Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 11
1®btgur'3lTOxmn Fimmtudagur 29. maí 1997 -11 OPEL CORSA REYNSLUEKIÐ A TENERIFE Spameytinn með fiábærsæti Þegar fyrsta sjónhrifning við skoðun á nýjum bíl er hjá, er bifreiðin opnuð og inn í hana sest og kannað hvernig sætin fara með viðkom- andi. Og þau fara sérlega vel með bílstjóra sem farþega þeg- ar ekið er krappar beygjur í fjalllendi, halda vel að. Undir- ritaður átti þess kost fyrir nokkru síðan að reynsluaka Op- el Corsa á Tenerife við aðstæð- ur sem reyndu mjög á bílinn og drógu fram kosti hans, og einnig galla. Bfllinn er búinn nýrri þriggja strokka, 12 ventla vél, 55 hestafla sem byggir á ECOTEC-tækni, sem þegar er Kom, sá og sigraði. Opel Tigra, sem er sporttýpan, er mjög skemmtilegur bíll en varla sem fjölskyldubíll vegna takmarkaðs rýmis. Vélin er 1.6 lítra, 106 hestafla, og er með feikna snöggt viðbragð. Vegna þess hve lágt er undir hann verður hann varla mjög vinsæll hérlendis. Góður kostur í flokki minni bíla, Opel Corsa '97. Vélin er eins lítra, þriggja strokka, 12 ventla, skemmtilega „kvikk“. Tveir yfirliggjandi keðjudrifnir kambásar. Verð um eina milljón króna. þekkt hjá Opel. Hún gerir vél- ina 12 kg léttari en eldri 4 strokka vélin og eyðslan er einnig skemmtilega lítil, eða að- eins tæpir 6 lítrar. Aflið reyndist nægilegt, en þarf að komast á nokkurn snúning til þess að ökumaður fái skemmtilegt við- bragð, en hávaðinn frá vélinni truflar hins vegar ekki. Opel Corsa er einnig búinn nýrri stýrisvél sem aðeins tekur afl frá vélinni þegar stýrinu er snú- ið. Framleiðandi segir að það spari um 5% af eldsneyti, og það eru líka peningar. Öryggis- þátturinn hefur verið bættur frá eldri gerðum. í bflnum eru belt- astrekkjarar, tvöfaldir styrktar- bitar í hurðum, líknarbelgir fyr- ir þá sem sitja fram í, og höfuð- púðar í aftursæti. Það sem helst er hægt að flnna að Opel Corsa er að fjöðrunin er nokkuð stíf og hætt við að þegar ekið er eft- ir krókóttum malarvegum á ís- landi verði veggrip ekki sem skyldi. Vökvafyllt fóðrun kemur hins vegar í veg fyrir að að titr- ingur finnst frá stýrisgangi og dregur jafnvel úr hávaða. Fyrir þá sem hugsa til tæknihliðar- innar er fátt sem kemur í veg fyrir að Opel Corsa verði fyrir valinu þegar velja þarf bfl úr hópi smábfla. Bflheimar hafa umboð fyrir Opel hérlendis. GG AKSTURSIÞROTTIR TORFÆRAN Kom á óvart Einn af þeim öflugri í finnsku torfærunni, Range Rover boddý, hásingar og millikassi úr Unimog, 350 sjálfskipting og vélin 350 CID Crysler V8. Finnsk torfæra s Islendingar eru ekki einir um að stunda tor- færuakstur. Frændur okkar Finnar stunda svipað sport í víðáttumiklum skógum Finn- lands. Þar eru þó tilþrifin með nokkuð öðru sniði en við eigum að venjast hérlendis. Finnarnir leggja meiri áherslu á torfærar slóðir þar sem krækja þarf fyrir tré og grjót og ösla drullupytti en íslensku torfærukapparnir æða upp snarbrött og há börð, stundum allt að því klettaveggi eða fleyta bflunum yfir ár og Range Rover virðist vera vinsæll í finnsku torfærunni. Hér er einn slíkur óbreyttur að brölta yfir drullupytt. tjarnir. Mismunur- inn byggir fyrst og fremst á þeim aðstæð- um sem menn hafa úr að moða. Skógar þekja allt Finn- land þannig að þar hafa menn e.t.v. ekki mikl- ar áhyggjur af því að sparka upp jarðvegin- um með torfærutröllunum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd- um. Ilérlendis er þess vandlega gætt að gróður verði ekki fyrir skemmdum vegna torfæru- keppnanna og nóg er af mis- hæðunum. -ohr Þetta verður svona í sum- ar!“ segir Einar Gunn- laugsson torfærukappi ákveðið en hann náði efsta sæt- inu í fyrstu torfærukeppni sumarsins, Greifatorfærunni á Akureyri. Með því endurheimti Einar titilinn sem hann hamp- aði þrjú ár í röð þar til Harald- ur Pétursson náði að krækja í efsta sætið í fyrra. Einar viðurkennir að sigur- inn hafi verið sætur en hann var að keppa í fyrsta sinn á bfl sem hann smíðaði í vetur. „Ég bjóst ekki við þessu. Maður náttúru- lega vonaðist til þess að vinna en það kom skemmtilega á óvart hvað bfllinn virkaði vel.“ Einar var búinn að fara tvær æfingaferðir á nýja bflnum. „Keyra úr honum fyrstu bilan- irnar bara.“ En það gerði gæfu- muninn þær bilanir voru þess eðlis að hann hefði mögulega þurft að hætta keppni. Fyrir vikið slapp Einar að mestu við bilanir í keppninni sjálfri. „Það voru bara hefðbundnar bilanir. Það sprungu hjá mér þrjú dekk og kom gat á framhásinguna þannig að olían fór af. Eini gall- inn á bflnum sem kom fram var að við þurftum að skipta um stífugúmmí að framan í miðri keppni,“ segir Einar. „Að öðru leyti fúnkeraði allt sem kom mér ótrúlega mikið á óvart.“ Hann stefnir gallvaskur á keppnina í Jósepsdal 14. júní nk. „Það er að vísu ekki minn staður, en það verður bætt úr því,“ segir hann óhræddur. -ohr AKUREYRI Dekkjum stolið Síðastliðna nótt var brot- ist inn hjá Gúmmí- vinnslunni á Akureyri og um 40 dekkjum stolið. Um er að ræða 8 jeppadekk og um 30 fólksbfladekk og nemur verðmæti þessa um hálfri milljón króna. Lög- reglan á Akureyri fer með rannsókn málsins en ekk- ert hefur enn komið fram sem bendir til þess hverjir voru hér á ferð. Annars vegar var brotist inn í gám áfastan lager Gúmmívinnslunnar þar sem geymd eru fólksbfla- dekk. Þjófarnir höfðu á brott með sér um 30 dekk sem öll eru ný. Um er að ræða 'sérstaka gerð af Bridgestonedekkjum, svo- kölluð low profile-dekk fyr- ir 15 tommu felgur. Þau ganga undir flestar gerðir japanskra fólksbfla svo fremi sem keyptar hafi ver- ið undir þá stærri felgur. Vinsælt er t.d. að kaupa sportfelgur í þessari stærð. Umrædd dekk eru ekki seld víða og hafi starfsmenn dekkjaverkstæða augun hjá sér er ekki óhklegt að hægt verði að komast á sporið. Einnig var brotist inn í gám annars staðar á lóð Gúmmívinnslunnar þar sem geymd voru notuð jeppadekk. Þar höfðu þjóf- arnir á brott með sér 8 dekk á felgum. Ljóst má vera að viðkomandi aðilar hafa ekki verið með öllu ókunnugir svæðinu og einnig hafa þeir þurft nokkuð stóran bfl til að flytja dekkin. Enn betur hugað að öryggismálum Að sögn Þórarins Krist- jánssonar, framkvæmda- stjóra Gúmmívinnslunnar, er innbrotið reiðarslag fyr- ir fyrirtækið þótt tjónið fá- ist að öllum líkindum bætt, a.m.k. að hluta. Hann segir að aldrei hafi verið brotist inn hjá fyrirtækinu eftir að það var flutt á núverandi stað. Fyrirtæki sem sinnir öryggisþjónustu hefur vaktað svæðið en þjófarnir hafa sætt lagi milli eftirlits- ferða. Ég hef talið fyrirtæk- ið nokkuð öruggt á þessum stað en eftir þetta er ljóst að við munum huga enn betur að öryggismálum, segir Þórarinn. \ ...orðaðu það við Fálkann Þekking Reynsla Þjónusta

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.