Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Side 11
.JOagur-ÍEtmmtt
Föstudagur 3. janúar 1997 -11
Kylfingar á höfuðborgar-
svæðinu geta vart kvart-
að ef tekið er mið af æf-
ingaaðstöðu vetrarmánaðanna.
Reyndar er það svo, að kylfing-
ar á þessu svæði geta oft á tíð-
um leikið golf yfir veturinn, en
það fer að sjálfsögðu eftir veðri
og vindum og er misjafnt milli
ára. Hinir ýmsu golfklúbbar
landsins hafa unnið að því að
skapa félögum sínum inniað-
stöðu yfir vetrarmánuðina og
lagt áherslu á gildi hreyfingar
fyrir kylfinga sem aðra íþrótta-
menn. Kylfingar á höfuðborgar-
svæðinu hafa um þrjá golf-
herma að velja. Fyrsti golf-
hermir landsins var settur upp í
Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og er
enn í fullu gildi. Næsti golf-
hermir var settur upp í Golf-
heimi sem í fyrstu var í Skeif-
unni, en er nú að Vatnagörðum
14 og loks er að geta golfherm-
isins sem er í Gullgolfi Sigurðar
Péturssonar við Guilinbrú.
Golfhermir á Akureyri
í haust er leið var settur upp
golfhermir á Akureyri og er
ekki að efa að sú uppsetning sé
akureyrskum kylfingum kær-
komin nýjung.
Eins og áður er getið er æf-
ingaaðstaða kylfinga ærið mis-.
jöfn hvað landshluta varðar.
Haustið hefur t.a.m. ekki verið
sem best fyrir kylfinga á suð-
vesturhorninu, en þeir eru van-
ir að stunda sitt vetrargolf
flesta mánuði ársins. Reyndar
hafa hátíðadagarnir undanfarið
gefið kylfingum ómæld tækifæri
til að viðra kylfurnar og hefur
mátt sjá ótrúlegan (jölda kylf-
inga á völlum „hornsins" und-
anfarna daga.
Golfmót á nýársdag
Golftíminn frétti af golfmóti á
nýársdag sem haldið var á
Korpúlfsstaðavelli, en þrátt fyr-
ir tilraunir tókst Golftímanum
ekki að fá nánari fréttir af úr-
slitum mótsins. Vegna þessa
ítrekar Golftíminn tilmæli sín
um fréttir af starfsemi hinna
ýmsu golfklúbba um land allt
og biður um gott samstarf.
Fyrsta golfsíðan
Þegar Golftíminn hóf göngu
sína sendi hann öllum golf-
klúbbum landsins bréf sem
skýrði frá tilurð síðunnar. Golf-
síða Dags-Tímans er sú fyrsta
sinnar tegundar í íslensku dag-
blaði. Umsjónarmaður bjóst við
því að forráðamenn golfklúbba
landsins mundu taka síðunni
fegins hendi og nota tækifærið
til að kynna starfsemi klúbb-
anna, úrslit móta o.s.frv.
Því miður hefur raunin orðið
önnur. Nokkrir golfklúbbar hafa
þó sent úrslit móta reglulega og
fréttir af gengi félaga innan-
lands og utan. í tilefni áramóta
vill Golftíminn sérstaklega
þakka Hildi Haraldsdóttur, frá-
farandi framkvæmdastjóra
Golfklúbbs Reykjavíkur, fyrir
samstarfið og Ágústi Húberts-
syni, framkvæmdastjóra Golf-
klúbbsins Keilis í Hafnarfirði.
Ennfremur vill Golftíminn
þakka Kjartani L. Pálssyni hjá
Samvinnuferðum Landsýn fyrir
gott samstarf og fréttasending-
ar.
Sendið golffréttir
Golftíminn hefur sitt eigið fax-
númer sem getið var um í fyrr-
nefndu bréfi. Faxnúmerið hefur
einnig verið birt af og til í Golf-
tímanum. Þrátt fyrir þetta hafa
forráðamenn ýmissa golfklúbba
ekki séð ástæðu til að senda
síðunni úrslit móta né fréttir af
starfsemi klúbba sinna. Golf-
tíminn veit af mönnum á laun-
um hjá golfklúbbum landsins,
mönnum sem haft hefur verið
samband við sérstaklega vegna
golfsins, sem hafa ekki séð
ástæðu til að senda síðunni ein-
földustu fréttir af gangi mála
hjá sínum klúbbi.
Golftíminn væntir þess að
nýtt ár veki forráðamenn golf-
klúbba landsins af værum
svefni og þeir noti tækifærið
sem býðst með þessari sérstöku
golfsíðu, þeirri fyrstu sinnar
tegundar í íslensku dagblaði, til
að koma golfíþróttinni á fram-
færi. Pá staðreynd má hafa í
huga, að golfíþróttin er að nálg-
ast annað sætið hvað varðar
fjölda iðkenda íþróttagreina á
landsvísu.
Golfið vinsælt
Þegar Golftíminn hóf göngu
sína, 5. júlí á sl. ári hafði hann
samband við Frímann Gunn-
laugsson framkvæmdastjóra
Golfsambands íslands. Þá sagði
Frímann frá því að fimmtugasti
golfklúbbur landsins hefði verið
tekinn inn í GSÍ á sexhundrað-
asta stjórnarfundi sambandsins
skömmu áður. Þessi staðreynd
segir mikið. Hún segir það með-
al annars að í golfíþróttinni er
meiri gróska en í nokkurri ann-
ari íþróttagrein sem stunduð er
í landinu.
Þrátt fyrir þær ásakanir sem
fram koma í þessu spjalli er
það von umsjónarmanns Golf-
tímans, að forráðamenn hinna
ýmsu golfklúbba landsins sjái
sér hag í að standa við hliðina á
honum.
Með ósk um gott og gæfuríkt
ár innan vallar sem utan. R.Lár.
(Golftíminn fax: 5576516)
nota hvert tækifæri sem býðst til að leika golf. Þar sem auðir golfvellir eru fyrir hendi má venjulega sjá kylfinga á
röltinu á eftir kúlunni, svo framarlega sem veður ieyfir. Flestir eru kylfingarnir að halda við heilsunni með þessum
gönguferðum, en finnst ekki verra að fá aukahreyfingu með því að sveifla kylfunni af og til.
Golftíminn sendir kylfingum bestu nýárskveðjur og vonar að árangur þeirra verði góður á komandi ári.
Hörkubarátta
/ púttmótinu
Verðlaunahafarnir í úrslitamótinu 29. desember sl. Talið frá vinstri. Kristján Ó. Jóhannesson sem hlaut önnur
verðlaun eftir bráðabana við Karl Hólm. Sigurvegarinn Ingi R. Gíslason er fyrir miðju á myndinni, en Karl Hólm er
lengst til hægri, en Karl hreppti þriðja sætið. (Gommamy„drl).
Eins og getið hefur verið
um hér í Golftímanum
hafa farið fram púttmót í
Golflieimi í allt haust, þar sem
keppt hefur verið um þátttöku-
rétt í úrslitamóti ársins. Mótin
hafa farið fram á sunnudögum
og hafa þrír efstu unnið sér rétt
til þátttöku í sjálfu úrslitamót-
inu sem fram fór 29. desember
síðastliðinn.
Leiknar voru tvær umferðir,
eða 36 holur. Sextán aðilar
höfðu unnið sér þátttökurétt og
léku tveir og tveir saman í úr-
slitakeppninni. Dregið var um
skipan þátttakenda í fyrri um-
ferð, en skor réði niðurröðun
seinni umferðar. Áhorfendur
fylgdust spenntir með keppn-
inni, enda var til mikils að
vinna. Fyrstu verðlaun voru
golfferð til írlands með Sam-
vinnuferðum Landsýn. Önnur
og þriðju verðlaun voru vegleg-
ar veitingar á Kaffi Óperu.
Nokkrir keppendur höfðu
verið á skorinu 32 til 34 eftir
fyrri umferð og komu því til
greina sem sigurvegarar. Jafet
Sigurðsson og Svanþór Þor-
björnsson voru á 32 höggum í
fyrri umferð, en Kristján Ó. Jó-
hannesson, Óskar Friðþjófsson
og Karl Hólm á 33.
Engum þessara keppenda
tókst að skora betur en Ingi R.
Gíslason hafði gert í seinni um-
ferð, en þá var hann á 30 högg-
um og samtals á 64. Ingi var
því sigurvegari mótsins á 64
höggum. Jafnir í öðru til þriðja
sæti urðu þeir Kristján og Karl,
en Kristján vann bráðabana um
annað sætið.
Ingi hlaut sem sagt utan-
landsferðina og var vel að sigr-
inum kominn.
Þess má geta að sunnu-
dagspúttmót Golfheims halda
áfram út veturinn.
Golfreglan
Ef bolti þinn lendir í
hliðarvatnstorfæru,
(rauðir hælar) máttu
leika eins og um vatnstor-
færu sé að ræða, eða láta
boltann falla innan tveggja
kylfulengda til hliðar við
þann stað sem hann fór
síðast yfir mörk hliðar-
vatnstorfærunnar, en ekki
nær holu.
Þú mátt láta boltann
falla hvorum megin hliðar-
vatnstorfærunnar sem þú
kýst, en ekki nær holu.