Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Qupperneq 8
8 - Miðvikudagur 29. janúar 1997
1®agra:-®tmímt
PJÓÐMÁL
3Danur'®ímímt
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 563 1600
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverö ' kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Tíkall
í fyrsta lagi
Davíð Oddsson forsætisráðherra úttalaði sig um
kjaramálin í ítarlegu blaðaviðtali um helgina. „Það
er ...sama á hvaða mælikvarða er litið - möguleik-
arnir á þessu ári og hinu næsta eru gífurlegir“.
Forsætisráðherra átti við 3% kaupmáttaraukningu
á þessu ári, eins og Vinnuveitendasambandið hef-
ur boðið. „Það gerir 10 kall á tímann,“ sagði for-
seti ASÍ í kvöldfréttum sama kvöld. Hljómar það
eins og þessir tveir forystumenn í samfélaginu
muni ná saman áður en kemur til átaka á vinnu-
markaði? Nei.
í öðru lagi
"A
Forsætisráðherra bendir á íjölmargar hagstærðir
sem sýna hve vel íslenska efnahagslöið er á sig
komið. Hann bendir á 12% kaupmáttaraukningu á
undanfórnum íjórum árum. Og að hún geti orðið
8-10% til viðbótar á næstu árum. „Ekkert skeið í
íslandssögunni...sýni aðra eins kaupmáttaraukn-
ingu“. Vandamálið er hins vegar að prósentuaukn-
ingin kemur ofan á það sem er nánast ekki neitt í
upphafl. 50 þúsund króna laun, svo dæmi sé tekið.
Þá erum við að tala um tíkalla. Og allir vita hvað
fæst fyrir þá.
í þriðja lagi
Krafan um verulega hækkun lægstu launa, úr 50 í
70 þúsund krónur á mánuði, setur mark sitt á alia
umræðu um kjaramál nú. í tveggja síðna stórvið-
tah við blað allra landsmanna minnist forsætisráð-
herra ekki á þessa mikilvægu hlið samningamál-
anna. Hann segir hins vegar að verkalýðsleiðtogar
bregðist trausti umbjóðenda sinna með því að
„tala sig í verkföll". Með sömu röksemd má segja
að hann sé að þegja sig í átök. Möguleikarnir sem
láglaunafólk sér í tíköllum eru nefnilega ekki „gíf-
urlegir“. Þeir eru smánarlegir, og forsætisráðherra
er að bregðast trausti umbjóðenda sinna með því
að láta eins og láglaunafólk verðskuldi engin svör.
V
Stefán Jón Hafstein.
_______________________J
SpuHitutg, dctg^utó
Er komin upp óeðlileg einokun í skipa-
flutningum til landsins?
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
alþingismaður
Þjóðvaka
Já, ég myndi segja það
og fákeppni, bæði í
flugi og skipa-
samgöngum veldur því að
þjónustan er dýrari en
eðlilegt mætti teljast. Þetta
er tvímælalaust óeðlilegt
ástand.
Magnús
Stefánsson
alþingismaður
Framsóknarflokks
S
Eg vil ekki kveða upp
úr með hvort svo sé,
hins vegar tel ég að
fákeppni á þessu sviði sé
varasöm. Aðilar hafa þó
fært rök fyrir þessu á þann
veg að flutningar til lands-
ins séu betur tryggðir og
verði hagkvæmari fyrir
vikið.
♦
Benedikt
Kristjánsson
formaður
Kaupmanna-
samtakanna
Ja, ég held að það sé
vissulega ástæða til að
hafa áhyggjur af því
og þá vísa ég til þess sem
nýlega hefur verið að ger-
ast milli Samskipa og Eim-
skips. Ég tel rétt að Sam-
keppnisstofnun skoði vand-
lega hvort hætta sé á því
að upp komi einokunar-
staða.
Þórður
Sverrisson
frkvstj.
flutningasviðs
Bimskips
Nei, alls ekki. Sigling-
ar til og frá Evrópu
eru óbreyttar hvað
sem líður flutningasam-
starfi skipafélaganna um
siglingar milli fslands og
Norður-Amerfku. Mikið
óhagræði hefur verið í
Ameríkusiglingum og er
það þekkt víða erlendis að
skipafélög geri með sér
samkomulag þegar svo er.
Bæði fólögin munu áfram
stunda sjálfstæða sölu- og
markaðssetningu á mark-
aðnum.
Sagtuafí^
Skipbrot til vinstri
„Það sem vekur athygli í þess-
ari umræðu allri er að samfylk-
ingaráformin virðast engu hafa
breytt um hugmyndafræðilegt
skipbrot vinstri flokkanna. Þar
sem áður var talað um hugsjón-
ir er nú einvörðungu fjallað um
framboðstæknileg atriði.“
- Þorsteinn Pálsson í Mbl. í gær.
Nýju fötin keisarans
„Það sem einkennir þessa ver-
öld braskaranna er að ekki má
benda á misfellurnar því þá
missa pappírarnir verðgildið.
Allt byggist á sýndarveruleika
sem er meira í ætt við ævintýrið
um nýju fötin keisarans en
raunveruleg viðskipti."
- Ástþór Magnússon í DV í gær.
Blinda augað
„Það leysir ekki málið að for-
sætisráðherra setji kíkinn á
blinda augað og þykist hvorki
sjá fátækt eða atvinnuleysi."
- Sigurður T. Sigurðsson í Mbl. í gær.
Undirmálsmaður
„Á mánudagsmorgun hlustaði
ég á viðtal í útvarpi við um-
hverfisráðherra sem gekk að
því vísu að fréttamaðurinn væri
undirmálsmaður. “
- Sigríður Halldórsdóttir í DV í gær.
Léttvœgt Síðamúlafangelsi
„Það er því létt verk að rífa
fangelsið, en það er ekki mikið
sem hægt er að nýta.“
- Bergþór Jónsson í Mbl. í gær.
Fínir kynórar og ófínir
Kyntákn er titill sem notaður er í
æ ríkara mæli um karlmenn
sem konur telja hentuga til að
svala kynferðislegum þörfum sínum.
Varla þarf að taka fram að tæpast eru
aðrir karlar sexí en þeir sem meika
það og taka sig út í sviðsljósi fjölmiðl-
anna. í anda samkeppninnar er sjálf-
sagt að fram fari mat á kynþokka karl-
anna. Eðlilega er það hlutverk Ríkisút-
varpsins að sinna því menningarhlut-
verki, að fá úr því skorið hvaða karlar
eru taldir æskilegastir bólfélagar fóst-
urlandins Freyju.
Hljóðvarpið reið á vaðið og efndi til
æsilegrar keppni um hvaða kroppa
konur landsins vildu helst armi nettum
spenna. Átta símalínur glóðu í sjö
klukkustundir og dugði ekki til, slík
var áfergjan að komast að til að velja
kyntröllið sitt.
Eftirleikurinn var eðlilega sá að
starfskraftar rflcisins íjölluðu um úr-
slitin með frygðarglampa í augum og
þótti engum mikið.
Spurning um orðalag
Allt er þetta gott og blessað og er nú
hægt með óyggjandi vissu að setja í
gagnabanka upplýsingaþjóðfélagsins
hvaða kappar eru kynþokkafyllstir
þessi misserin. En hvar er jafnréttið í
svona málum? Karlar eiga þess ekki
kost að kjósa þá nafnkenndu konu sem
flesta þeirra langar mest upp á. Ef
þetta orðalag þýðir
eitthvað annað en að
kjósa kynþokka-
fyllstu konuna, skipt-
ir það ekki minnsta
máli, því hugsunin
er sú sama.
Hins vegar þykja
kynórar og kynferðislegar þarfir karla
svo miklu ófínni og ruddalegri, en
samsvarandi hræringar í heiladingli og
líkamsvessum hins frjálslynda kyns.
Það sannaði Ríkisútvarpið rækilega
þegar það fletti ofan af þeirri óttalegu
ónáttúru karlaskammanna, að hrífast
að því að horfa á stelpur bera sig í þar
til gerðum búllum.
Að pervertunum þyki kanadísku
strippurnar kynþokkafullar, er svo al-
varlegt mál, að fréttastofur ríkisins
gerðu vandaðar úttektir á málunum
fyrr í vetur og hið háa Alþingi fjallaði
um málið af siðferðilegum alvöru-
þunga og heimtaði rannsókn og bann.
Fréttakonur og þingkonur heimtuðu
að fá að vita hvað hér byggi undir.
Máhð kvað enn vera
í rannsókn.
í fyrra og hitteðfyrra
sýndu sjónvörpin
enn og aftur konur
liggja undir og káfa
á berum strákum á
skemmtistöðum,
sem yfirleitt voru bannaðir öðrum
karlmönnum. Þá blundaði siðgæðiseft-
irlit ríkisupplýsingarinnar og hneyksl-
unardeild Alþingis átti fullt í fangi með
að h'ta fram hjá eigin kjarabótum.
Jafnrétti óþarft
Flest af því sem vekur og eflir kynhvöt
karldýrsins er skilgreint sem klám, en
konur fyllast ástarþrá, sem er pen og
eðlUeg. Að horfa á strák og dást að
honum, er fallegt, en að glápa á stelpu
og láta sig langa, er ljótt. Svona einfalt
er það. Satt best að segja er dýrmætt
að til skuli ríkisapparat, eins og út-
varpið, sem kann skil á góðu og iUu, og
varar við ljótri áráttu strákanna, en
leysir ástarþrá stúlkanna úr læðingi.
Af sjálfu leiðir að hér þarf ekkert
jafnrétti. Ef karlar eiga að fara að ryðj-
ast inn á símah'nur ríkisupplýsingar-
innar til að útlista hvaða fréttakonur
og þulur, eða listakonur þeir vfidu helst
svala fýsnum sínum á, verður það
aldrei annað en ruddalegur dónaskap-
ur. Öðru máli gegnir um hvaða frétta-
menn, íþróttahetjur og leikara konur
vildu helst hafa á milli hnékollana. Það
er heilbrigð og eðlileg kynfýsn.
Vonandi fer Alþingi ekkert að skipta
sér af þessu framtaki Ríkisútvarpsins
því aldrei er að vita hvaða klám kynni
að hrjóta þar um sali ef fara ætti að
fjalla um kynóra kvenna. Nóg er af
óuppgerðum vandamálum samt. OÓ
Oddur