Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Síða 2
2 - Laugardagur 26. apríl 1997
JOagur-ÍÍIímrrax
Reykjavík
Slippstöðin á Akureyri
Rekstrarhagnaður 48 m. kr.
Slippstöðin M. á Akureyri
var rekin með 48 milljóna
króna hagnaði á sl. ári sem
er um 6% af veltu félagsins.
Ingi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar,
segist ekki gera ráð fyrir stór-
vægilegum breytingum á rekstri
stöðvarinnar á árinu. Megin-
verkefnin verða sem fyrr slipp-
tökur og viðhald og viðgerðir
fiskiskipa, ásamt smíði og upp-
setningu fiskvinnslubúnaðar.
Þrátt fyrir að fyrirsjáanlegt sé
að verkefni fyrir erlenda aðila
aukist er þó ekki gert ráð fyrir
umtalsverðri veltuaukningu sem
markast af skorti af járniðnað-
armönnnum hérlendis.
Á aðalfundi félagsins sem
haldinn var í gær var Geir A.
Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóri Marel, kjörinn stjórnarfor-
maður og Valdimar Bergstað,
frá Málningu, varaformaður.
Aðrir stjórnarmenn eru Gylfi
Þór Magnússon hjá SH, Hjörleif-
ur Jakobsson framkvæmdastjóri
hjá Eimskip og Hólmsteinn
Hólmsteinsson, framkvæmda-
stjóri hjá Möl & sandi á Akur-
eyri. GG
Risastór fáni fer til Genfar
Sportvörufyrirtækið Henson
hefur saumað risastóran
íslenskan fána, eflaust
einn þann stærsta í landinu og
á hann að hanga neðan úr loft-
inu yfir íslenskum sýningarbás í
gríðarstórri sýningarhöll á
ferðakaupstefnu sem haldin
verður í GeM dagana 13.-15.
maí. Fáninn á að vekja athygli
á fslandi og verður hann
geymdur í höllinni en dreginn
fram á hverju ári því að
ráðstefnan er árleg.
Það er Ráðstefnuskrifstofa
íslands sem stendur fyrir
saumaskapnum á fánanum og
verður fáninn af stærstu gerð.
Birna Einarsdóttir, starfsmaður
Ráðstefnuskrifstofunnar, segir
að gefinn hafi verið kostur á
mismunandi stærðum á fánan-
um en ákveðið hafi verið að
hafa hann eins stóran og hægt
hafi verið. Sér finnist trúlegt að
fánarnir í hölhnni séu yfirleitt í
stærri kantinum. -GHS
Henson hefur saumað íslenskan fána, sem er hvorki meira né minna en 20 fermetra stór eða svipaður að stærð
og gólfflöturinn á hraustlegu herbergi í íbúð. Fáninn er eflaust einn sá stærsti, ef ekki sá langstærsti, sem hefur
verið saumaður á landinu. Hann á að vekja athygli á íslandi í Genf. Mynd: eói.
Heiti Potturinn
Íheita pottinum á Akureyri er
mikið pískrað um Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóra á
ísafirði, en Dalvíking að upp-
lagi. Segja menn að ýmsir
málsmetandi menn í Sjálf-
stæðisflokknum hafi hug á að
fá Kristján til Akureyrar til að
gerast bæjarstjóraefni D-list-
ans í næstu bæjarstjórnar-
kosningum.....
Kristján Þór hefur þó fleiri
spil á hendi samkvæmt
sagnameisturum heita potts-
ins. Þeir fullyrða að í umræð-
unni sé sá möguleiki að gera
Tómas Inga Olrich að útvarps-
stjóra en fá Kristján til að setj-
ast í annað sæti listans.
JT
Ameðan menn útdeila
embættum til sjálfstæðis-
manna í pottinum fyrir norðan
eru menn við svipaða iðju í
pottum í Reykjavík. Þar er því
haldið fram að Árvakursmenn,
sem gefa út Morgunblaðið,
séu þegar farnir að huga að
eftirmanni Matthíasar Jóhann-
essen í ritstjórastóli, þó svo að
enn séu nokkur ár í að Matthí-
as hætti. Er sagt að menn vilji
að nýr ritstjóri starfi með nú-
verandi ritstjórum í nokkur
misseri áður til að umskiptin
verði sem snuðrulausust. Einn
maður er jafnan nefndur til
sögunnar - Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra. Ljóst er
að það mun friða stóran hluta
Sjálfstæðisflokksins sem hefur
verið óánægður með sjávarút-
vegsstefnu Moggans......
Eins og áður hefur komið
fram telja menn að búið sé
að lofa Friðriki Sópussyni
Landsvirkjunarstólnum þegar
Halldór Jónatansson hættir. í
pottinum heyrist nú að nokkrir
þingmenn sjálfstæðismanna
séu þegar komnir með „ráð-
herraveiki". Þar nefna menn til
sögunnar meðal annarra Geir
Haarde og Sólveigu Péturs-
dóttur....
Seðlabankinn
Makafríð-
indi banka-
stjóra
Arið 1993 beindi Sighvat-
ur Björgvinsson, þáver-
andi viðskiptaráðherra,
þeim tilmælum til banka-
ráða Seðlabankans og ríkis-
viðskipabankanna tveggja
að þeir endurskoðuðu
launakjör bankastjóra
sinna. í framhaldi af því
ákvað bankaráð Seðlabank-
ans að hætta að greiða mök-
um bankastjóra dagpeninga
í utanlandsferðum.
Eins og fram kom í svari
viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur á Alþingi í vikunni, fá
bankastjórar greidd far-
gjöld, gistingu og fulla dag-
peninga eins og ráðherrar,
þegar þeir ferðast til út-
landa á vegum bankanna.
Að auki fá makar banka-
stjóra Landsbankans greitt
fargjald, gistingu og hálfa
dagpemnga og það fá makar
Seðlabankastjóra einnig, en
reyndar aðeins tvisvar á ári.
Þetta afnam Seðlabankinn
1993, en bankaráðið ákvað
fyrir rúmu ári að taka þessi
fríðindi upp aftur. Það var
gert í ljósi þess að t.d.
Landsbankinn hafði engu
breytt í kjörum sinna
bankastjóra. Rétt er að taka
fram að makar Búnaðar-
bankastjóranna fá ekki þessi
fríðindi.
„Þetta hefur verið svona
áratugum saman og kom
upphaflega inn vegna þess
að kjörin tóku mið af kjörum
ráðherra," segir Þröstur Ól-
afsson, formaður bankaráðs
Seðlabankans. „Þetta eru
eftirlegukindur úr fortíðinm
og einhvern tíma hlýtur að
koma að því að þetta verði
endurskoðað," segir Þröst-
ur.
Bolungarvík
ANA3 NA3 A3 S2 NA3
NA4 NA5 S3 ANA3
Blönduós
-------------------------------0
ASA2 NA1 A2 S1 SA1
ANA1 ANA 1 SSA2 ASA1
Kirkjubæjarklaustur
Sun Mán Þri Mið
SA2 A3 ANA3 SA3 SA2
ASA4 NA3 SA3 SA4
Stórhöfði
•5
ASA5 A5
ASA5
10
- 5
0
SA5 SA4 SA5
SV4 SA5
Austan
gola eða kaldi
og rigning eða
súld víðast
hvar, einkum
sunnan til. Hiti
4 til 9 stig.
Færð á vegum
Aðalvegir landsins eru ágætlega færir. Víða í útvegum er aurbleyta og
ásþungatakmarkanir og er það merkt við viðkomandi vegi. Á Aust-
íjörðum er byrjað að moka Hellisheiði eystri.
Reykjavík
Akureyri
-5
ASA3 A3 SA3 SSA3 SA3
ASA5 A3 SV4 SA5
Stykkishólmur
ASA3 ANA3 ASA3 SSA3 ASA3
A4 ANA3 SSV4 ASA3
-S-i
SSA3 A3 A3 SSA3 SSA 3
A3 ANA3 SA3 SA3
Egilsstaðir
A B ■■ m
SSA3 A3 NA3
VSSA3 NA4
SA3 SA3
SSA5
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig,
súluritið 12
tíma úrkomu en
vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.