Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Page 4
4 - Laugardagur 3. maí 1997
fr......................
íDixgur-Œútnnn
Er veiðigjald í raun
byggðaskattur?
Ráðstefna um áhrif veiðigjalds
á skattbyrði einstakra landshluta,
haldin af sjávarútvegsráðuneytinu
á Hótel KEA, Akureyri
þriðjudaginn 6. maí 1997
15:00 Innritun fyrir framan Stuðlaberg
15:30 Ráðstefnan sett
15:35 Ávarp
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra
15:45 Byggðadreifíng veiðigjalds
Ragnar Ámason, prófessor, kynnir skýrslu
Hagfræðistofnunar Háskóla íslands um
veiðigjald og skattbyrði byggðarlaga
16:05 Spurningar og svör
16:10 Tilræði við byggð
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður
16:30 Spumingar og svör
16:35 Kaffiveitingar
16:55 Veiðileyfagjald - rök og réttlæti
Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður
17:15 Spumingar og svör
17:20 Áhrif veiðigjalds á mitt bæjarfélag
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum
-17:40 Spumingar og svör
17:45 Veiðigjald - dragbítur á framþróun
í sjávarútvegi
Steingrímur Sigfússon, alþm.
og formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis
18:05 Spurningar, umræður og samantekt
Tómas Ingi Olrich, alþingismaður
18:30 Ráðstefnulok
Ráðstefnustjóri: Tómas Ingi Olrich
Skráning hjá KOM ehf. sími 562-2411 • símbréf 562-3411
Þátttökugjald er kr. 1.500
Skipuleggjendur ráðstefnunnar geta breytt dagskrá vegna
ófyrisjáanlegra atvika.
AKUREYRARBÆR
Sumarvinna fyrir fatlaða
Sumarvinna fyrir fatlaða hefst 9. júní og verður í
6 vikur.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir 16. maí til
Atvinnudeildar fatlaðra (Vinnumiðlun Akureyrar),
Glerárgötu 26, 600 Akureyri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Vinnumiðlun Ak-
ureyrar. Allar nánari upplýsingar veitir Hulda Stein-
grímsdóttir atvinnuleitarfulltrúi í síma: 460 1470.
Starfsmannastjóri.
F R E T T I R
Kópavogur
Bærinn kærir mat
á kindakofa
Gústaf Finnbogason sinnir kindum sínum í Kópavogi á góðviðrisdegi í lok nóvember á síðasta ári. Mál hans
dregur dilk á eftir sér og verður dýrara en þurft hefði. MyndÞöK.
Valþór Hlöðversson
gagnrýnir rök „ein-
hverra kerfiskarla, sem
eru með særðan metn-
að.“ Bærinn tapar á að
semja ekki.
Kópavogsbær mun kæra
mat Matsnefndar eignar-
námsbóta á kindakofa
sem stendur á byggingarlóð sem
beðið er eftir. Bærinn mun
greiða mun meira fé vegna
málareksturs en upphaflega var
farið fram á í bætur fyrir kof-
ann.
Valþór vildi mildari tök
á bónda
„Ég kalla það að bíta höfuðið af
skömminni að kæra svona mat
til dómstóla og halda ruglinu
áfram. Þetta er bæjaryfirvöldum
til skammar og mál að linni,“
sagði Valþór Hlöðversson, bæj-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins í
Kópavogi, í gær. Meirihluti bæj-
arráðs, allir nema Valþór, hefrn-
ákveðið að kæra málsmeðferð
Matsnefndar eignarnámsbóta,
vegna eignarnámsbóta til Gúst-
afs Finnbogasonar, eigenda 10
kinda, sem hann hýsir í íjárhúsi
sínu í Fífuhvammslandi.
Frá þessu máli var greint í
Degi-Tímanum í nóvemberlok á
síðasta ári. Gústaf hafnaði til-
boði bæjarins um 900 þúsund
krónur í bætur fyrir niðurrif
hússins, sem er öllu vandaðra
en venjan er um bústaði sauð-
fjárbænda á mölinni. Hann vildi
1.200 þúsund, en taldi sig hugs-
anlega geta lækkað sig. Málið
fór í hnút og bæjarráð óskaði
eftir eignarnámi, sem opinberir
aðilar framkvæmdu. Nú vill bæj-
arráðið ekki una þeirri aðgerð
og fer með málið til dómstóla.
Matsnefnd nær 50%
yfir mati
kaupstaðarins
Matsnefnd eignarnámsbóta
komst að þeirri niðurstöðu að
bænum bæri að greiða Gústaf
1.300 þúsund krónur, - en að
auki 300 þúsund til matsnefnd-
arinnar fyrir sína vinnu, og 150
þúsund tfl lögmanns Gústafs. Þá
er dæmið komið í 1.750.000
krónur, þegar semja mátti í upp-
hafl um 1,2 milljónir í bætur.
Við þetta mun bætast kostn-
aður við málastapp fyrir dóm-
stólmn, sem eflaust mun skipta
háum fjárhæðum.
„Mín afstaða byggist á mann-
úðarsjónarmiðmn. Mér finnst
ekki hægt að ráðast á gamalt
fólk eins og gert er í þessu máli.
Þau varða mig engu rök lög-
manna eða einhverra kerfls-
karla, sem eru með særðan
metnað vegna þess að þeirra
mat á eign hjónanna reyndist of
lágt,“ sagði Valþór Hlöðversson í
gær.
Guðmundur Oddsson, bæjar-
ráðsmaður Alþýðuflokksins í
Kópavogi, er ósammála Valþór.
„Ég á ekki eitt aukatekið orð
til yfir réttarkerfið í þessu
landi,“ sagði Guðmundur um
niðurstöðu hins opinbera aðila.
-JBP
Handavinnusýning í
félagsmiðstöðinni við Víðilund
Þeir eldri borgarar sem hafa sótt opið hús og
námskeið hjá Tómstundastarfi aldraðra í
vetur, verða með handavinnusýningu í Félags-
miðstöðinni við Víðilund, sunnudaginn 4. maí kl.
14-18, mánudaginn 5. maí kl. 13-17 og þriðju-
daginn 6. maí kl. 13-15.
Kaffisala verður ísal félagsmiðstöðvarinnar á
sunnudeginum milli kl. 15-18.
Akureyri
Ingólfur
Ármannsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Bæjarráð Akureyrar hefur
einróma lagt til að Ingólfi
Ármannssyni, skóla- og menn-
ingarfulltrúa Akureyrarbæjar,
verði veitt starf framkvæmda-
stjóra (sviðsstjóra) félags- og
frístundasviðs Akureyrarbæjar.
Tólf umsóknir bárust um starfið
víðs vegar af landinu, m.a. frá
Sturlu Kristjánssyni sálfræð-
ingi, sem fór jafnframt þess á
leit að afgreiðslu umsókna yrði
frestað af sérstökum ástæðum.
Bæjarráð gat ekki orðið við
þeirri ósk Sturlu sem hefur ver-
ið nýlega ráðinn til starfa hjá
Félagsmálastofnun Húsavíkur-
bæjar og er jafnframt stefnt að
því að Skólaþjónusta Eyþings
nýti starfskrafta hans að hálfu.
Sturla hefur starfað hjá Skóla-
skifstofu Reykjanesbæjar.
GG