Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.05.1997, Blaðsíða 11
íDítgur-tEúnirat
Föstudagur 30. maí 1997 -11
Á skjánum
Samvinnuherðir - Landóýn
heþur um langt árabil boðið
glœiilegar golhtierðir um heim
allan. Við ikipuleggjum
golhherðir til Spánar og
Mallorca og iameínum jahnvel
golh og iiglingu! Allir harþegar
okkar í golhherðum geta gengið
t golhherðaklúbbinn iem veitir
þátttökurétt á hið vimæla
Sprengjumót á Hellu iem
haldið verður 4. ágúit.
SamviiMiilerúir
Lanúsýn
«11! • l IM1111 • Ml iU 77* « WIW Ik n«l • HHHtt I. W1171
m • 1 m nn • mi 1» m mtqmt u • tw 1 ia • Mm w u»
n* tt • I. C1MH • Mr« 011« Mrav; Nni 1 • t «J18* • U*# «111K
1 • t«1M • M««lin MMDr.HMMII* t. «1 »71 • tMrHfll Í7B
HnM 7 • 1.61UN • taM 61UC • BmH ■Mhm aHI
Verð-
launa-
hafará
SL-múti
á Spáni
Þau urðu hlut-
skörpust á Euro-
card-mótinu, sem
Samvinnuferðir-
Landsýn gengust
fyrir í golfferð á
Villamartin-vellinum
sl. laugardag. Keppt
var í karlaflokki með
og án forgjafar, í
kvennaflokki með
forgjöf og í ný-
liðaflokki kvenna.
Verðlaunahafar mótsins og höggafjöldi þeirra. Aftari röð frá vinstri: Gísli Halldórs-
son NK (88 án fgj.), Erlingur Jónsson GSG (81 án fgj.), Einar Markússon GO (66 m.
fgj.), Alfreð Viktorsson GL (88 án fgj.), Jóhann Jóhannsson GR (68 m. fgj.) og Björn
Þór Sigurbjörnsson GR (70 m. fgj.) Frá vinstri í neðri röð: Drífa Maríusd. GSG (2.
sæti nýliða.), Arndís Leifsdóttir GO (1. sæti nýliða), Kristine Eide Kristjánsd. NK (84
m.fgj.), Erla Karlsdóttir GL (78 m.fgj.), Margrét Egilsdóttir GR (86 m. fgj.) og Jóna
Bjarnadóttir GSG (3. sæti nýliðafl.).
Hlutafé senn
aukið í ÍSL
Þrjátíu og fimm fyrirtæki og
einstaklingar eiga nú hvert
um sig 300 þúsund króna hlut í
ÍSL h.f., Hlutafélaginu ísland -
Sport og listir sem staðið hefur
á bak við Birgi Leif Hafþórsson.
Umsóknir um fimmtán hluta til
viðbótar verða afgreiddar á
næstu mánuðum og verður þá
hlutaféð komið upp í fimmtán
milljónir. Birgir Leifur er eini
skjólstæðingur ÍSL, enn sem
komið er, en félagið hefur nú
eina umsókn til meðferðar, auk
þess sem vitað er af annarri
sem er á leiðinni. í hvorugu til-
vikinu er um kylfing að ræða.
Birgir Leifur lék á 75 og 74
höggum á Borás Open, á
sænsku mótaröðinni um síðustu
helgi og var þremur höggum
frá því að komast áfram. Hann
er nú við æfingar í Örebro í Sví-
þjóð, en ekki hefur verið ákveð-
ið hvenær hann keppir næst.
Ríkissjónvarpið
JÚNÍ
Mánudagur 2. júní kl. 23:15
íslenska mtítaröðin í Grafarholti
(30 mín)
Mánudagur 9. júní kl. 23:15
(slandsmótið i holukeppni í Hvaleyri
(40 mín)
JÚLÍ
Miövikudagur 16. júlí kl. 23:15
Kynning á Opna breska meistararmtít-
inu. Sýnt frá mótinu í fyrra.
Fimmtud. 17.- sunnud. 20. júií
kl. 12:00 alla dagana
Bein útsending frá
Opna breska meistaramótinu.
Miðvikud. 23.- fóstud. 25. júlí kl. 23:15
Sýnt frá fyrstu dögum Landsmótsins í
Grafarholti og á Korpu. (25-35 mín.).
Sunnudagur 27. júlí kl. 15:00
Sýnt frá lokadegi Landsm. í Grafarholti
(60 mín.).
ÁGÚST
Mánudagur 11. ágúst kl. 23:15
íslenska mtítaruðin á Akureyri (30 mín).
SEPTEMBER
Mánudagur 8. september kl. 23:15
fslensk'a mótaröðin í Leirunni (30 mín.)
Miðvikudagur 24. kl. 23:15
Umljöllun um Ryder-bikarinn
Föstud. 26,- sunnud. 28. kl. 12:00
Bein útsending frá Ryder-bikarnum
frá Spáni.
Sjónvarpsstöðin
SÝN
Sýnt verður frá mötaröðinni í
Asíu í á sunnudagskvöldum
kl. 20:30 og strax að þeim
loknum, kl. 21:30 sjá þeir Páll
Ketilsson og Úlfar Jónsson um
klukkustundarþætti frá evr-
ópsku mótaröðinni. Pá er
stöðin farin að sýna frá
bandarísku mótaröðinni.
Björgvin & St Andrews
„Þegar ég var gutti og var að byrja að fylgjast með golji, voru
Jyrstu spólurnar sem ég horfði á frá breska meistaramótinu á
gamla vellinum áSt. Andrews og ég sé ennþá fyrir mér Seve
Ballesteros slá í röjfinu á sautjándu holunni Segja má að golfið
séfundið upp á þessum velli, svo þegar maður gengur sjálfur um
þessar sömu slóðir, þá finnst manni það merkilegt, “ segir Björg-
vin Sigurbergsson, úr Keili, sem náði bestum árangri íslensku
keppendanna fjögurra sem kepptu á St. Andrews links trophy,
þar sem hann hafnaði í 19.-23. sœti
GOLFSÍÐAN innti Björgvin
eftir því hvernig hann
kynni við sig á elsta golf-
velli heims. „Þetta er þriðja
ferðin mín, svo segja má að ég
sé orðinn nokkuð vanur. Völlur-
inn er frábrugðinn flestum öðr-
um, margar holur eru „blindar"
og menn sjá því ekki hvar upp-
hafshöggin lenda. Stórar sand-
gryfjur setja líka sterkan svip á
völlinn og þó hann sé breiður,
eru margir staðir á vellinum
þar sem maður má alls ekki
lenda á. Flatirnar eru flenni-
stórar og hæðóttar og mér
finnst mjög gaman að glíma við
völlinn,“ segir Björgvin og bætti
því við að ýmislegt annað kæmj
á óvart. „Mér fannst það skrýtið
að á vellinum er fólki leyfilegt
að spila í gallabuxum og striga-
skóm, ólíkt því sem gerist víða
annars staðar.
Björgvin segist ekki hafa lent
í neinum stórbrotnum ævintýr-
um á St. Andrews. „Litla hjart-
að tók óneitanlega kipp þegar
ég lenti á slæmum stað í glomp-
unni við 17. flötina í fyrra, en
ég herti upp hugann, vissi að ef
Fyrsta og 18. brautin á gamla vell-
inum í St. Andrews eru samhliða
og mynda stærstu braut heims.
ég léki hana á einum yfir, þá
yrði átjánda holan ekkert
vandamál. Það sem ég man lík-
lega best eftir frá mótinu um
helgina, var þegar ég kom inn
með skorkortið af nýja vellin-
um, fyrri daginn. Ég lék á 75
höggum en sá besti var á 65
höggum. Karl frá skoska golf-
sambandinu tók við kortinu
mínu, leit á það og spurði mig
svo hvort ég ætlaði virkilega
ekkert að gera í þessu; hvort ég
ætlaði mér ekki að komast
áfram í gegn um niðurskurðinn.
Mér fannst þetta nokkuð gott
hjá honum og setti hugann á
það hvað ég ætlaði að gera á
síðari hringnum. Það reyndist
síðan ekkert vandamál að kom-
ast áfram.“
Hitt & þetta
Mikil aukning í
Oddi
Um það bil 200 nýir kylflngar
hafa samtals gengið í Goliklúbb
Oddfellowa og Odds frá því í vor
og nemur nú tala klúbbfélaga
samtals um 500, þar af eru um
tveir þriðju hlutar þeirra í Oddi.
Vöiiurinn f Urriðavatnsdal er
því þétt setinn, en það mun ekki
standa til að loka fyrir nýjum
félögum. Stefnt er að því að
opna nýju holurnar þann 9.
ágúst í suniar og þá hafa klúbb-
arnir yfir að ráða 18 holu velli
auk Ljúfiingsins, sem er heitið á
par þrjú vellinum í Urriðavatns-
dölum.
Vilja fá forsetann
Forseti íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, mun verða á
Egilsstöðum á 100 ára afmæli
bæjarins í lok næsta mánaðar.
Þá fer fram Afmælismót Egils-
staðarbæjar og vonast aust-
firskir kylfingar til þess að for-
setinn pútti fyrir einhvern
keppenda á 18. flötinni. Að
sögn stjórnarmanns í Golf-
klúbbi Fljólsdalshéraðs hefur
erindið fengið jákvæðar viðtök-
ur á forsetaskrifstofunni. Hins
vegar á enn eftir að sjá hvort
það fellur saman við áætlanir í
Austijaröarheimsókninni.
Ballesteros til
íslands?
Samvinnuferðir Landsýn. hafa
átt í viðræðum við Spánverjann
Vicento Ballesteros, bróðir hins
þekkta Severiano, um að koma
hingað til lands til að sýna listir
sínar í sumar. Ballesteros er at-
vinnukennari á Spáni en er
jafnframt með golfsýningar þar
sem hann sýnir ýmsar brellur.
Keilismenn hafa einnig skoðað
þann möguleika að fá „brellu-
kylfing“ til að slá upp sýningu, í
kringum 30 ára afmæli klúbbs-
ins í næsta mánuði.
Hagnaður hjá GR
Golfklúbbur Reykjavíkur skilaði
tæpum tólf milljónum í hagnað
á síðasta rekstrarári nóvember-
október. Rekstrartekjur klúbbs-
ins námu rúmum 44 milljónum,
þar af komu 27,5 milljónir af
félags- og vallargjöldum.
Rekstrar- og efnahagsreikning-
ar klúbbsins voru kynntir sl.
vetur, en rekstrar- og efnahags-
reikningar klúbbsins eru jafn-
framt kynntir í nýjasta tölublaði
Kylfings, sem nýkomið er út.
Ný þróunarkenning
Vellir
Atvinnumennska
Keppni