Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 5
LISTIR Laugardagur 22. mars 1997 -17 Nœsta miðvikudag frumsýnir Hugleikur nýtt íslenskt verk eftir átta höfunda. Nefnist verkið Embœttismannahvörfin. Þetta er nokkurs konar nútíma þjóðsaga en það hef- ur löngum verið siður Hugleiks að tefla sam- an nútímanum og menningararfinum á sér- stakan hátt. Á æfingu. Embættismannahvörfin verða frumsýnd í Tjarnarbíói á miðviku- daginn. Hvörfm gerist á Korpúlfs- stöðum, fornfrægu kúa- búi, en embættismenn borgarinnar sem eiga þangað erindi hafa horilð sporlaust. Þeirra leitar nú Friðþjófur sem er nokkurs konar sonur karls og kerlingar að sögn höfunda og verður margs vísari við leit- ina en ílnnur auðvitað allt ann- að en hann leitar að. Þetta er þrettánda starfsár Hugleiks og hefur félagið alltaf lagt metnað sinn í að flytja að- eins ný íslensk verk, að jafnaði eftir meðlimi félagsins. Aldrei fyrr hefur höf- undahópurinn þó talið átta manns eins og nú. Var vinnandi vegur að semja heildstætt verk í átta manna hópi? „Ef allt væri með felldu væri það ekki hægt, það er viðtekin skoðun að höf- undastarf fari fram í hausnum á fólki og því tæpast hægt að koma þeirri hugmynd heim og saman við vinnu þar sem átta ólíkir haus- ar eiga í hlut. - En við erum auðvitað búin að afsanna þetta,“ segir Þorgeir Tryggva- son og Fríða B. Andersen bætir við: „Þetta var skemmtileg vinna og tókst ótrúlega vel enda þótt það sé mjög einstaklings- bundið hvernig menn vilja tjá sig. Við töluðum mikið um efnið í byrjun og bjuggum þannig til persónurnar og atburðarásina og skiptum síðan liði þegar kom að fyrstu skrifum." Aldrei hættuleg rifrildi Var jafnrœði eða ríktu frekjur? „Sumir voru kannski dug- legri við að koma sínu á fram- færi en það fengu allir að eiga sitt orð. Ég hef t.d. ekki mikla reynslu af því að skrifa leik- rit en hef gaman af að skrifa sögur, - en mín sterka hlið er ekki að skrifa samtöl. Þar voru aðrir flinkari og ég held að fleiri haíi íljótlega fundið fyrir þessari ósjálf- ráðu verka- skiptingu," segir Fríða. „Vinnan var skemmti- leg og gekk furðuvel," segir Unnur Guttormsdóttir. „Og höfundarn- ir voru í raun níu en ekki átta. Við fengum inni í húsi Jóhann- esar úr Kötlum í Hveragerði og lukum þar við verkið. Jóhannes var með okkur allan tímann, við fundum mjög greinilega fyr- ir návistinni." En var ekki rifist? „Júhú, við rifumst alveg fram á lokafrágang og mest þegar var verið að stytta og samræma stfl. - Þetta var samt aldrei neitt ægilegt," segir Þorgeir. „Ég man ekki eftir mikilli heift en geri mér reyndar far um að muna bara það skemmtilega", segir Fríða. Var erfitt að koma bröndur- unum sínum í gegn? „Við höfum reyndar mjög ólíkan grínstfl en ætli grínið sé ekki bara betra þegar það er búið að fara í gegnum svona margar síur. Annars vitum við ekkert um það, brandari er náttúrulega bara brandari ef einhver hlær. Sumir í hópnum leggja mikið upp úr orðaleikj- um og tungumálabrellum, þarna eru líka höfundar sem búa til fyndar persónulýsingar og einnig eru sjónrænir brand- arar sem er kannski nýtt hjá Hugleik." „Varir mínar eru síld“ Höfundarnir koma að sýningum Embættismannahvarfanna með ýmsum hætti. Þorgeir er í hljómsveitinni og Unnur og Fríða leika. Fríða: „Ég leik embættis- mann sem heitir Petrína Maack, hún sér engin frávik í lífinu og er snobbuð og á kafi í nafnalögunum. Ég hef einmitt sjálf lent á svona kellingu, þeg- ar ég sótti um íslenskan rflds- borgararétt.“ Unnur: „Ég leik vestur- heimska konu sem álpast til ís- lands með vinkonu sinni. Hún er afar hjálpsöm og finnst gam- an að snúast í kringum karl- mennina og reynir að notfæra sér það hvað þeir eru oft hjálp- arvana. Hún talar líka skemmtilega og lofar því að varir hennar séu sfld og svo- leiðis." Það er alltaf sungið hjá Hug- leik... „Já, það er mikill söngur og við vöknuðum eiginlega upp við vondan draum þegar við sáum að þetta var að verða söngleik- ur. Ætli séu ekki þrettán söng- Kór Leikfélags Akureyrar Kossar og kúlissur Samkomuhúsið 90 ára Söngur, gleði gaman Laugard. 22. mars kl. 20.00. Siðasta sýning Athugið breyttan sýningartíma. Afmælistilboð Miðaverð 1500 krónur. Börn yngri en 14 óra 750 krónur. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánud. kl. 13.00-17.00 og fram að sýningu sýningardaga. Simsvari allan sólarhringinn. Simi í miðasölu: 462 1400. |Dagur-<QIímtmt - besti tími dagsins! og dansnúmer." Er ádeila? „Já, svona á þjóðlífið og lífið almennt. - Embættismenn eru alltaf að þvælast fyrir manni.“ -mar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen i kvöld, laugard 22. mars. Örfá sæti laus. Laugard. 5. apríl. KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 5. sýn. föstud. 4. apríl. Uppselt. 6. sýn. sunnud. 6. apríl Örfá sæti laus. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Á morgun, sunnud. 23. mars. Stðasta sýning Uppselt Aukasýning fimmtud. 3. apríl. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen í dag, laugard. 22. mars kl. 14.00. Sunnud. 6. apríl kl. 14.00. Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford í kvöld. Uppselt. Laugard. 5. april Athygli er vakin á aö sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir aö sýning hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga. LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS mánud. 24. mars ICARUS - Barokk-hópur frá Hollandi leikur barokktónlist og tónlist frá endurreisnartímanum. Hópinn skipa: Hilde de Wolf, David Rabinovich, Reglna Albanez, Ariane James og Katherine Heater. Haldið í samvinnu við ræðisskrifstofu Hollands á íslandi. Húsið opnað kl. 20.00 - Dagskrá hefst kl. 21.00. Miðasala við inngang. Höfundarnir koma allir með einhverjum hætti að sýningu verksins. Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggva- son (Toggi) eru í hljómsveitinni. Sævar Sigurgeirsson, Unnur Guttormsdóttir og Fríða B. Andersen leika. Sigrún Óskarsdóttir og Anna Kristín Kristjánsdóttir verða í miðasölunni og Kári Heiðdal sér um lýsinguna. „Annars voru höf- undarnir í raun níu því við fengum inni í húsi Jóhann- esar úr Kötlum í Hveragerði og luk- um þar við verkið. Jóhannes var með okkur allan tím- ann» við fundum mjög greinilega fyrir návistinni. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.