Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.03.1997, Side 1
Jlcigur-^Iímtmx
LÍFIÐ í LANDINU
Miðvikudagur 19. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 54. tölublað
Á SKÓLABEKK HTÁ
BANDARÍKIAFORSETA
Afburðanemendurnir Hafsteinn Þór Hauks-
son, Verzlunarskóla íslands, og Ingvar
Hjálmarsson, Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
hafa dottið í lukkupottinn. Þeir fara íferða-
lag til Bandaríkjanna og setjast íKennslu-
stofu forseta Bandaríkjanna, „Presidential
Classroom" í viku. Þetta er íJyrsta sinn sem
íslenskir nemendur setjast á skólabekk hjá
Bandaríkjaforseta.
Hafsteinn Þór Hauksson er fulltrúi Verzlunarskóla íslands á vikunámskeiði
hjá Kennslustofu forseta Bandaríkjanna en námskeiðin þar eru ætluð af-
burðagóðu námsfólki. Hann segist lítið vera farinn að undirbúa sig en þó
aðeins. Mynd: Hilmar Bragi
Hafsteinn Þór Hauksson
og Ingvar Hjálmarsson
fljúga til Baltimore í
Bandaríkjunum á föstudaginn
og svo áfram til Washington DC
en þar munu þeir setjast á
skólabekk með um 400 öðrum
nemendum frá 30 þjóðríkjum
og stúdera stjórnsýslufræði í
eina viku. Þeir gista á flottasta
hótelinu í bæninn, leiða „ís-
lenska" sendinefnd og fara í
skipulagðar menningarferðir
þar sem þeir fá allan fróðleik á
silfurfati beint frá fínustu kenn-
urunum í Bandaríkjunum.
Hjálmar Árnason, þingmað-
ur og skólamaður, var á ferð í
Bandaríkjunum fyrir nokkru og
kynntist þar fólki frá „Pre-
sidential Classroom". Hann
kynnti starfsemina fyrir Vil-
hjálmi Egilssyni, framkvæmda-
stjóra Verslunarráðs og þing-
manni, og í sameiningu ákváðu
þeir að fá skólameistara tveggja
skófa, Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og Verzlunarskóla ís-
lands, til að velja tvo nemendur
í fyrstu ferðina.
Valið var í höndum
skólans
Hafsteinn og Ingvar urðu fyrir
valinu enda eiga þeir það sam-
eiginlegt að vera báðir miklir
áhugamenn um stjórnsýslu,
stjórnmál og stjórnmálafræði.
Hafsteinn er á hagfræði- og
stærðfræðisviðinu í VÍ en Ingvar
er á náttúrufræðibraut og einu
ári á undan í skóla. Hann er 18
ára gamall og stefnir að því að
ljúka stúdentsprófi á þremur og
hálfu ári um næstu áramót.
Ingvar er einmitt sonur
Hjálmars Árnasonar og er hann
pínulítið viðkvæmur fyrir þeirri
staðreynd og talsvert í mun að
taka fram að það sé ekki þess
vegna sem hann hafi orðið fyrir
valinu. Valið hafi alfarið verið í
höndum skólans.
„Skólameistarinn gekk á
enskukennarana og aðra kenn-
ara, að ég held, og þeir komu
með uppástungur. Ég held að
mitt nafn hafi oftast komið upp.
Þannig var þetta,“ segir Ingvar
og kveðst vera mjög ánægður
og farinn að hlakka til fararinn-
ar. „Maður er að fylgjast vel
með fréttum og skoða internet-
ið til að undirbúa sig. Þeir
ráðleggja manni að undirbúa
sig þannig og koma kannski
með einhverjar spurningar,"
segir hann.
Sleppir ekki tækifær-
inu
„Skólastjórinn talaði við mig á
föstudaginn fyrir rúmri viku og
spurði hvort ég vUdi fara, það
var ekkert flóknara en það. Ég
fékk engar nákvæmar skýring-
ar á því,“ segir Hafsteinn Þór
Hauksson, þar sem hann er í
frímínútum í skólanum. Hann
kveðst ekki vera farinn að und-
irbúa sig af miklum móði því að
kosningar séu í algleymingi í
skólanum „en svona...aðeins.“
Hafsteinn Þór fékk að hugsa
sig um í einn dag en ákvað svo
að slá til. Hann segir að þetta
hafi komið á óvart og það hafi
ekki verið erfitt að gera upp
hug sinn, „þetta er tækifæri
sem maður sleppir ekki,“ segir
hann. Hafsteinn Þór er 18 ára,
á hagfræði- og stærðfræðideild í
Verzlunarskólanum og útskrif-
ast með stúdentspróf vorið
1998. Hann segist ekki vera
dómbær á það hvort hann sé
afburðanemandi en það sé al-
veg ljóst að hann sé ekki
með tíu í öllum fögum.
Kennsla frá CIA
og Hvíta húsinu
Markmið Kennslustofu
Bandaríkjaforseta er að
kenna málefnalega og
lýðræðislega hugsun og
verða kennararnir frá
ýmsum helstu stofnun-
um Bandaríkjanna á
sviði stjórn-, dóms,
efnahags-, mennta- og
öryggismála auk fjöl-
miðla og erlendra
sendiráða. Þannig má
nefna Ifvíta húsið,
Bandaríkjaþing, Geim-
ferðastofnun Banda-
ríkjanna, NASA, Wash-
ington Post og Heims-
bankann auk þess sem
eitt námskeið verður
hjá CIA.
Námið fer meðal
annars fram undir yfir-
skriftinni „Future World Lea-
ders’ Summit" eða leiðtoga-
fundur framtíðarinnar þar sem
íslensku félagarnir tveir leiða
20-30 manna „íslenska" sendi-
nefnd sem að öðru leyti mun
samanstanda af bandarískum
og kanadískum krökkum.
Sendinefndin á að gæta hags-
muna íslendinga í þykjó og
leysa ýmis verkefni í því sam-
bandi. „Þetta verða eiginlega
mini Sameinuðu þjóðirnar. Það
er mjög áhugavert,“ segir Ing-
var.
„Ég ætla bara að reyna að
fræðast um það sem þeir geta
frætt mig um,“ segir Hafsteinn.
Hvatning í
skólakerfinu
Dagskráin mun standa alla vik-
una frá átta á morgnana til tíu
á kvöldin og koma skoðanaferð-
ir þar inn í, til dæmis í Smith-
sonian safnið, þannig að enginn
tími fer til spillis. Þetta verður
líka menningarferð og verða
þeir félagarnir sjálfsagt dauð-
þreyttir þegar þeir koma heim
á páskadag. Éf vel tekst til
verður ‘hugsanlega farið að
senda nemendur í svona ferð á
hverju ári þannig að það virki
sem hvatning í skólakerfinu.
Foreldrar Hafsteins eru
Ilaukur Ragnar Hauksson
kennari og Rannveig Ilafsteins-
dóttir húsmóðir og er hann al-
inn upp x Garðabæ.
Kennslustofa Bandaríkjafor-
seta hefur verið starfrækt frá
árinu 1968 og eru námskeiðin
afar virt fyrir víðtæka þekkingu
og næma innsýn sem þau veita í
lýðræðislega stefnumótun og
ákvarðanatöku svo og alþjóðleg
samskipti og samningatækni.
Markmiðið er að þroska getu og
hæfileika ungs fólks á sviði
stjórnmála og alþjóðlegra sam-
skipta og eru námskeiðin afar
eftirsótt og ætluð afburðafólki.
Nemendur eru á aldrinum 16
til 18 ára. -GHS
- Hjálmarsson ., ,nl.W