Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.04.1997, Page 7
Jlagur-'ðlœróm Laugardagur 26. apríl 1997 - 7 ERLENDAR FRÉTTIR Ekki seinna vænna fyrir Chirac Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar: borgaralegu flokkunum og vinstri flokkunum stendur jafnmikill stuggur af honum. Baksvíð Dagur Þorleifsson Jacques Chirac, forseti Frakklands, hefur ákveðið að kosið skuli þar til þings 25. maí og 1. júní nk. Spáð er að borgaraflokkarn- ir, sem hafa yfirgnæfandi meiri- hluta á þingi, tapi þá miklu, en haldi meirihlutanum. Pess vegna lætur Chirac kjósa nú, skrifa fréttaskýrend- ur, þótt kjörtímabil núverandi þingmanna renni ekki út fyrr en eftir ár. Kosningaspámenn telja sem sé sennilegt að sigur- líkur borgaraflokkanna, gaui- leistaflokks Chiracs og UDF, sem venjulega er skiigreindur sem frjálslyndur, fari minnk- andi fram að næsta vori. Þessir tveir flokkar standa að núver- andi ríkisstjórn. í janúar 1999 ... Evrópusambandsmálin, sérstak- lega fyrirhuguð sameiginleg mynt ESB (evró, EMU), verða æ fyrirferðarmeiri í stjórnmálum aðildarríkja þess. Þau eru ofar- lega í kosningabaráttunni bæði í Bretlandi og Frakklandi. Chirac vill hafa þingmeirihluta á bak við sig þegar á það reynir að koma Frakklandi inn í mynt- bandalagið, en það hefur hann lofað að gera. í janúar 1999 verður ákveðið hvaða ríki teljist hæf til þess að vera með um evróið frá byijun. Til þess að tryggja að Frakkland verði í þeim hópi, sem er auk annars viðkvæmt metnaðarmál, er talið að gera þurfl ráðstafanir, sem komi hart niður á lífskjörum margra landsmanna. Og margir Frakkar eru þegar sáróánægðir með kjör sín. Að vori verður stjórnin lík- lega í miðju kafi við óvinsæiar niðurskurðar- og sparnaðarráð- stafanir, með þeim afleiðingum að helsta baráttumálið í kosn- ingum þá hefði orðið hvort Frakkland ætti að vera með í evróinu eða ekki. Á það mun Chirac ekki hafa treyst sér til að hætta. Kjörtímabil hans sem forseta rennur ekki út fyrr en árið 2002, og haldi borgaraiegu flokkarnir meirihluta sínum í vor, verða þarnæstu þingkosn- ingar ekki fyrr en rétt fyrir for- setakosningarnar 2002. Chirac gerir sér vonir um að þá verði raunir þær, er almenningur verði að þoia vegna evrósins, að baki. Það muni tryggja borg- aralegu flokkunum þingmeiri- hluta áfram og honum endur- kjör á forsetastól. 13% atvinnuleysi Ónægja almennings með for- seta og ríkisstjórn er þegar mikii. Ein drýgsta ástæðan til þess er atvinnuleysið, sem nú nemur tæpum 13% og hefur heldur farið vaxandi, hvað sem líður loforðum stjórnarinnar um að þeirri óheiliaþróun verði snúið við. Um helmingur at- vinnulausra þarlendis hefur um 35.000 kr. að lifa af á mánuði. Og landsmenn mega búast við drjúgum niðurskurði á útgjöld- um hins opinbera, sérstaklega til félags- og heilbrigðismála, og lækkun eftirlauna, sem að vísu eru með hærra móti þar hjá sumum starfsstéttum. Þennan sparnað mun stjórn Chiracs telja óhjákvæmilegan til þess að íjárlagaliallinn komist niður í 3%, en það er skilyrði fyrir því að Frakídand teljist tækt í evr- óið þegar því verður hleypt af stokkunum. Sl. ár var fjárlaga- hailinn 4%. Sósíalistaflokkurinn, sem stærstur er vinstriflokka, gerir sér vonir um mikla fylgisauk- ingu en spár um það eru ekki á eina lund. Sósíalistar eru ósparir á fögur kosningaloforð, lofa t.d. að sjá landsmönnum, sérstaklega ungu fólki, fyrir um 700.000 nýjum störfum á allra- næstu árum. En margir efast um gildi þess loforðs. Þá er út- breidd skoðun að stefna sósíal- ista, meðan þeir fóru með Franska þíngið Þar sitja 577 þingmenn. Með kosningafyrirkomulaginu er hyglað mjög þeim stjórn- málaflokkum, er mest hafa fylgi, auk þess sem það fyr- irkomulag gerir mögulegt að útiloka frá þingi flokka sem hafa verulegt fylgi. Af þeim ástæðum fer því fjarri að skipting þingsæta milli flokka samsvari skiptingu fylgisins milfi þeirra. Núver- andi skipting þingsæta milli flokka: Gaulleistar: 242 þingmenn auk 16 sem eru í bandalagi við þá. UDF: 200 þingmenn auk sex í bandalagi við flokkinn. Sósíalistaflokkur: 56 þing- menn auk sex bandamanna. Kommúnistaflokkur: 22 þingmenn auk tveggja bandamanna. Þingmenn óháðir flokkum: 25. Eitt þingsæti er autt. stjórn, hafi í raun verið sú sama og þeirra borgaralegu nú. Því hafi kjósendur ekki gleymt. En að vísu er talið að greiða muni fyrir sósíalistum og næststærsta vinstriflokknum, kommúnistum, að þeir séu orðnir samlyndari en lengi var, einkum vegna þess að komm- únistar hafi dregið úr harðlínu- svip sínum. Sé því líklegt að flokkum þessum tveimur og smáflokkum ýmsum vinstra megin muni ganga sæmilega að vinna saman fyrir síðari umferð kosninganna. Allir hræddir við Þjóðfylkingu í Frakklandi eru einmennings- kjördæmi og í kjördæmum, þar sem enginn frambjóðandi fær yfir 50% greiddra atkvæða í fyrri umferð, verður að kjósa aftur. Búist er við að þar sem frambjóðandi sósíalista fái fleiri atkvæði en frambjóðandi kommúnista í fyrri umferð, muni kjósendur kommúnista kjósa sósíalistann í síðari um- ferð, og gagnkvæmt. Borgaralegu flokkunum og vinstriflokkunum stendur að því er virðist nokkurn veginn jafn- mikill stuggur af ÞjóðfyMng- unni (Front National), sem venjan er að skilgreina sem „rasískan" hægriöfgaflokk. Tal- ið er að í ýmsum kjördæmum muni borgaraflokkarnir leita samstarfs við Þjóðfylkinguna, hvað sem forystumenn þeirra í París segi. Samkvæmt skoðana- könnunum gerðum fyrir fáein- um árum hafði Þjóðfylkingin þá meira verkalýðsfylgi en „verka- lýðsílokkarnir" sósíalistar og kommúnistar hvorir um sig. Til marks um það, að öldin er önn- ur en var í kalda stríðinu, í frönskum stjórnmálum sem annars staðar, er að í kosning- um upp á síðkastið hefur komið fyrir að borgaraflokkarnir hafa grátbeðið kjósendur sína að kjósa kommúnista til þess að koma í veg fyrir sigur Þjóðfylk- ingarinnar. Atvinna Flugfélag íslands, Akureyrarflugvelli FLUGFÉLAG ÍSLANDS óskar eftir að ráða starfsmann sem fyrst. Starfið felst í eldsneytisafgreiðslu, hleðslu flugvéla og fl. Meirapróf og einhver enskukunnátta skilyrði. Æskilegur aldur 25-45 ára. Einnig vantar starfsmann í sömu störf til sumarafleys- inga. Upplýsingar gefur stöðvarstjóri á Akureyrarflugvelli. S \ AKUREYRARBÆR BÚSETUDEILD Starfsmaður óskast Fjölskylda á Akureyri með 10 ára mál- og hreyfi- hamlaðan dreng óskar eftir starfsmanni, heist með uppeldismenntun. Þarf að geta hafið störf 20. maí næstkomandi. Vinnutími er 30-40 klst. á viku. Starfið felst í aðstoð við drenginn inni á heimilinu og við tómstundastörf og er bæði fjölbreytt og gefandi. Við leitum að starfsmanni sem hefur hæfiieika til og áhuga á að taka þátt í lífi og starfi 10 ára drengs. Starfsmaðurinn fær handleiðslu og þjálfun og er þetta kjörið tækifæri til að öðlast reynslu sem nýst getur í mörgum uppeldisstörfum. Góð laun í boði. Nánari upplýsingar gefur Kristín Sigursveinsdóttir, búsetudeild Akureyrarbæjar í síma 460 1410. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA Opinn hádegisverðar- fundur um „Fríkortið“ Miklar og heitar umræður hafa spunnist út í þjóð- félaginu um ágæti svokallaðra tryggðarkorta og hefur Fríkortiö verið þar fremst í flokki. Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Frikortsins, mun kynna hugmyndir á bak viö Frikortið, þróun þess og framtfð. Að framsögn lokinni verður opnað fyrir fyrirspurnir. Staður: Fiðlarinn á þakinu (fundarsalur) Tími: Mánudaginn 28. apríl kl. 12:00-13:00 Verð: 1200.- Innifalinn er léttur hádegisverður og kaffi. BORGARVERKFRÆÐINGURINN í REYKJAVÍK Skúlatúni 2, 105 Reykjavík Sími 563 2400, fax 562 4339 Lóðaúthlutun í Reykjavík Til úthlutunar eru neðangreindar lóðir í Staðahverfi: Lóðir fyrir einbýlishús: 23 lóðir við Garðsstaði 26 lóðir við Brúnastaði Lóðir fyrir raðhús: 10 lóðir (36 íbúðir) við Garðsstaði 6 lóðir (20 íbúðir) við Brúnastaði. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar í sept- ember 1997. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 563 2310. Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð, skipulagsskilmálar og uppdrættir. Tekið verður við umsóknum um ióðirnar frá og með föstudeginum 2. maí nk. kl. 8.20 á skrifstofu borgarverk- fræðings. Borgarstjórinn í Reykjavfk.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.