Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Qupperneq 4
4 - Laugardagur 25. janúar 1997
ÍDíujur-®tmím'i
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Útsala
áCandy
heimilistækjum
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr
Menningarsjóði skv. 1. gr. reglugerðar um sjóðinn
nr. 707/1994.
Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum
og/eða höfundum fjárhagslegan stuðning til útgáfu
þeirra bóka á íslenskri tungu, sem verða mega til efl-
ingar íslenskri menningu. Sérstök áhersla skal lögð á
að efla útgáfu fræðirita, handbóka, orðabóka og menn-
ingarsögulegra rita. Jafnframt getur sjóðurinn veitt fjár-
hagslegan stuðning annarri skyldri starfsemi s.s.
vegna hljóðbókagerðar.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum til
stjórnar Menningarsjóðs, menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 28. febrúar 1997.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðu-
neytisins.
Stjórn Menningarsjóðs.
AKUREYRARBÆR ||§f
FÉLAGS- OG FRÆÐSLUSVIÐ
Hjá Félags- og fræðslusviði Akureyrarbæjar eru
eftirtalin störf laus til umsóknar:
Hjá ráðgjafardeild:
Sálfræðingur, 70% stöðugildi
Óskað eftir ráðningu sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Verksviðið er greining og meðferð fatlaðra einstak-
linga, barna og fuliorðinna. Laun samkv. kjarasamningi
STAK og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Sigurðardóttir,
deildarstjóri ráðgjafardeildar í síma 460 1422.
Hjá Búsetu- og öldrunardeild:
Starfsmenn sambýlis fyrir
geðfatlaða
Um er að ræða ýmis störf í vaktavinnu við nýtt sam-
býli. Hlutastörf koma vel til greina. Reynsla af störfum
með geðfötluðum æskileg. Laun samvkæmt kjara-
samningi Einingar og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um störfin veitir Kristján Jósteinsson, for-
stöðumaður í síma 462 7995.
Umsjónarmaður félagslegrar
liðveislu - 50% stöðugildi
Starfsmann vantar til að hafa umsjón með félagslegri
liðveislu á vegum deildarinnar. Krafist er menntunar
eða góðrar reynslu á félags- eða uppeldissviði. Starfið
er að mestu unnið síðari hluta dags og að hluta utan
venjulegs vinnutíma.
Laun samkv. kjarasamningi StAK og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið veitir Björn Þórleifsson, deildar-
stjóri í síma 460 1410.
Einnig veitir starfsmannastjóri Akureyrarbæjar upplýs-
ingar um kaup og kjör í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð vegna allra starfanna fást í starfa-
mannadeild Akureyrarbæjar Geislagötu 9 og er um-
sóknarfrestur til 7. febrúar.
Starfsmannastjóri.
F R E T T I R
Stjómmál
Tekur Alþýðubanda-
lagið u-beygju?
Formaður Alþýðubanda-
lagsins boðaði breytta
stefnu í utanríkismálum á
miðstjórnarfundi flokksins
í gær. Hún segir stöðu ís-
lands gagnvart ESB óvið-
unandi í dag og telur
koma til greina að þing-
menn Alþýðubandalagsins
taki þátt í starfi NATO.
Ræða Margrétar Frí-
mannsdóttur, formanns
Alþýðubandalagsins, við
setningu miðstjórnarfundar
flokksins í gær, þykir sæta tíð-
indum, ekki síst það sem sagt
var um afstöðuna til Nato og
Evrópusambandsins. Hefur
boðskapur formannsins valdið
nokkrum titringi innan Alþýðu-
bandalagsins.
Þingmenn Alþýðubandalags-
ins greiddu atkvæði gegn EES
samningnum á sínum tíma og
aðild að ESB hefur flokkurinn
algjörlega hafnað. í ræðu sinni í
gær sagði Margrét hins vegar
að óhætt væri að fullyrða að
„aðildin að Evrópska efnhags-
svæðinu hefur fært okkur mun
styrkari Iöggjöf á ýmsum svið-
um er varða almannaheill, en
við bjuggumst við áður.“ Sem
dæmi nefndi hún lög um mat á
umhverfisáhrifum, lög um neyt-
endamál, vinnutíma og fleira og
bætti við: „Þá hefur samningur-
inn tryggt íslensku launafólki
frjálsan aðgang að vinnumark-
aði sambandsins og mennta-
stofnunum þess. Einnig má
nefna stefnumarkandi áherslur
í jafnréttis- og félagsmálum
sem fylgt hafa samningum. Það
er alveg ljóst að margt í þessum
lögum hefði ekki fengist sam-
þykkt af Alþingi án samnings
um Evrópska efnahagssvæðið.
Til þess hefðu vinstri menn
þurft að hafa mun sterkari
stöðu á þingi, en við höfum haft
undanfarin ár.“
Áhrifalaus fyrir utan
En EES-samningurinn er ekki
algóður, að mati formanns Al-
þýðubandalagsins. íslendingar
Aðalfundur
Kvenfélagsins
Framtíðarinnar
verður haldinn í Hlíð
mánudaginn 27. janúar
1997, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Framtíð félagsins rædd.
Áríðandi að konur mæti
vel og taki þátt í umræð-
um um þessi mál.
Kaffidrykkja.
Stjómarkjör.
Stjórnin.
hafa lítil sem engin áhrif á mót-
um laga og reglna ESB og fá
enga fjárhagslega aðstoð við að
koma þeim í framkvæmd. „ ís-
lendingar þurfa að skoða hvaða
leiðir eru færar út úr þeim
ógöngum, sem við höfum ratað
í. Hvort við getum með
einhverju móti styrkt stöðu okk-
ar gagnvart Evrópusambandinu
innan samningsins, hvort við
ættum að segja skilið við samn-
inginn, kanna möguleika á að-
ild að Evrópusambandinu eða
velja þá leið sem Alþýðubanda-
lagið hefur lagt áherslu á, að
gerður verði tvíhliða samning-
ur.“
Margét segist ekki vera að
boða það að sækja eigi um aðild
að ESB. „Nei, ekki miðað við
stöðuna í dag, en það er engin
lausn að segja bara, við viljum
ekki sækja um. Við verðum að
segja hvað við viljum í staðinn,
því sú staða sem við erum í
núna er algjörlega óviðunandi."
Alþýðubandalagið í
NATO?
Margrét varpaði líka í gær fram
spurningum um NATO, sem til
þessa hefur ekki þótt ástæða til
að spyrja í Alþýðubandalaginu.
„Höfum við trú á að Atlands-
hafsbandalagið geti breyst? Við
þurfum að ræða þessi mál og
taka afstöðu til þeirrar þróunar,
sem nú á sér stað. Meta á
hvern hátt við getum best barist
fyrir friði í heiminum. Gerum
við það með því að standa utan
allrar starfsemi Nato eða eigum
við að taka þátt í einhverjum
hluta starfseminnar og reyna
að koma okkar áherslum og
sjónarmiðum á framfæri þar?
Þetta þarf að ræða af hrein-
skilni. Meðal annars hvort við
eigum að senda þingmenn okk-
ar á þingmannafundi NATO og
taka þátt í samstarfi þjóða í
Jón Gnarr og Sigurjón Kjart-
ansson, þekktir sem Tví-
höfði, hafa verið ráðnir til
að sjá um þáttagerð á Stöð 3.
Þetta staðfesti Magnús Kjart-
ansson sjónvarpsstjóri í samtali
við Dag-Tímann í gær. Hann
sagði enga ákvörðun hafa verið
tekna um hvenær þáttur þeirra
þágu friðar."
Einkavæðing
ekki alvond
Vinstri flokkar hafa löngum
gert mikið úr hlutverki ríkisins,
en einnig þar boðar Margrét
breytingar. „Ég tel nauðsynlegt
að fram fari uppstokkun á rík-
iskerfinu öllu. Það verði gert
með það að markmiði að efla
velferðarkerílð. Hlutverk ríkis-
ins er ekki endilega það að vera
í atvinnurekstri, sem á breytt-
um tímum er eins vel komin hjá
öðrum; sveitarfélögum, félags-
samtökum eða einkaaðilum.
Síst af öllu á að taka inn ný
verkefni, sem ekki er samstaða
um að greiða skuli úr sameigin-
legum sjóðum landsmanna.
... í mínum huga er ekki vafi
hvert er hlutverk rfldsins. Það
er að tryggja hér sem bestan
samfélagslega jöfnuð. Tryggja
öflugt kerfi velferðar. Tryggja
jafnan rétt íbúa landsins til
menntunar og heilbrigðisþjón-
ustu... Þetta verkefni er illfram-
kvæmanlegt nema að undan-
genginni uppstokkun í rík-
isrekstri og nýrri forgangsröð-
un verkefna."
Margrét segist sannfærð um
að skoðanir hennar njóti mikils
fylgis innan Alþýðubandalags-
ins. Það er hins vegar jafnljóst
að andstaðan er einnig mikil.
Verði boðskapur hennar ofan á
er ljóst að bilið milli Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks hef-
ur minnkað og lflcur á margum-
ræddri samfylkingu á vinstri
væng væntanlega þar með auk-
ist. Spurning er hins vegar -
eins og einn viðmælandi Dags
Tímans orðaði það í gær, hvort
þau sögulegu tímamót í ís-
lenskri pólitík eru framundan -
að krötum takist að kljúfa
kommana en ekki öfugt, eins og
oftast hefur verið raunin. -vj
færi í loftið og vildi ekki segja
hvort um fasta stöðu væri að
ræða.
Hvað annan nýjan mannafla
varðar, upplýsti Magnús að
Bjarni Kristjánsson sem
starfaði sem sjálfstæður ráð-
gjafi, væri nú að störfum fyrir
stöðina. BÞ
Margrét Frímannsdóttir á tali við Flosa Eiríksson, Gróskumann á
miðstjórnarfundinum í gær. Mynd: Hilmar
Fjölmiðlar
Tvíhöfðiim til Stöðvar 3