Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Page 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Page 10
^2-YauVar'SaguTT^Sm^)7 LIFIÐ I LANDINU þó hantt! hafl reyndar setið í stjórn síðan 1995. Nokkur tog- streita hefur verið undanfarið milli landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðis þegar málefni Landsvirkjunar hafa verið rædd, m.a. vegna þess að virkj- unar- og stóriðjuframkvæmdir eru að mestu leyti á höfuðborg- arsvæðinu. Jóhannes segist gera sér grein fyrir að þessi togstreita sé ein ástæðan fyrir að landsbyggðarmaður var kos- inn í embættið. „Þó ég muni að sjálfsögðu vinna faglega að málefnum Landsvirkjunar er alveg ljóst að ég, búsettur fyrir norðan, hef aðra sýn að nokkru leyti en þeir sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu," segir hann. Framtíð Landsvirkjunar næstu árin segir Jóhannes þeg- ar vera mótaða að hluta. Búið sé að ganga frá stórum samn- ingum um orkusölu og næstu árin fari í uppbyggingu til að útvega þessum kaupendum þá orku sem þeir þurfi. „Hitt stóra verkefnið er að menn átti sig á hvert fr amtíð ar skipu- lag orkumála f landinu verði. Ljóst er að breytingar verða og ég held að öllum sé fyrir bestu að þær verði nokkuð hægar,“ segir hann. í þessu samhengi nefnir hann m.a. þann hugsanlega mögu- leika að tengja ísland við Evr- ópu og flytja út orku. „Ef það yrði tæknilega mögulegt og fjár- hagslega hagkvæmt værum við komin með allt aðra stöðu í orkumálum.“ -Hvað þær hugmyndir sem komið hafa fram að einkavæða hluta Landsvirkjunar? „Landsvirkjun er að hálfu leyti í eigu ríksins og að hálfu leyti í eigu tveggja stórra sveit- arfélaga, Reykjavíkur og Akur- eyrar, þannig að hún er algjör- lega í opinberri eigu. Ef nýir aðilar koma inn sé ég það helst gerast á þann hátt að þeir reistu virkjun og færu að selja orku inn á orkukerfið. Ef það er framtíðin þá yrði að setja allt því sem stjórn KEA vill leggja áherslu á um þessar mundir er kynning og segir Jóhannes stefnt að því að auglýsa fyrir- tækið meira út á við. „Hver við erum og hvað við getum gert,“ segir hann. Jóhannes bendir á að KEA eigi það sameiginlegt með öll- um fyrirtækjum í landinu að hafa á engu að byggja öðru en eigin rekstri og þeim íjármun- um sem hægt sé að ná úr hon- um. Hinsvegar sé fyrirtækið frábrugðið flestum öðrum að því leyti að uppbygging sé mjög lýðræðisleg þar sem hver fé- lagsmaður hafi eitt atkvæði og sama rétt til að koma inn á deildarfundi og taka þátt í starfinu. Annað sem máli skipti sé að starfsemi KEA sé mjög víð. „Kannski má segja að við endurspeglum að nokkru leyti íslenskt atvinnulíf því við erum í það mörgum greinum. Þess vegna verður afkoma KEA aldrei nijög langt frá meðal- afkomu í ís- lensku at- vinnulífi þó eitt af okkar mark- miðum sé að standa okkur betur en með- altalið. “ Óréttmæt gagnrýni Menn sem starfa jafnmik- ið í félagsmálum og stjórnmál- um og Jóhannes fara ekki var- hluta af gagnrýni á störf sín, bæði réttmætri og óréttmætri. í gegnum árin segist hann hafa myndað nokkuð sterkan skráp gagnvart þesskonar umtali en viðurkennir þó að gagnrýni sem beindist gegn honum á síðasta aðalfundi KEA hafi hann tekið nærri sér, og einnig fróttaum- Qöllun um fundinn þar sem þriðjungur af frétt í Degi-Tím- anum hafi verið lögð undir að skýra frá því sem Jóhannes kallar „ávirðingar eins manns“ gagnvart sér, þegar ýmsu öðru sem fram kom á fundinum var sleppt að segja frá. „Mér var borið á brýn óheiðarleiki og að hafa misnotað aðstöðu mína gagnvart kaupfólagnu. Ég held hinsvegar að mér sé óhætt að „Kannski ma segja að við endurspegl- um að nokkru leyti íslenskt atvinnulíf því við erum í það mörgum greinum... “ Fyrst og síðast bóndi Nafn Jóhannesar Geirs Jóhannes Geir er fæddur og uppbyggingunni og búa þau á Sigurgeirssonar kannast uppalinn á Öngulsstöðum í Öngulsstöðum ásamt barni dreifikerfið í eitt fyrirtæki sem segja að eftir að ég varð stjórn- margir við úr fiölmiðlum. Eyjafirði og þar hefur hann bú- sínu. °Pið öllum, Landsvirkjun arformaðiu- KEA hef ég alltaf afn Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar kannast margir við úr Qölmiðlum. Hann sat í fimm ár á þingi fyrir Fram- sóknarflokkinn, er stjórnarfor- maður Kaupfé- lags Eyfirðinga og var nú ný- lega einnig kosinn stjórn- arformaður Landsvirkjunar. Fyrst og fremst telur hann sig samt vera bónda og við- urkennir fúslega að það sé sveitin sem standi hjarta hans næst. ... alveg Ijóst að ég, búsettur fyrir norðan, hef aðra sýn að nokkru leyti en þeir sem eru bú- settir d höfuðborg- arsvœðinu. “ Jóhannes Geir er fæddur og uppalinn á Öngulsstöðum Eyjafirði og þar hefur hann bú ið mestan hlut ævinnar. f viðbót við búskapinn hefur fjölskyld- an undanfarin ár verið að byggja upp ferðaþjónustu á staðnum og segir Jóhannes að þar sé um sannkallað íjöl- skyldufyrirtæki að ræða því fjórir ættliðir komi þar nærri. Auk Jóhannes- ar, konu hans Kristínar Brynj- arsdóttur og foreldra hans, tek- ur elsta dóttir hans og sambýl- ismaður hennar einnig þátt í uppbyggingunni og búa þau á Öngulsstöðum ásamt barni sínu. Jóhannes játar því að erfitt sé að finna tíma fyrir þetta allt, stjórnarformannsstörfin, bú- skapinn og uppbyggingu ferða- þjónustunnar. „Það sem á hak- anum situr er vinnan heima við,“ segir hann og bætir við að vinnan þar hafi því lent af meiri þunga á aðra Ijölskyldumeð- limi. „Annars held ég að menn komi því í verk sem þeir ætla að koma í verk.“ Landsbyggðarmaðurí Landsvirkjun Stjórnarformennska í Lands- virkjun er nýjasta verkefni Jó- hannesar enda aðeins nokkrir dagar síðan hann var kosinn, dreifikerfið í eitt fyrirtæki sem yrði opið öllum, Landsvirkjun jafnt sem öðrum. Hver sem þró- unin verður sé ég fyrir mér að um langa framtíð verði Lands- virkjun drifkrafturinn og lang- stærsti aðilinn í orkuframleiðslu og orkusölu.“ Aukið kynningarstarf Jóhannes Geir er einnig stjórn- arformaður Kaupfélags Eyfirð- inga og þar segir hann tölu- verða gerjun vera í gangi. „Á síðasta ári var heilmikil stefnu- mótunarvinna unnin sem síðan britist á deildarfundum félags- ins haust og var samþykkt af stjórn. Síðan fer þessi stefnu- mótun aftur inn í fyrirtækið og að henni verður unnið í deild- unum,“ segir Jóhannes. Eitt af segja að eftir að ég varð stjórn- arformaður KEA hef ég alltaf látið félagið hafa forgang t.d. ef rekist hafa á eigin hagsmunir og Kaupfélagsins hvað varðar vinnutíma." Aftur á þing? Við getum ekki skilið við Jó- hannes án þess að forvitnast hvort þingmennskan heilli enn og því er spurt: Langar þig aft- ur inn á þing? „Ef ég á að svara í fyllstu einlægni þá er svarið í dag: Nei. Ég lít á að tíminn á þingi hafi verið lærdómsríkur og skemmtilegur en honum sé lok- ið og ég reikna ekki með að fara inn á þann vettvang aftur. Hinsvegar veit maður aldrei hvað gerist í framtíðinni." AI

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.