Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 3
jDítgur-Œímhm Laugardagur 14. júní 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Mynd: GS Kvikmyndahátíðin í Cannes í Frakklandi er einn þeirra stórvið- burða í kvikmynda- heiminum sem kvik- myndastjörnur og fólk í kvikmyndageiranum neyðist til að láta ekki fram hjá sérfara. ar er nauðsynlegt fyrir stjörn- urnar að sýna sig og kynna væntanlegar kvikmyndir, smástirnin láta sig ekki vanta með íturvaxna líkama sfna og heldur ekki aðdáendur fræga fólksins sem þyrpast að rauða dreglinum þegar líður að sýningum stórmyndanna. Klemenz Bjarki Gunnarsson frönskunemi í Háskóla Islands er enginn sérstakur aðdáandi fræga fólksins en engu að síður fór hann á kvikmyndahátíðina í Cannes núna í vor. Menningarmálaráðuneytið franska skipulagði nefnilega sér- staka hópferð námsmanna hvaðan- æva að úr heiminum á kvikmynda- hátíðina og hann var svo heppinn að einum frönskunema frá íslandi var boðið að vera með. Sá eina stórsýningu „Kvikmyndahátíðin í ár var sú fimmtugasta í röðinni og þess vegna var meira gert úr henni en venjulega. Par var jafnframt íleira fólk og erfiðara en venjulega að fá boðsmiða sem gilda á sýningarnar þannig að það var ómögulegt að komast á myndirnar sem voru að keppa um Gullpálmann sjálfan,“ segir Klemenz. Hann sá 14 myndir á hátíðinni og var svo heppinn að komast einu sinni í stóra bíóið, Palaise de Festi- val, þar sem aðal myndirnar voru sýndar. „Það var ekki hægt að redda boðsmiða á þessar myndir og það sem við þurftum að gera var að klæða okkur upp á og mæta 2 tím- um fyrir sýningu og bíða. Það var ekki nóg að vera snyrtilegur heldur þurftu allir karlmenn sem þarna fóru inn að vera í jakkafötum með svarta slaufu og konur í kvöldkjól- um. Þarna stóðum við við hliðið og spurðum að því hvort einhver væri með auka boðsmiða. Það var stór- kostleg upplifun að komast þarna inn í þetta eina skipti.“ Vonbrigði með Spice girls En hvernig blasti kvikmyndahátíðin við Klemenz? „Ef ég á að segja alveg eins og er þá er borgin og andrúmsloftið allt rosalega gervilegt. Það er allt gert út á hátíðina, fólk leigir íbúðirnar sínar ferðamönnum þessa daga, sölumennskan í kringum hátíðina er yfirgengileg og mannmergðin rosaleg." Er þá ekki um að rœða n.k. múg- œsingu? „Jú, það er ekki hægt að segja annað. Fólk er úti á röltinu á kvöld- in og allt í einu rjúka allir af stað í átt að rauða dreglinum við stóra bíóið bara til að sjá stjörnurnar ganga upp dregilinn. Ég hafði hins vegar ekki þolinmæði til að bíða eft- ir slíku.“ Sá hann einhverjar stjörnur? „Já ég sá nokkra fræga. Það var til dæmis þannig einn daginn að ég kom of seint á sýningu sem ég ætl- aði á og var bara að vappa um þeg- ar fólkið tryllist allt í einu og allir hlaupa af stað. Ég ákvað að fylgja með og þó ég væri ekkert að ýta mér áfram þá lenti ég á ótrúlega góðum stað til að sjá hverjir þetta væru. En ég get ekki lýst vonbrigð- unum þegar ég sá það. Þetta voru Spice girls." Eftir þetta segir Klemenz að hann hafi áttað sig á því hvað kvik- myndahátxðin snúist um miklu meira en kvikmyndir. Rakst á Dennis Hopper „Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir ótrúlegustu hluti eins og besta blaðamannafundinn, bestu innkom- una og bestu framkomu þegar stjörnurnar veifa af svölunum á hótelinu sínu. Það var Michael Jackson sem vann þau en hann var voða númer í ár.“ Klemenz segir að flestar stjörnurnar hafi ekið um í lokuðum bflum, gengið upp dregil- inn og síðan horfið sjónum aðdá- endanna. „Þess vegna var ég svo hissa eitt kvöldið þegar ég rakst á mann, afsakaði mig og leit upp og horfði þá beint á Dennis Hopper leikara. Hann virtist vera voða frjálslegur í þessu. Ég sá líka Van- essu Redgrave bara á röltinu." Yldi hann fara aftur? „Ég hefði ekkert á móti því en myndi samt ekki sækjast neitt voðalega mikið eftir því. Þetta var alveg nóg þarna í Cannes. Hins vegar væri ég til að fara aftur á kvikmyndahátíð, eins og í Feneyjum, þar sem hátíðin snýst virkilega um kvikmyndir en ekki bara stjörnurnar.“ Helgarpotturinn Vítiði hver ástæðan er fyrir því að mót- tökunefnd var send út á flugvöll eftir Everestförunum? Jú - Til þess að tryggja að þeir færu beint í bæinn en ekki Keflavíkurflugvöllur - Kefla- vík - Keflavíkurflugvöllur - Keflavík - Ytri - Njarðvík - Keflavík - Ytri Njarðvík - Innri Njarðvík - Ytri Njarðvík - Innri Njarðvík. o.s.frv. Margar ungar stúlkur dreymir um frægð og frama og sumar láta sér kannski ekki allt fyrir brjósti brenna í því sambandi. Fegurðardrottningin Berglind Ólafsdóttir fyllir þó ekki þann flokk. Hún hefur verið að reyna fyrir sér í kvikmynda- bransanum og var í Cannes nú nýlega. í tilefni af því gaf hún kost á sér í viðtal í dagblaðið Suddeutsche Zeitung og lét þau orð falla að hún vildi frekar vinna í fiski en koma fram nakin. Hetjulegt, ekki satt? Loftkastalagengið Ingvar Þórð- arson, Baltasar Kormákur og Hallur Helgason hefur staðið sig vel í leikhúsrekstrinum og komið upp hverri gróðasýningunni á fæt- ur annarri. Það er kannski engin furða þegar að er gætt hverjir hóp- inn skipa. Hallur Helgason, dag- skrárstjóri á Bylgjunni, er til dæmis Hallur Helgason. orðinn að þjóðsagnapersónu í sín- um heimabæ og rifja Hafnfirðingar gjarnan upp þegar guttinn hellti djúsi í form og notaði eldspýtur í haldið. Hann seldi svo krökkunum íspinna fyrir lítið. Bubbi Morthens. Bubbi Morthens og KK eru á túr (sjá forsíðu fréttablaðs) en engir hljómleikar laugardagskvöld. „Ég er að lýsa boxinu," sagði Bubbi á Dalvík - og þykir þá mörg- um að popphetjan hafi mörg járn í eldinum þegar Sýnarboxið er farið að trufla tónleikatúra. Þeir félagar em alvarlega að spá í að halda tónleika á Akureyri, og þá f Leik- húsinu. „Eða Renniverkstæðinu,“ segir KK. Þeir voru í skýjunum með lífið og tilveruna og með hvorn annan. Svavar Gestsson. Slúðrið í Allabaddaríinu segir að Svavar Gestsson komi til greina sem sendiherra í Helsinki, en þar stendur til að opna sendi- ráð á árinu. Þykir mörgum þau einkar sendiherralega vaxin, þau saman, Svavar og forseti borgar- stjórnar, Guðrún Ágústsdóttir. Það yrði þá í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins að „kommúnisti" yrði sendiherra segja heimildir í ráðu- neytinu.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.