Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Page 5
.jDagur-CEmtmn Laugardagur 26. apríl 1997 - 5 F R É T T I R Útgerðarfélag Akureyringa Svalbakur fer á veiðar undir þýsku flaggi Verkalýðsfélög í Cux- haven mótmæla leig- unni og telja að markvisst sé unnið að því að flytja starf- semi MHF frá Rostock til Akureyrar. Svalbakur EA-2, einn tog- ara Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., mun á næst- unni fara á úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg og veiða kvóta ESB, þ.e. hluta þess kvóta sem dótturfyrirtæki ÚA, Mecklen- burger Hochseefischerei í Rostock, hefur yfir að ráða. Svalbakur EA verður leigður til MHF í góðu samkomulagi við aðra eigendur MHF og verka- lýðsfélög í Rostock en verkalýðsfélög í Cuxhaven hafa hins vegar mót- mælt þessu og telja þetta óforsvaran- legt í því mikla at- vinnuleysi sem nú er í Þýskalandi. Verkalýðsfélögin í Cuxhaven telja að markvisst sé unnið að því að flytja starfsemi MHF frá Rostock til Akureyrar og benda á að togar- ar félagsins séu teknir í slipp og til annarra viðhaldsaðgerða á Akureyri og ennfremur sjái Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna um sölu á afurðum félagsins. Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri ÚA, segir að MHF vanti veiðigetu og skip félagsins séu að ýmsu leyti gamaldags og því hefði það verið talin ágætis leið að leigja Svalbak til að sjá hvernig svo stórt skip mundi duga í rekstri MHF. Gert er ráð fyrir að Svalbakur verði í leigu í fjóra mánuði og mun fara á næstu dögum á Reykjanes- hrygg. Frystitogarinn Sléttbakur EA landaði blönduðum afla, karfa og grálúðu, í lok vetrar og var aflaverðmæti um 60 milljónir króna. Togarinn fer í dag til út- hafskarfaveiða á Reykjanes- hrygg en ÚA á 1.700 tonna út- hafskarfakvóta þar. íslenskum skipxun fer nú dagfjölgandi á Reykjaneshrygg, m.a. Þerney og Vigri frá Reykjavík, en veiðin hefur til þessa ekki verið tnjög mikil. GG _______Dallr Jörvagleði hin nýja Pær stóðu nú í fleiri daga en þetta. Það mátti alveg reikna með viku-hálfum mán- uði þá. Við erum svona heldur að hægja á, annars verður gaman að sjá hvernig þetta þróast,“ segir Halla Steinólfs- dóttir um Jörvagleði hina fornu en hjá Dalamönnum stendur Jörvagleði nútímans yfir þessa dagana. Hún hófst á fimmtudag með messu og kaffihlaðborði en formleg setning var á samkomu í Árbliki um kvöldið þar sem flutt var ijölbreytt dagskrá. Jörvagleði er kennd við Jörva í Haukadal en þar voru haldnar alræmdar hátíðir á átjándu öld. Hátíðin nú stendur fram á sunnudag og er dagskráin ijöl- breytt. í kvöld, laugardags- kvöld, verður blönduð dagskrá sem lýkur með stórdansleik þar sem hjómsveitin Papar leikur fyrir dansi. -ohr Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri ÚA MHF vantar veiðigetu og skip félagsins eru að ýmsu leyti gamal- dags og því var það talin ágœtis leið að leigja Svalbak. Launafólk Sundrað lið vill saman Enn og aftur ræða forystumenn ASÍ og BSRB um aukið samstarf og hugs- anlega sameiningu. Hvatt til sameigin- legs þings samtaka launafólks. Við skulum búa okkur undir að heyra þetta ekki bara tvisvar, heldur þrisvar, ijórum sinn- um, fimm sinnum og sex sinnum eða þangað til við förum að sjá árangur af okkar starfi,“ segir Ög- mundur Jónasson, formað- urBSRB Forustumenn BSRB og ASÍ hafa enn og aftur viðrað áhuga sinn á því að efla samstarf á milli þessara heildarsamtaka launafólks. í þeim efnum hafa þeir ekki útilokað þann möguleika að þau verði sameinuð í náinni framtíð. í drögum að álykt- un um samstarf launafólks á þingi BSRB er m.a. hvatt til sameiginlegs þings helstu samtaka launafólks. Þar er þess jafnframt vænst að sameinað þing launafólks geti skilað niðurstöðum og árangri innan þriggja ára, eða áður en öldin er öll. „Gæti ekki verið að þarna sé samhengi á milli þar sem menn eru að horfa á þá sundrungu sem ríkir og af- leiðingar hennar," segir for- maður BSRB. Þar á hann við áhrif atvinnurekenda og fjármagnseigenda sem styðja dyggilega við bakið á stjórnvöldum við mótun at- vinnu- og efnahagsstefn- unnar á kostnað launafólks. Athygli vekur að á sama tíma og umræðan um sam- einingu samtaka launafólks kemur enn á ný upp á yfir- borðið gætir mikillar sundr- ungar innan raða verka- lýðsins. í þeim efn- um er nær- tækast að benda á innbyrðis deilur verslunar- manna og harðorða gagnrýni Alþýðu- sambands Vestfjarða á nýgerða kjara- samninga aðildarfélaga Verkamannasambandsins. Þá voru formenn landssam- banda ASÍ vændir um að svíkja samþykktir síðasta ASÍ-þings þegar krafan um jöfnun húshitunarkostnaðar var ekki með í sameiginlegrí kröfugerð á hendur stjórn- völdum. Sömuleiðis fór samstaðan um krónutölu- hækkanir fyrir lítið þegar á reyndi við gerð kjarasamn- inga. Síðast en ekki síst þá hefur formaður stærsta verkalýðsfélags landsins, VR, sakað sambandsstjórn ASÍ um lögbrot þegar hún samþykkti að hækka álögur VR til ASÍ um 1,5 milljón krónur á ári. -grh ■■ Ogmundur Jónasson formaður BSRB „Ekki bara tvisvar, þrisvar..." Akureyri j>»:. ■ ■ :';: í:;V FmWudar Amtsbókasafnið, langelsta stofnun á Akureyri, hélt í gær uppá 170 ára afmæli sitt, en það var stofnað 25. apríl 1827. Safngestum var boðið upp á bakkelsi í tilefni dagsins, en bakaðar voru tvær kökutegundir eftir tæplega 200 ára gömlum uppskriftum. Þá eru einnig á þessu tímamótum sýndar úr eigu Minjasafnsins á Akureyri og Amts- bókasafnsins bækur og munir er tengjast bókmenntum og bókamenningu. Þessi mynd var tekin í gær af ungum safngestum sem stillu sér til myndatöku fyrir framan safnhúsið. Þetta eru lestrarhestar framtíðar. Mynd: jhf Fréttastofur Fá kaldar kveðjur Vésteinn Ólason prófessor sendir fréttastofum Stöðvar 2 og Sjónvarps- ins kaldar kveðjur í grein í Morgunblaðinu fyrradag. Eink- um fær Sjónvarpið á baukinn og þá helst Kristín Þorsteins- dóttir fréttamaður vegna um- íjöllunar um Véstein sem teng- ist athugasemdum umboðs- manns Alþingis um störf hans. Vésteinn lætur stór orð falla og þ.á m. eftirfarandi: „Varla getur nokkur maður verið svo skyni skroppinn að sjá ekki að frétta- flutningur Sjónvarpsins og Stöðvar 2 þessa daga hafði það að markmiði að skaða mig í rektorskosningunum. “ Yfirskrift greinarinnar er „Fréttastofa Sjónvarps - ginningarfífl eða handbendi?" og spyr Vésteinn hvort Kristín hafi gengið erinda einhverra manna úti í bæ og túlki nú hver sem vill. Eins og kunnugt er tapaði Vésteinn fyr- ir Páh Skúlasyni heimspekipró- fessor í rektorskjörinu. Kristín Þorsteinsdóttir sagði í samtali við Dag-Tímann í gær að henni væri brugðið. „Ég frá- bið mér allar dylgjur um ófag- leg vinnubrögð. Þessar getsakir um að ég noti fréttatíma Sjón- varpsins til að ganga erinda manna úti í bæ eru lágkúruleg- ar.“ Kristín segist alltaf hafa unn- ið sínar fréttir af heiðarleika og þar sé fréttin um Véstein engin undantekning: „Þegar umboðs- maður Alþingis birtir álit sem segir að ólöglega hafi verið staðið að uppsögn kennara sem verið hefur í Háskólanum í 14 ár, þá er það frétt. Ef ég hefði farið að sitja á henni fram yfir rektorskosningar þá hefði mér ekki fundist sem ég væri heið- arlegur fréttamaður.“ Kristín segir að þótt vegið sé að starfsheiðri hennar þá muni hún láta nægja að svara grein Vésteins á sama vettvangi og hún kom fram en hún íhugi ekki meiðyrðamál. „Ég er búin að vera í þessum bransa í 17 ár eins og þar segir og hef aldrei fengið svona viðbrögð áður. En þau dæma sig sjálf.“ BÞ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.