Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.05.1997, Síða 5
jDagur-Símmn
Þriðjudagur 6. maí 1997 - Í7
VIÐTAL DAGSINS
Talsverð œvintýra-
þrá er innan lög-
reglunnar og er
Steinþór Hilmars-
son gott dœmi um
það. Hann sótti um
að komast til Júgó-
slavíu árið 1995 á
vegum SÞ en komst
ekki því að stríðið
var búið. Þrír lög-
reglumenn fara
innan skamms í
nokkurra vikna
þjálfunarbúðir í
Danmörku.
Þetta er á allt öðrum for-
sendum en ég var með í
gangi fyrir mig 1995 því
að það var allt í gegnum Sam-
einuðu þjóðirnar. Þá var ég að
hugsa um að komast sem lög-
reglumaður til Sarajevó meðan
stríðið var. Ég var búinn að
senda öll gögn til New York og
Sarajevó og búinn að fá grænt
ljós á það að ég væri fullgildur í
þessar sveitir en svo settust
snillingarnir niður og sömdu
frið einum eða tveimur mánuð-
um eftir að þetta var komið í
höfn hjá mér. Þannig að það
varð aldrei neitt úr þessu,“ seg-
ir Steinþór Hilmarsson, lög-
reglumaður í Reykjavík.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að senda þrjá íslenska lögreglu-
menn með 30 manna danskri
lögreglusveit til starfa í Bosníu
og munu þeir starfa með Dön-
unum að löggæslustörfum í
landinu. Þetta er gert í sam-
ræmi við Dayton-samkomulagið
og fara þeir til Bosníu í haust.
Auglýst hefur verið eftir lög-
reglumönnum og verður ákveð-
ið innan skamms hverjir fara.
Ævintýraþráin blundar í mörg-
um og er Steinþór Hilmarsson,
lögreglumaður í Reykjavík, gott
dæmi um það. Hann var búinn
að sækja um að komast til
Sarajevó á vegum Sameinuðu
þjóðanna ário 1995.
Kominn
með grænt Ijós
Steinþór frétti af þeim mögu-
leika að fara til vinnu á vegum
Sameinuðu þjóðanna gegnum
vin sinn hjá Hjálparstofnun
kirkjunnar. Hann fór á stúfana
og komst að raun um að hann
gæti sótt um að komast til
Sarajevó án þess þó að lög-
reglustjóraembættið eða dóms-
málaráðuneytið hefðu þar
nokkuð hönd í bagga. Hann
ákvað að slá til og var búinn að
afla sér allra tilskilinna gagna.
Hann var kominn á biðlista í
Sarajevó þegar friður komst á í
landinu. Ekkert varð því úr
ferðinni.
Steinþór segir að „Júgó-
slavíu-ævintýrið" sé löngu liðið
þó að auðvitað eigi hann inni
umsókn hjá utanríkisráðuneyt-
inu og geti hugsanlega ýtt við
henni ef annað tækifæri byðist
á vegum Sameinuðu þjóðanna
annars staðar í heiminum. Sú
ákvörðun að senda lögreglu-
menn til Bosm'u sé allt annars
eðlis en í sínu tilviki. Forsend-
urnar séu allt aðrar og allt önn-
ur kjör í boði en fyrir tveimur
árum og því hafi hann lítinn
áhuga á að fara til Bosníu.
Hann ætli ekki að sækja um.
Peningaleg uppgrip?
„Enda kannski ekki saman að
Margir lögreglumenn hafa sótt um að komast til Bosníu með danskri sveit lögreglumanna. Það eru þó aðeins þrir
sem komast. Steinþór Hilmarsson er ekki spenntur fyrir því að fara til Bosníu en hann var næstum kominn til
starfa í Sarajevó fyrir tæpum tveimur árum þegar friður komst á í landinu. Myrd: Hilmar Þór
jafna því að það voru náttúru-
lega stríðstímar og átök í land-
inu. Eftir því sem áhættan er
meiri þeim mun meira er borg-
að fyrir hana. Nú er komið frið-
arástand á yfirborðinu þannig
að kjörin hafa versnað. í mín-
um augum í dag er þetta ekki
eins spennandi nema kannski
hvað varðar tilbreytingu og æv-
intýraþrá. Þetta eru engin pen-
ingaleg uppgrip núna,“ segir
hann.
- En hvað er það sem fær ís-
lenska lögreglumenn til að
sækjast eftir störfum á ófriðar-
svæði?
„Þetta var í og með ævintýra-
þrá og tilbreyting. Svo voru góð
laun og fríðindi í boði,“ segir
Steinþór og fagnar því að félög-
um hans skuli gefast kostur á
að fá tilbreytingu í starfi og aíla
sér reynslu á Qarlægum slóðum
við framandlegar aðstæður.
-GHS
BREF UR SKAFTARHREPPI
Vor á Kirkjubæjarklaustri
Óiafía
Jakobsdóttir
skrifar
Góðir lesendur.
Nú er sumardagurinn fyrsti lið-
inn og vorið hægt og sígandi að
taka völdin. Vorhret síðustu
daga er vonandi að svífa á
braut. Hér á suðaustanverðu
landinu vorar oftast einna fyrst
og farfuglarnir koma hér
snemma og hvílast, eftir lang-
flugið yfir hafið.
í hvert sinn sem það tekur
að vora fyllist maður af gleðitil-
finningu yfir þessu mikla ævin-
týri sem á sér stað í náttúrunni
þegar fuglasöngurinn fer að
hljóma, trén opna brum sín og
græni liturinn breiðir sig yfir
vetrarþreytta jörðina og klæðir
hana í nýjan búning. Ég gleðst
alltaf sérstaklega þegar ég sé
fyrstu brennisóleyjuna og tún-
fífilinn breiða sínar gulu krónur
út á móti sólinni. Þá spilla held-
ur ekki vorgleðinni innflytjend-
urnir í garðinum.vetrargosinn,
krókusarnir, páskaliljurnar og
allir hinir vorlaukarnir sem
gjarnan bíða ekki eftir að vorið
komi fyrir alvöru og sýna
sprota sína jafnvel í janúarlok
ef sæmilega viðrar. í ár byrjaði
vetrargosinn að blómstra við
húsvegginn í febrúarlok og
íljótlega komu krókusarnir á
eftir, fyrst þeir gulu og hvítu og
síðan komu bláu litirnir í ljós.
Annar mikilvægur vorboði
hér á Kirkjubæjarklaustri eru
ferðamennirnir. Venjulega byrja
þeir að sjást hér fyrir alvöru í
maímánuði, en síðastliðinn vet-
ur hefur verið mjög óvenjuleg-
ur, hvað þetta varðar, vegna
ferðalaga landsmanna til að líta
augum náttúruhamfarirnar á
Skeiðarársandi. Það má því
segja að vor hafi ríkt í ferða-
þjónustunni hér á liðnum vetri.
Flest allar helgar frá áramótum
hefur ljöldi fólks lagt leið sína
hingað austur og hefur þessa
gætt mjög í ferðaþjónustu um
allt Suðurland.
Nú þegar hlýna tekur í veðri
og x'sjakarnir á
Skeiðarársandi
fara að bráðna
niður í sandinn
og mynda
hættuleg kvik-
syndi, er
ástæða til þess
að biðja ferða-
fólk sem leggur
leið sína um
Skeiðarársand
að gæta varúð-
ar og fara í
einu og öllu
eftir merking-
um og leiðbein-
ingum sem
gefnar hafa
verið út af Al-
mannavörnum
vegna ferðalaga á Skeiðarár-
sandi.
Annar vorboði sem ekki er
eins mikill auðfúsugestur og
farfuglarnir, ferðamennirnir og
vorblómin er aurbleytan á út-
slitnum og ónýtum malarvegun-
um sem liggja um sveitirnar. Ef
tíðarfarið er
gott eins og nú í
vor og jörðin
þiðnar hratt
vaðast vegirnir
út með þeim af-
leiðingum að
erfiðleikum er
háð fyrir íbú-
ana að ferðast
um vegina. Við
sem erum svo
heppin að þurfa
ekki að fara út
af bundnu slit-
lagi á leið í
vinnu eða til að
sækja þjónustu
til þéttbýlis-
staða getum
vart sett okkur
í spor þess fólks sem býr við
svona samgöngur og þarf að
sækja daglega vinnu og þjón-
ustu við slíkar aðstæður.
Það veldur okkur dreifbýlis-
búum því miklum vonbrigðum
hve selnt það gengur að koma
samgönguæðum sveitanna í
viðunandi horf. Ætla hefði mátt
að eftir því sem stærri hluti af
hringveginum og öðrum aðal-
vegum landsins fær bundið slit-
lag, þá væri hægt að verja
auknu fjármagni til uppbygg-
ingar og viðhalds á tengi- og
safnvegakerfi sveitanna, en þær
vonir hafa því miður brugðist.
Ef ágætir hagsmunagæslu-
menn okkar, þingmennirnir,
vilja viðhafa alvöru byggða-
stefnu í landinu þá býðst þeim
þarna verðugt verkefni til að
spreyta sig á, í þágu dreifbýlis-
ins.
Ég vil svo að lokum óska
landsmönnum gleðilegs sumars
og megi margir grænir fingur
fara höndum um landið okkar í
vor og sumar til að græða og
fegra fósturjörðina.
Annar vorboði sem
ekki er eins mikill
auðfúsugestur og
farfuglarnir, ferða-
mennirnir og vor-
blómin er aurbleyt-
an á útslitnum og
ónýtum malarveg-
unum sem liggja
um sveitirnar.