Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Blaðsíða 2
14 - Fimmtudagur 8. maí 1997 jOaguiÆúnmn
LIFIÐ I LANDINU
Auðvelt að fá vinnu
„Allir mínir félagar eru útivinn-
andi og í kvöldskóla líka. Það er
enginn þeirra í dagskóla. Það
er mjög auðvelt fyrir þá að fá
sér vinnu,“ segir Arnþór Gunn-
arsson, 19 ára starfsmaður hjá
Bónus, þar sem hann var að
renna sér á bretti á Ingólfs-
torgi.
Arnþór hefur verið í fastri
vinnu hjá Bónus í rúmt ár og
telur sig verða þar í sumar. En
skyldi ekki vera erfitt fyrir vini
hans að fá sér vinnu?
„Nei, nei. Þeir hafa mjög góð
sambönd," segir hann. -GHS
Menntskælingurinn Sigurrós Pálsdóttir er að leita sér að vel launaðri
vinnu því að hún fer til útlanda í sumarfrí.
Misjafnt hvenær ég fæ svar
„Ég hef reynt að leita mér að
vinnu en það gengur hægt. Það
er ekki mikill tími til þess. Ég
hef sótt um og það er ofboðslega
misjafnt hvenær ég fæ svar.-
Sumir viija að ég reki á eftir því
og aðrir segja að ég fái svar
bráðum," segir Sigurrós Páls-
dóttir, tvítugur menntskælingur.
Sigurrós segist vera að leita
sér" að „einhverri vinnu sem gef-
ur góðan pening. Ég er að fara
út til London þannig að ég er að
safna. Ég er til dæmis að leita að
vinnu í búð eða einhverju sem
er ekki beint krefjandi," segir
hún.
Sigurrós telur misjafnt hvort
skólafélagar hennar séu búnir
að fá vinnu. Sumir þeirra hafi
verið með sömu vinnuna sumar
eftir sumar og gangi að henni
vísri. Sjálf hafi hún hins vegar
verið erlendis í fyrra og hitti-
fyrra og gangi því ekki að neinu
vísu. Margir séu í sömu sporum.
- En er mikið atvinnuleysi?
„Það er örugglega eitthvað en
ekki mikið í kringum mig,“ segir
hún. -GHS
Unga fólkið
Þrautaganga skólafólks er byrjuð og komin vel á
veg, hið endalausa labb unga fólksins milli fyrir-
tœkja til að spyrja um vinnu, fylla út eyðublöð,
rœða við yfirmenn og reyna að koma vel fyrir til
að koma nú örugglega til greina í happdrœttinu
um góðu og velborguðu vinnuna í sumar. Það eru
tiltölulega fáir sem detta í lukkupottinn og upp-
skera ríkulega í peningum yfir sumarið, mun
fœrri heldur en tíðkaðist á árum áður. Atvinnu-
horfurnar eru þó mun betri í sumar en síðustu
sumur og mun fleiri komnir með vinnu nú miðað
við sama tíma ífyrra.
(^jsumar-
störfin
Guðmundur fer í framkvæmdarstjórn.
Beint í rekstur
Guðmundur R. Gíslason les nú
undir síðustu prófin í Kennara-
deild Háskólans á Akureyri en
stefnir samt ekki á kennslu með
haustinu. „Ég er að ráða mig í
vinnu sem framkvæmdastjóri
fyrir hótel- og veitingastað á
Neskaupstað og býst við að ég
verði í því næstu árin. Ég leigi
aðstöðuna og stofna fyrirtækið
sjálfur en það var bæjarstjórnin
í Neskaupstað sem valdi úr um-
sækjendum." Guðmundi sýnist
að þeir nemendur sem hann
umgengst hafi átt auðvelt með
að fá vinnu í sumar, hafi jafnvel
valið úr störfum. „Ég veit samt
að það er atvinnuleysi hér á
Akureyri og flestir eru að fara
að vinna annars staðar."
Guðmundur hefur ekki
áhyggjur af því að vera ekki á
leiðinni í kennslu segist bara
kenna seinna. -mar
Hlakkar til HaHósins
Marías Kristjánsson er að ljúka
námi frá kennaradeild Háskól-
ans á Akureyri og fer að kenna
í haust en í sumar verður hann
tjaldvörður. „Ég verð hérna á
tjaldstæðinu og hlakka mest til
hátíðarinnar Halló Akureyri.
Maður tekur bara á málum eins
og ætlast er til af manni en ég
held að þetta verði aldrei eins
margt og í fyrra.“
Marías hlakkar til að vinna
sem tjaldvörður. „Að kynnast
fólki hvaðan æva er spenn-
andi,“ en með haustinu fer
hann að kenna austur í Nes-
kaupstað. Síðustu þrjú sumur
hefur Malli unnið sem flokks-
stjóri í unglingavinnunni í Nes-
kaupstað. „Það er nauðsynlegt
að öðlast reynslu af sem flest-
um störfum.“ -mar
Arnþór, 19 ára, vinnur hjá Bónus og verður þar í sumar.
Marías verður tjaldvörður í sumar.
Atvmnu•
tilboð
streyma
inn
Atvinnuhorfur
ungsfólks eru
prýðilegar í sum-
ar. Atvinnutilboð
hafa streymt inn
til Vinnumiðlunar
stúdenta.
Staðan hjá okkur er ljóm-
andi góð. Atvinnurekend-
ur hafa tekið við sér í fyrri
kantinum og það rjúka inn
og út atvinnutilboð og starf-
semin hefur verið mjög líf-
leg. Minnst eftirspurn er eft-
ir yngstu nemunum allt nið-
ur í 16 ára úr framhalds-
skólum landsins. Það eru
þeir sem hafa minnstu
starfsreynsluna á vinnu-
markaðinum og eru komnir
styst í námi. Það hefur verið
nokkuð áberandi hversu h'lll
eftirspurn er eftir slíkum
vinnukrafti,“ segir Erla Hlín
Hjálmarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vinnumiðlun-
ar stúdenta.
Hún segir að atvinnurek-
endur sækist eftir mjög sér-
hæfðum vinnukrafti, fólki
sem er komið langt í há-
skólanámi og er komið með
talsverða starfsreynslu og
þekkingu á afmörkuðum
sviðum. Þá hefur tækniþekk-
ing verið eftirsótt, verk-
fræðinemar, iðnaðartækni-
fræði og af viðskiptasviði.
Það eru helst nemar með
mikla sérþekkingu sem fá
góð laun fyrir sumarvinn-
una, um eða yfir 150 þúsund
krónur.
„Það er af sem áður var.
Það hafa komið inn tilboð
um góð sumarlaun og þá er-
um við fyrst og fremst að
tala um sérhæfðu Iaunin,“
segir Erla Hlín.
Um 1.300 nemar eru á
skrá hjá Vinnumiðlun stúd-
enta, þar af eru ntargir sem
þegar eru komnir með sum-
arvinnu eða eru um það bil
að finna sér hana án
milligöngu miðlunarinnar.
Erla lllín segist þó búast við
að Vinnumiðlunin verði
starfrækt langt fram á sum-
ar, þannig hafi það að
minnsta kosti verið í fyrra.