Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Page 8
8 - Laugardagur 25. janúar 1997 §m PJOÐMAL iDagur-®mmm ;||*|||l||gi iDaqur-Stmtmt Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 563 1600 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639 Reykingar - enn r í fyrsta lagi „Ofsóknum“ gegn reykingafólki má ekki linna. Það er sér- stakt fagnaðarefni að heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja stórauknu fé til tóbaksvarna. Samkvæmt könnun reykir næstum fjórði hver unglingur á aldrinum 12-16 ára. Þetta er óhugnanlegt. Það er gott að með auknu fé skuli sett markmið: að ná þessu háa hlutfalli niður sem um munar, niður í sex prósent. Staðreyndin er sú að tóbaksvarnir hafa brugðist að miklu leyti. Staðreyndin er hka sú að hvers kyns „átök“ af þessu tagi ienda að stórum hluta í klóm auglýsinga“sérfræðinga“ sem maka krókinn á „herferð" sem engu skilar nema sjálfsánægju yfir því að hafa „gert eitthvað." Nýja tóbaksvarnarátakið má ekki renna út í þann sand. „Ofsóknir" gegn reykingamönnum - sem þeir kalla sjálfir - felast í því að hinn reyklausi meirihluti fái sinn eðlilega og sjálfssagða rétt. Rétt til að vera reyklaus. Málið er ekki flóknara en það að reykingar spilla heilsu allra sem ná- lægt koma. Beint og óbeint. Reykingar stafa ekki af van- þekkingu á óhollum áhrifum. Fræðsla um það efni hefur ekki skilað árangri. Er ekki vænlegra að úthýsa reyking- um hvar sem fleiri en einn koma saman? Nema á afmörk- uðum básum sem hafa þá furðulegu náttúru að verða við- urstyggilegir um leið! Á að verðlauna starfsfólk fyrir að reykja ekki, til dæmis með auka-frídögum? Guðbrandur Sigurðsson forstjórl ÚA Mér finnst svo sjálfsagt að fólk reyki ekki að það þarf ekki að veita því frídaga. Þetta fólk verðlaunar sig í reynd sjálft.“ Magnús L. Sveinsson formaður Verslun- armfélags Reykjavíkur Þetta er athyglis- verð hugmynd, en það væri snúið að koma henni í fram- kvæmd til dæmis hvað varðar viðmiðanir um hvað frídagarnir ættu að vera margir hjá þeim sem ekki reykja." Ellert B. Schram forseti ÍSÍ Mér finnst það al- veg ástæðulaust vegna þess að það á að vera sjálfsagð- ur hlutur að fólk reyki ekki á vinnustað. Það á ekki að verðlauna fólk fyrir reglusemi - því fólkið er að verðlauna sig sjálft með hollum lífsháttum og jafnvel lengri ævi.“ Gunnar Ingi Gunnarsson heilsugœslulœknir Það þætti sérkenni- legt ef fólk færi út í horn til að anda að sér fersku lofti eða lykta af blómi. En reykinga- fólki hefur aftur á móti verið gefinn kostur á sér- stökum hvíldartímum. Mér finnst engin ástæða til að verðlauna fólk fyrir að fara vel með heilsu sína - og heldur engin ástasða til að gefa fólki kost á sérstökum fríum til að reykja og fara illa með sig. Þannig jafnast dæmið út.“ í þriðja lagi Hér er hvatt til þess að reykingar verði ekki liðnar á al- mannafæri, á samkomustöðum, opinberum byggingum, biðsölum og annars staðar sem allur þorri fólks á leið um. Reyklausir eru hvattir til að krefjast réttar síns. Yfirvöld eru hvött til að kynna öllum þennan rétt, og fylgja þeirri kynningu eftir. Hér er dæmi: í afgreiðslu Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli þurfa allir, starfsmenn og farþegar, að ganga gegnum reykský frá veitingastofu, og standa í því meðan miðar eru afgreiddir. Reyklausir mega svo ílýja út í hliðarsali til að draga andann. Næst þegar Ingibjörg Pálmadóttir fer í flug er hún hvött til að kreijast réttar síns og okkar hinna. Gangi henni vel. Stefán Jón Hafstein. Það er nú það... „Beinþynning veldur færri brot- um“ - fyrirsögn í Mogganum í gær. Maður hafði haldið að beinþynning ylli fieiri beinbrotum. Svona eiga sýslumenn að vera! „Ég fékk fyrirspurnir um dán- arbúið frá Guðmundu (Elías- dóttur, söngkonu) og ég rak á eftir fulltrúa mínum að klára það. Hann virðist ekki hafa gert það og ég get ekki annað en vísað á hann...“ - sýslumaður þeirra Akurnesinga í vanda, þegar blaðamaður DV spyr hann hvers vegna ekkert hefur gerst í að gera upp dánarbú Sverris heitins Kristinssonar í 21 ár! Ráðherra hajði rangt Jyrir sér „Það er ljóst að ráðherra mun gefa út nýja reglugerð og viður- kenna að hann hafði rangt fyrir sér,“ - segir Hjörleifur Guttormsson al- þingismaður í samtali við Vikublaðið. ilann segir umhveriisráðherra hafa gengið gegn lögum með reglugerð sinni. Rósa og sálin hans Jóns „Já, ég hef geypilega gaman af verkinu því við kerlingin eigum það sameiginlegt að við erum að standa vörð um sálarheill karlmannsins," - segir Rósa leikkona og grafíklista- kona Ingólfsdóttir, útvörður ís- lenskra, undirokaðra karimanna, í Degi-Tímanum í gær. Hún leikur kerlinguna í Gullna hliðinu í Kópa- vogsleikhúsinu, og kemur sálinni hans Jóns síns inn fyrir hliðið. Djöfullinn danskur Stundum heldur fólk að sjálfstæði þjóða sé fólgið í þjóðsöng og eig- in fána, Alþingi og Hæstarétti. Svo einfalt er það nú ekki. Jafnvel kosningaréttur gerir menn ekki frjálsa nema meira komi til. íslend- ingar stigu ekki fyrstu skrefin til sjálf- stæðis fyrr en þeir hófu að versla upp á eigin spýtur í byrjun aldarinnar og stofnuðu eigið skipafélag. Stór hluti verslunar á fslandi er samt ennþá í hers höndum bæði hér á landi og er- lendis. Stjórnvöld trúa enn blint á rík- iseinkasölur og annars konar einok- unarverslun að dönskum hætti. Enda taka margir íslendingar ríkið fram yf- ir fólkið að sovéskri fyrirmynd. En það er nú önnur saga. Bæði innflutningur og útflutningur hafa gengið upp og niður í áranna rás og stórkaupmenn orðið að þræða sína Krýsuvíkurleið til og frá landinu. Ot- flutningnum tókst aldrei að skera á naflastreng hins opinbera og hefur notið handleiðslu stóra bróður í við- skiptum eins og þegar skátadrengur leiðir eldri konu yfir umferðargötu. Fyrir bragðið hefur útflutningur landsmanna ekki náð að skila þeim tekjum sem innflutningurinn þarf til að borga niður frelsið. En útflutning- urinn er ekki einn um að taka á sig krók til Krýsuvíkur. íslendingar hafa löngum litið Dani hornauga eftir ára- langa sambúð hús- bænda og hjúa. Sumir segja að hallir Kaupmanna- hafnar séu reistar fyrir íslenska salt- fiskpeninga þó aðrir segi að tugthusið á Brimarhólmi hafi verið helsta mið- stöð landsmanna á þeim tíma. Eitt er þó víst. Hafi Danir hlunnfarið íslend- inga á dögum einokunarverslunar lauk þeim snúningi ekki við heima- stjórn eða stofnun Eimskipafélags ís- lands. Hvað þá í byrjun desember 1918 eða um miðjan júni 1944. Með innlendri verslun hófst arðrán Dana fyrir alvöru. Allt fram á þennan dag hafa danskir stórkaupmenn selt bæði vör- ur og þjónustu frá öðrum löndum til íslands. Landið hefur alltaf þótt of lítil eining til að geta risið undir sjálfstæð- um efnahag og er ennþá víða flokkað SftanneA með Færeyjum °g CUgevt Grænlandi undir Danmörku í við- skiptum. Meðalgöngu Dana í innflutn- ingi lauk því ekki þegar íslendingar stofnuðu lýðveldið við Öxará og skutu upp fána undir skærum lúðrahljómi. Miklu frekar festist hún í sessi eftir því sem íslenskri verslun óx fiskur um hrygg og danskir milliliðir hafa ennþá bæði tögl og hagldir í innflutningi á ýmsum nauðsynjavörum til landsins. Taka sinn hlut óskiptan fyrir um- stangið og engar refjar. Fyrir bragðið er verð á þessum vörum miklu hærra hér á landi en þarf að vera ef rétt er á spilum hald- ið. Vitaskuld er það fyrir neðan allar hellur að gömul nýlendusjónarmið ráði ennþá verði á lífsnauðsynjum handa íslendingum. En íslendingar verða aldrei A þjóð í viðskiptum og stjórnmálum heimsins fyrr en inn- flutningurinn kemur heim frá Kaup- mannahöfn eins og handritin. fslenskir stórkaupmenn verða fyrr en síðar að leiða umboðsmenn sína í Kaupmannahöfn í allan sannleika um stofnim lýðveldisins árið 1944 og senda þeim sáttmálann frá Þingvöll- um í danskri þýðingu ásamt nýlegri ljósmynd af forsætisráðherra þjóðar- innar.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.