoso
(Skínandi stígur), en hann virð-
ist hafa lognast út af að mestu
eftir að foringi hans, Abimael
Guzman, var handtekinn 1992.
í þeirri hreyfingu, sem var
maóísk, var mikil foringja-
miðstýring og foringjadýrkun.
Síðasti Inkakeisarinn
Tupac Amarú-byltingarhreyf-
ingin (MRTA er skammstöfun
heitis hennar á spænsku), sem
sendiráðið tók, var stofnuð
1984 og tekur sér einkum
Castro og kúbanska komm-
únismann til fyrirmyndar. Á
milli hennar og Sendero Lumin-
í Kólombíu og Perú
eiga skæruliðar frem-
ur auðvelt með að
fjármagna sig með
því að „skattleggja"
kókaínhringana og
áhangendur þeirra.
oso hefur verið svarinn ijand-
skapur.
Tupacamarúar kenna sig við
tvo þekkta uppreisnarmenn í
sögu Perú. Annar þeirra var
Tupac Amarú, síðasti Inkakeis-
arinn. Eftir að Spánverjar
höfðu unnið Inkaveldi 1531-34
reyndu þeir í fyrstu að stjórna
þvx gegnum leppkeisara. En
leppkeisararnir stóðu fyrir upp-
reisnum, er lauk með því 1572
að Spánverjar tóku Tupac Am-
arú til fanga, hálshjuggu hann
og lögðu Inkaveldi formlega
niður.
Síðari uppreisnarforinginn
með þessu nafni hét eiginlega
José Gabriel Condorcanqui, en
nefndist Tupac Amarú 2. er
hann stóð fyrir uppreisn indí-
ána gegn spænskum stjórnvöld-
um og kreólskri (spænskætt-
aðri) yfirstétt 1780. Þá var upp-
lýsingatíminn og sjálfstæðisstríð
breskra Norður-Ameríku-
manna, og kann að vera að ein-
hver hugmyndaslitur þaðan
hafi slæðst suður í Andesfjöll.
Spánverjar bældu þessa upp-
reisn niður eins og hina og
hálshjuggu þennan Tupac Am-
arú einnig.
Baksvið
Dagur Þorleifsson
Til frambúðar eða
stundarfyrirbæri?
Tupamaros, borgarskæruliða-
hreyfing sem verulega kvað að í
Úrúgvæ á 7. og 8. áratug,
kenndi sig við Tupac Amarú 2.
Fréttaskýrendur virðast al-
mennt li'ta svo á að taka sendi-
ráðsins bendi til þess að skæru-
liðahreyfingar séu í vexti í
Rómönsku Ameríku. En þá
greinir á um hvort sá vöxtur
verði til frambúðar eða aðeins
stundarfyrirbæri.
Sem merki um vaxandi bylt-
ingaranda, er orðið geti til
langframa, er auk sendiráðs-
tökunnar nefnt að nýr skæru-
liðaflokkur er kominn á kreik í
Mexíkó auk zapatista. í Kólom-
bíu - þar sem vinstriskæruliðar
hafa lengi verið fastur liður í of-
beldisöldinni, sem þar er fastur
liður í þjóðlífinu - virðast þeir
heldur magnast.
Ástæður til þessa sem haldið
er fram, m.a.: Þótt „Comand-
ante Che Guevara", sem drep-
inn var í Bólivíu 1967, kunni að
vera flestum Vesturlandamönn-
um gleymdur, er hann enn
hetja og ekki síst píslarvottur í
augum margra ungra róm-
anskra ameríkana. í Kólombíu
og Perú er það gömul hefð að
ráðamenn láti dreifbýlið sitja á
hakanum um flest sem til um-
bóta og framfara horfir. í þess-
um löndum hefur og skærulið-
um verið fremur hægt um hönd
að fjármagna sig með því að
„skattleggja" kókaínbransann.
Zapatistar
Lýðræði er lieldur á uppleið í
heimshluta þessum (en sum-
staðar, t.d. í Perú, að vísu vald-
boðskennt), en flestir þeirra fá-
tækustu hafa það engu betra en
fyrr. Aukinnar festu gætir í
efnahagslífi, en þeim árangri
hefur víða fylgt meiri misskipt-
ing auðs, sem hefur þó alltaf
þótt þar ærin.
Aðrir benda á að virkir róm-
anskamerískir vinstriskæruliða-
flokkar eru nú með fæsta móti
og telja að þeir nái ekki Qölda-
fylgi. í Gvatemala hafa stjórn-
völd og skæruliðar gert frið eft-
ir rúmlega 35 ára stríð. Zapat-
istarnir mexíkönsku, fyrsti
skæruliðaflokkur heimshlutans
sem upphófst eftir hrun sovét-
blokkar, þykja hafa verið frekar
sparir á ofbeldi, en haft þeim
mun betra lag á að koma sér í
fjölmiðla. Og gegnum Qölmiðla
hafi zapatistar þegar náð meiri
árangri en flestum öðrum slík-
um hópum hafi tekist með alls-
konar aðferðum. Ólíkt öðrum
skæruliðaflokkum vestanhafs
segjast zapatistar ekki sækjast
eftir völdum, heldur vilji þeir
aðeins endurheimta fyrir indí-
ána réttindi sem þeim beri
samkvæmt stjórnarskrá.
Veikum gísl sleppt: margir hátt-
settir menn í gíslingu.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Innritun
í öldungadeild og fjarkennslu verður dagana
6.-10. janúar ’97 á skrifstofu skólans.
Nánari upplýsingar í síma 461 1710.
I
ti '
w JMabtéó-
ó&emmtim V31
\ Verslunarmannafélag Reykjavíkur heldur
^ ' jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna,
sunnudaginn 5. janúar nk. kl. 15
# «— á Hótel íslandi.
Miðaverð er kr. 600,- fyrir böm og
kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar em seldir
á skrifstofu VR í Húsi verslunarinnar,
8. hæð og við innganginn. Nánari
upplýsingar í síma félagsins 568 7100.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
V
SgS Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur
auglýsir lausar stöður við grunn-
skóla Reykjavíkur.
Foldaskóli.
Starfsmann skóla vantar frá áramótum til loka skóla-
árs. Starfið felst meðal annars í að hafa umsjón með
nemendum á göngum og víðar og ýmsum öðrum störf-
um innan skólans og utan. Upplýsingar veitir Ragnar
Gíslason skólastjóri í síma 567 2220 í skólanum og
heima í síma 565 6651.
Fossvogsskóli.
Stuðningsfulltrúa vantar í hálft starf frá áramótum.
Starfið er meðal annars fólgið í að vera nemendum til
aðstoðar, fylgja þeim um skólahúsnæði og vera í sam-
vinnu við sérkennara. Uppiýsingar veitir Óskar Einars-
son skólastjóri í síma 568 0200 í skólanum og heima í
síma 554 3228.
Langholtsskóli.
Kennara vantar frá áramótum í sérkennslu og til að
kenna ensku á unglingastigi. Ennfremur nokkra tíma á
viku í bókasafnskennslu. Upplýsingar veitir Erna
Sveinbjarnardóttir skólastjóri í síma 553 3188 í skólan-
um og heima í síma 588 3585.
Selásskóli.
Sérkennara vantar frá áramótum. Einnig vantar um-
sjónarmann heilsdagsskóia frá áramótum. Starfið felst
í umsjón með gæslu 6-10 ára nemenda. Uppeldis-
menntun æskileg. Fullt starf. Einnig vantar stuðnings-
fulltrúa frá áramótum. Starfið er meðal annars fólgið í
að vera nemendum til aðstoðar, fylgja þeim um skóla-
húsnæði og vera í samvinnu við sérkennara. Uþplýs-
ingar veitir Hafsteinn Karlsson skólastjóri í síma 567
2600 í skólanum og heima í síma 557 8358.
Vesturhlíðarskóli.
Forstöðumaður óskast frá 6. janúar við Félagsmiðstöð
Vesturhlíðarskóla, sem er skóli fyrir heyrnarlaus og
heyrnarskert börn. Æskilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu á táknmáli og reynslu af því að vinna með
börnum og unglingum. Upplýsingar veitir skólastjóri,
Berglind Stefánsdóttir, í Vesturhlíðarskóla.
Ölduselsskóli.
Stuðningsfulltrúa vantar í hálft starf frá áramótum til
loka skólaárs. Starfið er meðal annars fólgið í að vera
nemendum til aðstoðar, fylgja þeim um skólahúsnæði
og vera í samvinnu við sérkennara. Upþlýsingar veitir
Reynir Daníel Gunnarsson skólastjóri í síma 557 5443
í skólanum og heima í síma 557 1880.