Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 2
2 - Fimmtudagur 29. maí 1997 l®agur-'3Imriim FRÉTTIR, Sjö kaþólskir prestar starfa hér á landi, en Jóhannes Gijsen biskup vonast til þess að hægt sé að laða hingað fleiri presta frá ýmsum löndum og á næstu árum að stofna hér munkaklaustur. Mynd: Hilmar Flciri mmnur til landsins Heiti Potturinn Framtíð Jóns Baldvins Hannibalssonar brennur á mönnum í heita pottinum. Hvers vegna fæst ekki staðfest að hann sé á leið til Washington að verða sendiherra úr því það er á allra vitorði. Þessu velta pottverjar fyrir sér sínkt og heilagt. Nú er fullyrt að ástæðan sé sú að það standi á svari Jóns Bald- vins. Honum standi starfið til boða en það vefjist fyrir honum að þiggja það. Tvær kenningar eru uppi um ástæður þess. Önnur er sú að Jón eigi erfitt með að sætta sig við að verða emb- ættismaður. Hin er sú að Jón vilji einfaldlega vera áfram í pólitík. Hann vonist til að það verði af samein- ingu vinstri og að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir taki að sér leiötogahlutverkið þar. Sjálfur geti Jón hugsað sér að taka sæti Ingibjargar og verða næsti borgarstjóri Reykvíkinga. Og meira um manna- skipti og góða stóla. Pottverjar hafa lengi dund- að sér við að máta nýja og nýja menn í stól forstjóra Landvirkjunar, en Halldór Jónatansson lætur af störf- um þar um ármótin. Friðrik Sophusson hefur verið „heitasta" nafnið í þessum leik en væntanlega skýrist þetta ekki fyrr en með haustinu. Ný stjórn Lands- virkjunar tók við nýlega og í pottinum er fullyrt að fjöl- margir menn héðan og það- an hafi viðrað sig við nýja stjómarmenn á dögunum og gefið í skyn að þeir væru meira en reiðubúnir að taka þetta starf að sér. Nunnur frá Mexíkó og Svíþjóð eru væntaleg- ar hingað til lands bráðlega og kaþólski biskupinn hér á landi vonast eftir því að hér rísi munkaklaust- ur á næstu árum. Fimm til sex nunnur úr Margrétarreglu eru vænt- anlegar til landsins bráð- lega. Þær eru frá Mexíkó og regla þeirra, sem stofnuð var 1902, starfar þar og í Perú og Bandaríkjunum. Stofnandi regl- unnar var móðir María Guadal- upe Carcia Zavala, sem vænt- anlega verður tekin í tölu hinna blessuðu innan tíðar, að því er fram kemur í kaþólska kirkju- blaðinu. Margrétarsystur eru um 200 og flestar ungar. Syst- urnar sem hingað koma munu annast sjúklinga og aldraða, hjálpa til í trúfræðslu og í fram- tíðinni um heimilshald prest- anna og biskupsins. Þá er von á að nokkrar Birgittusystur setjist að á íslandi á næstunni. Þær eru af hinni gömlu Reglu hins alhelga lausnara og kenndar við heilaga Birgittu frá Svíþjóð. Systurnar í Birgittureglunni er uum 500 og frá mörgum lönd- um heims. Þær leggja einkum stund á bænalíf og skipuleggja kyrrðartíma, námskeið og við- ræðufundi um kaþólska trú. Munkaklaustur Kaþólikkar hér á landi vonast einnig til þess að þeim takist að koma á fót munkaklaustri inn- an fárra ára. Þeir horfa til árs- ins 2000 þegar minnst verður 1000 ára afmælis kristni í land- inu og segjast vona að það „tak- ist að endurlífga þá fornu hefð að hafa hugleiðingarklaustur fyrir munka í landinu. Slíkir munkar gætu einnig hlaupið undir bagga með okkur í prestsþjónustunni," segir Jó- hannes Gijsen, Reykjavíkur- biskup í kaþólska kirkjublað- inu. Hann segist vonast til að þetta markmið náist með því að laða hingað presta frá ýmsum löndum og að páfastólinn hafi heitið sér hjálp og meðalgöngu til þess. Hússtjórnarskólinn Konurí hússtjóm Forráðamenn Hússtjórnar- skólans í Reykjavík, Banda- lag kvenna og menntamálaráð- herra eru að heíja viðræður um að bandalagið taki að sér að reka skólann, sem sjálfstæða stofnun eða einkaskóla. Nokkur óvissa hefur ríkt um starfsemi skólans undanfarið. Ekki var gert ráð fyrir fjárveitingum til hans á næsta skólaári í fjárlög- um, heldur gert ráð fyrir að boðið yrði upp á kennslu í hús- stjórnarfræðum við matvinnslu- braut Menntaskólans í Kópa- vogi. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að ræða við Bandalag kvenna í Reykjavik og er einnig stefnt að því að Reykjavíkur- borg komi að rekstri skólans. „Með þessum hætti tel ég að unnt sé að tryggja framtíð skól- ans og sérstöðu hans,“ segir Björn Bjarnason í vikulegum pistli sínum á Internetinu. -vj Samvinnuháskólinn Veiðigjald útfært Sex nemendur í Samvinnuhá- skólanum á Bifröst hafa gert úttekt á hinum ýmsu útfærslum veiðigjalds. Þrátt fyrir miklar og heitar umræður um veiðigjald hér hefur slík úttekt ekki áður verið gerð svo vitað sé. Nem- endurnir sex skoðuðu sérstak- lega átta útfærslur sem byggja á núverandi kvótakerfi og fram- kvæmd samanburðarrannsókna á tólf helstu einkennum þeirra. Höfundar skýrslunnar skil- greina veiðigjald sem gjaldtöku tengda úthlutun kvóta fyrir af- not af sameiginlegri auðlind, óháð því hvernig tekjunum er ráðstafað. Þessi skilgreining byggir á því að menn hafa ekki verið sammála um það hvort það teljist veiðigjald þegar gjaldið er eingöngu notað til að greiða kostnað við sjávarútveg- inn. Samkvæmt þessari skil- greiningu höfunda telst núver- andi gjaldtaka í Þróunarsjóð sjávarútvegsins veiðigjald. FRÉTTAVIÐTALIÐ, Konur og ósýnilegt glerþak Stefanía Traustadóttir skrifstofu jafnréttismála Konur eiga undir högg að sœkja þegar framboðslistar stjórnmála- Jlokkanna verða til Starfshópur Jafnréttisráðs um aukinn hlut á framboðslistum vegna sveitarstjórn- arkosninga að ári blœs í herlúðrana í átakinu STERKARISAMAN. „Staða kvenna í sveitarstjórnum og á Alþingi er fjarri því að vera viðunandi. Ef við horfum á Alþingi þá eru rétt um 25% þingmanna konur og heildarhlut- ur kvenna í sveitarstjórnunum er um það bil sá sami. Jafnréttisráð er ekki ánægt með það sem er að gerast," seg- ir Stefanía Traustadóttir á skrifstofu Jafnréttismála. - Staðan er þó auðvitað betri en áður var, eða hvað? „Reyndar ekki. Það sem gerðist í síðustu sveitarstjórnarkosningum er að hlutur kvenna í stóru sveitarfélög- unum þar sem konur höfðu aukið sinn hlut jafnt og þétt, þar stóðum við í stað og erum um 30%, en yfir heildina er talan 25%. Núna er engu líkara en við höfum náð einhverju ósýnilegu gler- þaki sem við komumst ekki uppúr. Til að hafa áhrif á ákvarðanatöku þurfum við í það minnsta 30% þátttöku kvenna, þetta er góð og giid þumal- puttaregla. En nú leggjum við til atlögu við þetta ósýnilega þak og gerum það í blaðagreinum og fleiru í sumar, áður en framboðslistar verða skipaðir." - En er þetta ekki konum sjálfum að kenna úr því svona er komið. Hafa konur kannski minni áhuga á að starfa að stjórnmálum en karlar? „Ég tel að svo sé ekki. Við eigum töl- ur sem sýna okkur það að á framboðs- listum til Alþingiskosninga eru konur og karlar nokkurn veginn í sömu hlut- föllum. Það sýnir að konur taka af- stöðu og óttast ekki að ljá nafnið sitt inn í stjórnmálin. Þær taka afstöðu og hafa áhuga. Þetta er frekar spurning um hvernig þær raðast á listana. Við viljum leggja áherslu á í herferðinni sem framundan er, Sterkari saman, að inn á sveitarstjórnastigið, sem er mun nær fólkinu en landsmálin, eru komnir áberandi málaflokkar sem konur hafa um langan aldur unnið sérstaklega við og þekkja vel. Þetta eru málaflokkar sem hafa ekki verið svo mjög ráðandi á sveitarstjórnarstiginu en eru að verða það.“ - Þú ert að tala um mjúku málin? „Þá er ég að tala um fræðslumálin, félagslega þjónustu við aldraða, heil- brigðismálin, þessi svokölluðu mjúku mál, sem eru að verða „töff‘ mál þar sem miklir íjármunir eru í húfi. Þessi mál eru nú komin til sveitarstjórnanna til úrlausnar og engin ástæða til ann- ars en að karlar og konur komi þar við sögu.“ - Er mikil karlremba ríkjandi inn- an stjórnmálaflokkanna? „Ég vil nú ekkert segja það. En ég held að þetta séu fyrst og fremst gömul og úrelt viðhorf. Þegar menn hafa skoðað hverjir eru trúverðugir fram- bjóðendur og hverjir ekki hefur hefðin ráðið, frekar en einhver karlremba." - En eru það ekki víðast hvar karl- ar sem stjórna bak við tjöldin? „Það kann að vera en ég treysti mér ekki til að dæma um það. En viðmiðin eru enn því miður þau, að þegar leitað er að fulltrúum hinna ýmsu hópa, at- vinnustétta og málefnahópa, þá eru það yfirleitt karlar á besta aldri sem veljast, en konur geta sjaldan verið annað en fulltrúar kvenna." -JBP

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.