Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Qupperneq 3
íDagmr-'QImtmrt Laugardagur 3. maí 1997 - 15 MENNING OG LISTIR Gleðilega Evróvision! Þó heldur minni spenna sé nú en fyrir 11 árum þegar hvert einasta manns- barn sat límt við skjáinn og fylgdist með Gleði- bankanum má engu að síður búast við að meiri- hluti þjóðarinnar kveiki á sjónvarpinu. Og öll höld- um við að sjálfsögðu með okkar manni, Páli Óskari. Blaðið hafði samband við þrjá söngvara: Björgvin Halldórsson, Sigríði Beinteinsdóttur og Stefán Hilmarsson. Öll hafa þau tekið þátt í keppninni, tvö þeirra oftar en einu sinni, en nú fylgjast þau með úrjjarlœgð... Kvíði, gleði og spenna Nei, ég vil engu spá um gengi lagsins," segir Björgvin Halldórsson sem tók þátt í söngvakeppninni árið 1995 þegar hann söng lag- ið „Núna“. Hinsvegar er hann þess fullviss að íslenski flytjandinn muni standa sig vel. „Páll er hress og þó lagið sé kannski ekki að allra skapi þá er það öðruvísi og því á hann eftir að vera okkur til sóma.“ Björgvin verður með dans- leik á Hótel Húsavík í kvöld þegar keppnin verður sýnd og reiknar með að fylgjast með keppninni þar ásamt Óperu- bandinu. „Þá munu örugglega skemmtileg augnablik riíjast upp. Ég tók einu sinni þátt og hef líka tekið þátt í mörgum öðrum söngvakeppnum erlend- is í sjónvarpi. Þetta er alltaf sérstök tilfinning sem læsir sig í mann. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa henni. Kvíði, gleði og spenna allt í einu. Bæði kalt og heitt.“ Björgvin Halldórsson. Síðasta skiptið erfiáast Eg veit ekki hverju ég á að spá. Eigum við ekki að segja 10.-16. sæti,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir um lag- ið „Síðasti dansinn" sem Páll Óskar flyt- ur í kvöld. Sigríður hef- ur þrisvar sinn- um tekið þátt í söngvakeppn- inni fyrir hönd íslands. Árið 1990 söng hún lagið „Eitt lag enn“ ásamt Grétari Örvarssyni og lentu þau í 4. sæti sem er besti árangur íslands í keppn- „Ég hugsa að hafi verið erfiðast í síð- asta skiptið. Þd þurfti ég að standa ein... inni enn sem komið er. Tveimur árum seinna var það lagið „Nei eða já“ sem hún söng með Sig- rúnu Evu Ármannsdóttur og þriðja skiptið var árið 1994 þegar hún söng „Nætur“. „Ég hugsa að hafi verið erfiðast í síð- asta skiptið. Þá þurfti ég að standa ein en hin skiptin hafði ég alltaf einhvern með mér. Annars eru þessar ferðir Iíka enda fyrir- komulagið alltaf eins.“ Sigríður Beinteinsdóttir. Sendir hlýja strauma Stefán Hilmarsson tók þátt í Evró- vision í fyrsta sinn árið 1988 þeg- ar hann söng lag Sverris Storm- skers, „Syngjum öll um Sókrates". Þremur árum seinna söng hann síðan lagði „Nína“ með Eyjólfi Krist- jánssyni og í fyrra fór hann einnig með en þá sem bakraddari. „Þetta eru skemmtilegar ferðir, eins og lítið ævintýri, og voðalega gaman að taka þátt,“ segir Stefán um reynslu sína. Hann segir öðruvísi að syngja í þessari keppni en á venjulegum tón- leikum að því leyti að mjög margir séu að horfa og því sé viljinn til að standa sig enn meira en ella. En ætlar hann að fylgjast með í kvöld? „Ég verð á far- aldsfæti og því veit ég ekki hvort ég sé keppnina. En ég sendi þeim örugg- lega hlýja strauma. Ég efast ekki um að Páll mun standa sig mjög vel. Hann er mikill skemmtikraftur og vanur að gefa vel af sér.“ Stefán Hilmarsson. „Eg verðd faraldsfceti og því veit ég ekki hvort ég sé keppnina. í fyrsta sinn í flugvél Geirmundur Val- týsson er víðför- ull maður og akt- ívur. Hann mun vera búinn að planleggja Spán- arför í sumar. f frí. Ekki kannski í frásögur fær- andi nema að þessi maður sem virðist stöðugt á ferð og flugi hefur víst aldrei drepið fæti á erlenda grundu og aldrei stigið upp í flug- vél... Sumarráðningar á sjónvarpinu Þá er Bogi Agústsson, fréttastjóri á Sjón- varpinu, farinn að líta í kringum sig eftir afleysingafólki. Sagt er að Bogi hafi afráðið að ráða Kristján Ara Arason, fyrrverandi fréttamann af DV og bróður Steingríms Ara Arasonar aðstoðarmanns Ijármála- ráðherra, inn á Sjónvarp en Kristján Ari hefur verið að bæta við menntun sína í Há- skóla íslands síðustu misseri auk þess að Handavinnu- klúbbur Hjá Vöku-Helgafelli eru menn að undir- búa eins konar handavinnuklúbb með svipuðu sniði og matarklúbbur- inn Nýir eftirlætis- réttir. Bjóst hand- verksfólk við að einhver hannyrða- snillingurinn yrði fenginn til að hafa umsjón með klúbbnum en aðstandendur forlagsins þekkja sinn heimamarkað og vita hvað selur því engin önnur en fegurðardísin og Happið í hend- inni, Unnur Steinsson var fengin í starfann... Undrabarn Undrasöngkonan unga Jessica Thie- vens heillaði gesti Háskólabíós á mið- vikudagskvöld með mikilli og fagurri rödd. Henni var vel fagnað. Hún er að- eins 15 ára, en stór- glæsileg, heimsvön og á greinilega eftir mikinn frama. í hlé- inu þótti að vísu sumum að hún þyrfti að lenda í ástarsorg áður en hún næði fullkomlega að túlka tregann í helstu óperuverkum heimsins, en aðrir bentu á að ekki mætti biðja um of mikið of fljótt: jafnaldrar hennar væru full- ir niður í Kringlu til að grenja úr sér sam- ræmdu prófin! (P.s Jessica syngur aftur í dag, í Há- skólabíói.) Athafnamóðir Ein skipuleggjenda tónleikanna með Jess- icu er Ragnheiður Hanson; var á fullu tón- leikakvöldið að koma öllu í kring - með litla dóttur í hönd - svona til að sýna að móðurhlutverkið fer með hverju sem er. vera í kennslu. Unnur Steinsson. Geirmundur Valtýrsson.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.