Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Side 7
Jlagur-'ðlœróm
Laugardagur 26. apríl 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Ekki seinna vænna
fyrir Chirac
Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar: borgaralegu flokkunum og vinstri
flokkunum stendur jafnmikill stuggur af honum.
Baksvíð
Dagur Þorleifsson
Jacques Chirac, forseti
Frakklands, hefur ákveðið
að kosið skuli þar til þings
25. maí og 1. júní nk.
Spáð er að borgaraflokkarn-
ir, sem hafa yfirgnæfandi meiri-
hluta á þingi, tapi þá miklu, en
haldi meirihlutanum.
Pess vegna lætur Chirac
kjósa nú, skrifa fréttaskýrend-
ur, þótt kjörtímabil núverandi
þingmanna renni ekki út fyrr
en eftir ár. Kosningaspámenn
telja sem sé sennilegt að sigur-
líkur borgaraflokkanna, gaui-
leistaflokks Chiracs og UDF,
sem venjulega er skiigreindur
sem frjálslyndur, fari minnk-
andi fram að næsta vori. Þessir
tveir flokkar standa að núver-
andi ríkisstjórn.
í janúar 1999 ...
Evrópusambandsmálin, sérstak-
lega fyrirhuguð sameiginleg
mynt ESB (evró, EMU), verða æ
fyrirferðarmeiri í stjórnmálum
aðildarríkja þess. Þau eru ofar-
lega í kosningabaráttunni bæði í
Bretlandi og Frakklandi. Chirac
vill hafa þingmeirihluta á bak
við sig þegar á það reynir að
koma Frakklandi inn í mynt-
bandalagið, en það hefur hann
lofað að gera. í janúar 1999
verður ákveðið hvaða ríki teljist
hæf til þess að vera með um
evróið frá byijun. Til þess að
tryggja að Frakkland verði í
þeim hópi, sem er auk annars
viðkvæmt metnaðarmál, er talið
að gera þurfl ráðstafanir, sem
komi hart niður á lífskjörum
margra landsmanna. Og margir
Frakkar eru þegar sáróánægðir
með kjör sín.
Að vori verður stjórnin lík-
lega í miðju kafi við óvinsæiar
niðurskurðar- og sparnaðarráð-
stafanir, með þeim afleiðingum
að helsta baráttumálið í kosn-
ingum þá hefði orðið hvort
Frakkland ætti að vera með í
evróinu eða ekki. Á það mun
Chirac ekki hafa treyst sér til
að hætta. Kjörtímabil hans sem
forseta rennur ekki út fyrr en
árið 2002, og haldi borgaraiegu
flokkarnir meirihluta sínum í
vor, verða þarnæstu þingkosn-
ingar ekki fyrr en rétt fyrir for-
setakosningarnar 2002. Chirac
gerir sér vonir um að þá verði
raunir þær, er almenningur
verði að þoia vegna evrósins, að
baki. Það muni tryggja borg-
aralegu flokkunum þingmeiri-
hluta áfram og honum endur-
kjör á forsetastól.
13% atvinnuleysi
Ónægja almennings með for-
seta og ríkisstjórn er þegar
mikii. Ein drýgsta ástæðan til
þess er atvinnuleysið, sem nú
nemur tæpum 13% og hefur
heldur farið vaxandi, hvað sem
líður loforðum stjórnarinnar
um að þeirri óheiliaþróun verði
snúið við. Um helmingur at-
vinnulausra þarlendis hefur um
35.000 kr. að lifa af á mánuði.
Og landsmenn mega búast við
drjúgum niðurskurði á útgjöld-
um hins opinbera, sérstaklega
til félags- og heilbrigðismála, og
lækkun eftirlauna, sem að vísu
eru með hærra móti þar hjá
sumum starfsstéttum. Þennan
sparnað mun stjórn Chiracs
telja óhjákvæmilegan til þess að
íjárlagaliallinn komist niður í
3%, en það er skilyrði fyrir því
að Frakídand teljist tækt í evr-
óið þegar því verður hleypt af
stokkunum. Sl. ár var fjárlaga-
hailinn 4%.
Sósíalistaflokkurinn, sem
stærstur er vinstriflokka, gerir
sér vonir um mikla fylgisauk-
ingu en spár um það eru ekki á
eina lund. Sósíalistar eru
ósparir á fögur kosningaloforð,
lofa t.d. að sjá landsmönnum,
sérstaklega ungu fólki, fyrir um
700.000 nýjum störfum á allra-
næstu árum. En margir efast
um gildi þess loforðs. Þá er út-
breidd skoðun að stefna sósíal-
ista, meðan þeir fóru með
Franska þíngið
Þar sitja 577 þingmenn. Með
kosningafyrirkomulaginu er
hyglað mjög þeim stjórn-
málaflokkum, er mest hafa
fylgi, auk þess sem það fyr-
irkomulag gerir mögulegt að
útiloka frá þingi flokka sem
hafa verulegt fylgi. Af þeim
ástæðum fer því fjarri að
skipting þingsæta milli
flokka samsvari skiptingu
fylgisins milfi þeirra. Núver-
andi skipting þingsæta milli
flokka:
Gaulleistar: 242 þingmenn
auk 16 sem eru í bandalagi
við þá.
UDF: 200 þingmenn auk sex
í bandalagi við flokkinn.
Sósíalistaflokkur: 56 þing-
menn auk sex bandamanna.
Kommúnistaflokkur: 22
þingmenn auk tveggja
bandamanna.
Þingmenn óháðir flokkum:
25.
Eitt þingsæti er autt.
stjórn, hafi í raun verið sú
sama og þeirra borgaralegu nú.
Því hafi kjósendur ekki gleymt.
En að vísu er talið að greiða
muni fyrir sósíalistum og
næststærsta vinstriflokknum,
kommúnistum, að þeir séu
orðnir samlyndari en lengi var,
einkum vegna þess að komm-
únistar hafi dregið úr harðlínu-
svip sínum. Sé því líklegt að
flokkum þessum tveimur og
smáflokkum ýmsum vinstra
megin muni ganga sæmilega að
vinna saman fyrir síðari umferð
kosninganna.
Allir hræddir við
Þjóðfylkingu
í Frakklandi eru einmennings-
kjördæmi og í kjördæmum, þar
sem enginn frambjóðandi fær
yfir 50% greiddra atkvæða í
fyrri umferð, verður að kjósa
aftur. Búist er við að þar sem
frambjóðandi sósíalista fái fleiri
atkvæði en frambjóðandi
kommúnista í fyrri umferð,
muni kjósendur kommúnista
kjósa sósíalistann í síðari um-
ferð, og gagnkvæmt.
Borgaralegu flokkunum og
vinstriflokkunum stendur að því
er virðist nokkurn veginn jafn-
mikill stuggur af ÞjóðfyMng-
unni (Front National), sem
venjan er að skilgreina sem
„rasískan" hægriöfgaflokk. Tal-
ið er að í ýmsum kjördæmum
muni borgaraflokkarnir leita
samstarfs við Þjóðfylkinguna,
hvað sem forystumenn þeirra í
París segi. Samkvæmt skoðana-
könnunum gerðum fyrir fáein-
um árum hafði Þjóðfylkingin þá
meira verkalýðsfylgi en „verka-
lýðsílokkarnir" sósíalistar og
kommúnistar hvorir um sig. Til
marks um það, að öldin er önn-
ur en var í kalda stríðinu, í
frönskum stjórnmálum sem
annars staðar, er að í kosning-
um upp á síðkastið hefur komið
fyrir að borgaraflokkarnir hafa
grátbeðið kjósendur sína að
kjósa kommúnista til þess að
koma í veg fyrir sigur Þjóðfylk-
ingarinnar.
Atvinna
Flugfélag íslands,
Akureyrarflugvelli
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
óskar eftir að ráða starfsmann sem fyrst.
Starfið felst í eldsneytisafgreiðslu, hleðslu flugvéla og fl.
Meirapróf og einhver enskukunnátta skilyrði.
Æskilegur aldur 25-45 ára.
Einnig vantar starfsmann í sömu störf til sumarafleys-
inga.
Upplýsingar gefur stöðvarstjóri á Akureyrarflugvelli.
S \
AKUREYRARBÆR
BÚSETUDEILD
Starfsmaður óskast
Fjölskylda á Akureyri með 10 ára mál- og hreyfi-
hamlaðan dreng óskar eftir starfsmanni, heist
með uppeldismenntun.
Þarf að geta hafið störf 20. maí næstkomandi.
Vinnutími er 30-40 klst. á viku.
Starfið felst í aðstoð við drenginn inni á heimilinu og
við tómstundastörf og er bæði fjölbreytt og gefandi.
Við leitum að starfsmanni sem hefur hæfiieika til og
áhuga á að taka þátt í lífi og starfi 10 ára drengs.
Starfsmaðurinn fær handleiðslu og þjálfun og er
þetta kjörið tækifæri til að öðlast reynslu sem nýst
getur í mörgum uppeldisstörfum.
Góð laun í boði.
Nánari upplýsingar gefur Kristín Sigursveinsdóttir,
búsetudeild Akureyrarbæjar í síma 460 1410.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Opinn hádegisverðar-
fundur um „Fríkortið“
Miklar og heitar umræður hafa spunnist út í þjóð-
félaginu um ágæti svokallaðra tryggðarkorta og
hefur Fríkortiö verið þar fremst í flokki.
Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Frikortsins, mun kynna
hugmyndir á bak viö Frikortið, þróun þess og framtfð. Að
framsögn lokinni verður opnað fyrir fyrirspurnir.
Staður: Fiðlarinn á þakinu (fundarsalur)
Tími: Mánudaginn 28. apríl kl. 12:00-13:00
Verð: 1200.-
Innifalinn er léttur hádegisverður og kaffi.
BORGARVERKFRÆÐINGURINN
í REYKJAVÍK
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sími 563 2400, fax 562 4339
Lóðaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru neðangreindar lóðir í Staðahverfi:
Lóðir fyrir einbýlishús: 23 lóðir við Garðsstaði
26 lóðir við Brúnastaði
Lóðir fyrir raðhús: 10 lóðir (36 íbúðir) við Garðsstaði
6 lóðir (20 íbúðir) við Brúnastaði.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar í sept-
ember 1997.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 563 2310. Þar fást
einnig afhent umsóknareyðublöð, skipulagsskilmálar og
uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum um ióðirnar frá og með
föstudeginum 2. maí nk. kl. 8.20 á skrifstofu borgarverk-
fræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavfk.