Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Side 3
Akureyrarbær
Lottó
Álverið
Þessir hlutu viðurkenningu menningarmálanefndar (frá vinstri): Mi-
chael Jón Clarke, Þórgunnur Ingimundardóttir, Jón Kristinsson,
Jóhann Ingimarsson, Guðbjörg Inga Jósefsdóttir og Sigmundur
Rafn Einarsson. Mynd-.Aj
Nýr bæjar-
listamaður
Michael Jón Clarke
hefur verið útnefnd-
ur næsti bæjarlista-
maður Akureyrarbæjar. Mi-
chael er kennari við Tónlist-
arskólann á Akureyri og
hefur starfað ötullega að
tónlistarmálum í bænum
síðasta aldarfjórðunginn.
Vahð var tilkynnt á vor-
fagnaði memúngarmála-
nefndar sem haldinn var
sumardaginn fyrsta. Auk út-
nefningar bæjarlistamanns
hlutu þrír viðurkenningu
fyrir störf sín að menning-
armálum og ein viðurkenn-
ing var veitt úr húsfriðunar-
sjóði.
Jóhann Ingimarsson, bet-
ur þekktur sem Nói í Val-
björk, hlaut viðurkenningu
fyrir að hafa glatt augu bæj-
arbúa og fleiri til margra
ára með gerð listmuna sem
ilokkast undir höggmynda-
list. Jón Kristinsson var
heiðraður fyrir störf sín hjá
Leikfélagi Akureyrar en
hann var um árabil ein
helsta driffjöðrin í starfsemi
félagsins. Þriðja viðurkenn-
ingin fyrir störf að menn-
ingarmálum féll í skaut Þór-
gunnar Ingimundardóttur,
píanóleikara, sem kennt
hefur við Tónlistarskóla Ak-
ureyrar í áratugi auk þess
að vera undirleikari með
einsöngvurum og kórum.
Aðeins ein viðurkenning
var veitt úr húsfriðunarsjóði
að þessu sinni og var hún
veitt hjónunum Sigmundi
Rafni Einarssyni og Guð-
björgu Ingu Jósefsdóttir fyr-
ir framlag þeirra til hús-
verndar. AI
Ókeypis ráðgjöf til
milljónamærmga
Þegar haft var samband við
íslenska getspá um miðj-
an dag í gær þótti liggja
ljóst fyrir að potturinn færi í
a.m.k. 30 milljónir í fyrsta vinn-
ing og e.t.v. gott betur. Heildar-
verðmæti vinninga verður milh
40 og 50 milljónir króna.
„Það er vægast sagt mikið að
gera á sölustöðunum," sagði
Bolh Valgarðsson markaðsstjóri
í gær, enda dreymir marga
stóra drauma þótt fáir verði út-
valdir. Aldrei áður hefur pottur-
inn verið sexfaldur og ef vinn-
ingurinn fer á einn stað má bú-
ast við að líf viðkomandi taki
verulegum stakkaskiptum. Það
getur reynst mörgum erfitt að
höndla skjótfengin auðævi og
því býður fslensk getspá upp á
ókeypis fjármálaráðgjöf fyrir þá
sem vilja. Bolli segir oft ekki
vanþörf á, þótt upphæðin nái
aðeins mihjón. „Það er mikil-
vægt að fólk hugsi langt fram í
tímann og láti peningana ávaxt-
ast.“
Margir vildu freista gæfunnar í lottói helgarinnar, enda ókeypis ráðgjöf i
boði ef maður vinnur allar milljónirnar! Mynd: Hilmar
En skýtur ekki skökku við að
einstaklingur sem hugsanlega
fær 30 milljóna króna vinning í
dag fái í ofanálag ókeypis ráð-
gjöf? „Nei, nei þetta er það
mikilvægt, menn geta alltaf
flippað," segir BoUi.
Hvað sálarlegu hliðina varð-
ar segir hann ennfremur að ísl.
getspá myndi örugglega koma
þar að einnig ef um yrði beðið.
Fáar sögur eru tU innanlands
um það að viningshafar „tapi
sér“ en BoUi nefnir erlent dæmi
þegar írani vann 1,2 miUjarða í
breska lottóinu. Hann flutti upp
í sveit og einangraði sig algjör-
lega frá umheiminum. BÞ
Byrjað á öfugum enda?
Athygh hefur vakið hjá
nokkrum fagaðilum sem
Dagur-Tíminn hefur rætt við, að
þótt framkvæmdir séu hafnar
við álverið við Grundartanga er
ekki enn búið að taka ákvörðun
um hvernig staðið verður að
kælikerfi verksmiðjunnar. „Það
er svolítið sérstakt að lóðarhaf-
ar geri ekki grein fyrir því
hvernig þetta er hugsað. Það
hefði e.t.v. verið eðhlegra að
leysa vatnsmálin áður en byggt
er, frekar en að gera það á
sjálfum byggingartímanum,“
sagði fagaðih í gær.
Þrír möguleikar koma til
greina, kerfi þar sem vatnið er
sjókælt og fer síðan hringrás,
loftkælikerfi og kerfi, þar sem
vatni úr nágrenninu er veitt til
verksmiðjunnar.
BÞ
Laugardagur 26. apríl 1997 - 3
Heilbrigðisþjónusta
Tími jafnræðis er liðinn
Fimmtungur barna-
fjölskyldna með
lægstar tekjur hefur
ekki efni á heilbrigð-
isþjónustu. Háþróuð
tækni en versnandi
aðbúnaður, streita
og þreyta.
Vaxandi áhrif markaðsafla
og of há þjónustugjöld
hafa leitt tU ójafnræðis og
misræmis í aðgengi
Iandsmanna til
heUbrigðisþj ónust-
unnar. Um fimmt-
ungur barnafjöl-
skyldna með
lægstu tekjurnar
hafa frestað eða
hætt við að leita
læknis og kaupa lyf
vegna fjárskorts.
Tími jafnræðis í
hehbrigðisþjónustu
sem Ólafur Ólafsson landlæknir
hélt á þingi BSRB í gær. Mál-
flutningur landlæknis féll í góð-
an jarðveg á þinginu, enda fór
hann á kostum og nokkrum
sinnum skellti þingheimur upp-
úr þrátt fyrir alvöru málsins.
„Gjalda ber varhug fyrir
frekari hækkun gjalda eða
verulegum þjónustugjöldum,"
segir landlæknir. Hann telur að
samfélagslega rekin heilbrigðis-
þjónusta sé ódýrasti kosturinn
og skapar jafnræði meðal sjúk-
linga óháð tekjum. Hinsvegar
hefur vaxandi áhrif markaðs-
aflanna bitnað mest á einstæð-
Olafur Ólafsson
landlæknir
Varar við frekari
hœkkun
þjónustugjalda.
virðist vera liðinn og efnahags-
leg skipting þjóðarinnar er
staðreynd.
Þetta kom m.a. fram í erindi
um foreldrum, atvinnulausum,
bændum, elhlífeyrisþegum og
öryrkjum.
Landlæknir sagði einnig að
það stríddi gegn lög-
um, siðfræði lækna
og hefðubundnu
jafnræði að fjársterk-
ir einstakhngar gætu
keypt sér pláss á
biðlistum. Um sl.
áramót voru 6.900
manns á biðlistum.
Landlæknir telur að
það þurfi ekki nema
500-700 milljónir kr.
th að koma þessum
málum í viðunandi
horf.
í erindi landlæknis
kom fram að þótt
mikið hefði áunnist í
meðferð ýmissa sjúk-
dóma og tæknin væri
alltaf að aukast á ís-
lenskum sjúkra-
húsum, þá hefur að-
búnaður sjúklinga á
bráðasjúkrahúsum
versnað. Álag á heil-
brigðisstéttir hefur
aukist með þeim af-
leiðingum að fjarvist-
um hefur fjölgað um
50-100% vegna streitu og
þreytu. Gangar sjúkrahúsa
væru fullir af sjúklingum, þeir
væru útskrifaðir of fljótt með
Friðrik Vagn Guðjónsson, heilsugæslulæknir á Akureyri, skoðar sjúkling. Samkvæmt
upplýsingum landlæknis hafa fjölmargir veigrað sér við að leita læknisþjónustu hjá
Friðrik og kollegum hans vegna þjónustugjalda í heilbrigðiskerfinu. Myn&. jhf
þeim afleiðingum að endurinn-
lögnum hefur fjölgað.
Þrátt fyrir þessa ágaha er
skipulag og árangur heilbrigð-
isþjónustunnar sambærilegur
við háþróaðar nágrannaþjóðir.
Engu að síður þyrfti að efla for-
varnir þótt Island væri í
fremstu röð í þeim efnum með-
al þjóða Evrópu. -grh