Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 3. maí 1997 IBagur-CDttntnrt au rottuðu sig saman eins og títt er um íslenska námsmenn í útlöndum og eftir örlítil kynni ákváðu þau að búa saman í New York. „Fyrst vorum við saman komnir ellefu íslendingar í tveggja herbergja íbúð sem Hrafnhildur og Ási, krakkar sem við þekkjum, leigðu. Þetta voru flóttamannabúðir og mað- ur þurfti að stíga yflr fjögur til fimm flet til þess að komast í sitt eigið. - En síðan duttum við þrjú niður á íbúð sem hentaði og það hefur gengið svona rosalega vel. Þetta er fyrir- myndar hjónaband." VM Iifstíðar skuldsetning íbúðin sem þau Þorgerður, Vil- hjálmur og íris (og kakkalakk- arnir) deila er í Brooklyn, í mjög pólsku hverfi. „Frá degi eitt fflaði ég New York“, segir Vilhjálmur Vilhjáimsson, sem er í meistaranámi í myndlist. „Þetta er lygilegur staður. Hér er það besta og það versta sem borgarmenning býður upp á. Og það sem New York hefur fram yfir margar aðrar borgir er allt þetta magn af öllu. Það eru t.d. 300 gallerí í SoHo þannig að maður gæti ver- ið á sýningum endalaust. Svo er það magnið af óhkum menningar- straumum sem eru í gangi hérna. Banda- rfldn eru eins og bútasaums- teppi og þá sór- staklega New York sem er brautarstöð. Maður hittir eigin- lega aldrei neinn sem er fædd- ur í New York, það eru allir frá öðrum löndum eða öðrum fylkj- um.“ ..Ég var ákveðinn í því að fara ekki til Bandaríkjanna þegar ég var í Myndlista- og handíðaskólanum, ég stefndi á framhaldsnám í Evrópu, Bandaríkin voru of dýr og eru það auðvitað ennþá. - En þegar ég loksins tók ákvörðun um að fara í framhaldsnám eftir fimm ára hlé þá fannst mér Banda- ríkin allt í einu mjög spennandi. Okkar rætur standa náttúru- lega í evrópskri menningu, bandarísk myndlist er hávær og frek á meðan íslenkir myndlist- armenn eiga meira sameigin- legt með myndlistarmönnum frá Norður-Evrópu þar sem „hógværari" og „rólegri" hlutir eru í gangi. Allt í einu fannst mér ágengnin spennandi,“ segir Villi. „Ég hef aldrei málað mynd á ævinni og þegar kom að því að velja deild þá sá ég að „New forms“ deildin hentaði mér en hún kemst nálægt því að vera eitthvað í lfldngu við nýlista- deildina heima. Þetta er deild þar sem maður er ekki bundinn af ákveðnum efnum eða hefð- um, öll efni eru leyfileg og hvort sem það eru bókverk, hljóð- verk, myndbönd eða hvað eina.“ Ánægður með sinn snúð Hvað ert þú að vinna með? „Við tölum stundum um það í deildinni að nafnið á deildinni hljómi óttalega „glamorous" því við erum kannski frekar að vinna með „old forms.“ Við erum að teikna og mála en hoppum úr einum efniviði í annan. Ég hef verið að vinna með teikningar og hef gert skúlptúra og bókverk." VUhjálmxn hefur lokið þremur önnum en fjórar annir eru skemmsti hugsanlegi tíminn til að Ijúka meistara- gráðu frá Pratt Institute. „Og það er náttúrulega tíminn sem Lánasjóðurinn miðar við þótt fimmtán einingar á önn sóu engan veginn kjöraðstæður. Bóklega námið tekur mikinn tíma frá stúdíóvinnunni og áður en maður útskrifast heldur maður lokasýningu sem ein- kunnin er að stórum hluta byggð á. Með þessari sýningu kveður maður skólann og þar er líka vettvangurinn fyrir fólk að kynnast þér sem listamanni, Bandartkin eru eins og bútasaums- teppi og þd sérstak- lega Neiv Yprk. Maður hittir eigin- lega aldrei neinn sem er fceddur hérna, það eru allir frd öðrum lónd- um eða öðrum fylkjum. “ L.IFIÐ I LANDINU Þorgerður, Villi og Iris. þannig að sýningin er mikilvæg og því vil ég hafa hana góða.“ Ertu að fá út úr náminu það sem þú vonaðist eftir? „ Já, ég held það og vona. Maður er að skuldsetja sig fyrir lífstíð. Ég held að ef fólk hugs- aði dæmið til enda myndu margir aldrei fara í nám í dag, þetta eru það miklar skuldbind- ingar sem þú ert að setja á þig og þína nánustu. - En ég tel mig fá heilmikið fyrir minn snúð.“ Ætlarðu heim? „Ég held að það fari allir heim á endanum en hvort ég fer heim eftir eitt ár eða fimm veltur á því hvað gerist hérna. Núna eru fínir hlutir í gangi, ég verð hugsanlega með í sýningu í ágætis galleríi eftir ár, sem er frábært. Ef eitthvað spennandi rekur á fjörur mínar vildi ég gjarna vera hérna eitthvað áfram.“ Thoræ Stríðs- hugmyndin er þreytt „Ég hugsa að ég hafi alftaf verið feministi eða ég held því fram að ég hafi verið feministi frá því ég var barn,“ segir Þorgerður Þorvaldsdóttir, sem fór til New York í meistaranám í „Gender Studies" (Kvennafræðum). Hún lauk B.A. prófi í sagnfræði frá HÍ og B.A. ritgerðin hét „Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður?" Hún pældi í kvennasögu eða konum sem eru/voru týndar í sögunni. „Mér fannst sagan sem slík geld og í B.A. náminu var ég ekki að gera það sem ég vildi gera. Það sem vantaði í söguna var hugmyndin um að breyta heiminum. Ég sá óréttlæti og vonda hluti alls staðar og hélt, er ekkert endilega viss lengur, að með því að fara í „Gender Studies" fengi ég akademískt tól til að breyta hlutunum." Hvað eru kvennafrœði? „í fyrsta lagi þá eru þetta ekki kvennafræði heldur „Gen- der Studies" en „gender“ er þýtt sem „kyn“ sem er ekki full- komin þýðing vegna þess að „kyn“ hefur svo sterka vísun í Iíffræðilegt kyn á meðan „gen- der“ vísar til þess hvernig líf- fræðilegt kyn er félagsgert og notað sem allsherjar viðmið. Þannig skera kynfæri barns, það hvort það fæðist með tippi eða píku, úr um líffræði- legt kyn. Það að stelpan fær bleikt armband en strákurinn blátt er hins vegar „gender“ dæmi, fyrstu skilaboðin af mörgum um það hvað það þýðir að vera karl eða kona í samfélaginu. Kyn eða „gender“ eru þá sam- bærilegar breytur og kynþáttur og stétt og það er erfitt að slíta breyturnar í sundur. Maður er aldrei bara kona heldur hvít, svört eða „latínó“ kona, alltaf „heterosexual“, „homosexual“ eða „bi-sexual“ og af tiltekinni stétt. Þetta nám hefur snúist um að skoða heildina og ein- blína ekki á stöðu kvenna held- ur stöðu kynjanna og þá hvern- ig kyn mótar stöðu þína í þjóð- félaginu ásamt hinum breytun- um, kynþætti, kynhneigð og stétt.“ Feita staðan býður ekki Þorgerður er í tveggja ára meistaranámi við The New School for Social Research en tekur sér árshlé og lýkur því væntanlega næsta vor. „Ég hef bæði verið ánægð í námi og ekki. Þegar ég stóð á þeim tímamótum að eiga að fara að skrifa MA-ritgerðina þá týndist ég aðeins. Ég vissi ekki ná- kvæmlega hvað ég ætlaði mér með þessu námi og ákvað því að taka mér smá frí í stað þess að einblína bara á að klára. Þetta er mjög dýrt nám, ég borga rúm- lega hálfa millj- ón í skólagjöld á önn þannig að ég er að ijárfesta í námi upp á rúmar tvær milljónir. Gráðan sem slík er ekki hið endanlega og eina takmark. Tilgangurinn er menntunin sem slík og kannski fannst mér ég ekki vera að fá þá menntun sem ég vildi fyrir þessa peninga. Þegar ég lýk þessu námi bíður mín heldur engin feit staða heima.“ Þorgerður er enn skráður stúdent í skólanum og fékk því vinnu á bókasafninu. „Á fyrri önn vann ég á safninu með námi og þeir samþykktu að ég myndi auka vinnuna þar. Þetta er mjög fínt þar sem ég hef enn aðgang að tölvum og bókakosti „Það að segjast vera feministi i Bandaríkjunum er jafnvel meira stuð- andi en heima. Ncesta spurning er ncestum alltaf: Nú, hatarðu þd karl- menn?“

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.