Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 4
16- Laugardagur 14. júní 1997 íDagur-tEtnmtit Vandaöur fatnaöur frá Frakklandi Laugavegi 101 Sími 562 1510 r £> Auglysmg lll um innritun 1 nýnema Heilbrígðisdeild: Hjúkrunarfræöi Iðjuþjálfun Kennaradeild: Grunnskólakennaranám Leikskólakennaranám Rekstrardeild: Rekstrarfræði Iðnrekstrarfræði Framhaldsnám í gæðastjórnun Sjávarútvegsdeild: Sjávarútvegsfræði Matvælaframleiðsla Umsóknarfrestur nýnema fram- lengdur til 25. júní nk. Ákveðið hefur verið að kennsla í iðjuþjálfun hefjist við heilbrigðisdeild Háskólans á Akur- eyri á þessu hausti. Umsóknarfrestur'er til 25. júní nk. og er einnig heimilt að sækja um ann- að nám til þess tíma. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskír- teinum. Með umsókn skal fylgja 25% skrásetningar- gjalds, kr. 6.000,- sem er óafturkræft fyrir þá nem- endur sem veitt er skólavist. Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. í framhaldsnám í gæðastjórnun gilda þó sérstök inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfræði eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. Á fyrsta ári í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjölda- takmörkunum verði beitt. Þannig verið fjöldi þeirra 1. árs nema sem fá að halda áfram námi á vormiss- eri 1998 takmarkaður við töluna 30 í hjúkrunar- fræði og 15 í iðjuþjálfun. Á fyrsta ári leikskólabraut- ar í kennaradeild verður fjöldi innritaðra nemenda takmarkaður við 40. Með umsóknum um leik- skólakennaranám þurfa auk afrits af prófskír- teinum að fylgja upplýsingar um starfsferil og meðmæli tveggja aðila. Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum Félagsstofn- unar stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1997. Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu háskólans, Sólborg, 600 Akureyri, sími 463 0900, frá kl. 8-16. Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri veitir Jónas Steingrímsson í síma 894 0787 og 463 0968. Háskólinn á Akureyri. MENNING OG LISTIR Cj(M UUi - éje(tlh í '0HH Gaui Litli skrifar Ágœtu lesendur, ég hef nú tekið að mér að skrifa nokkra pistla íDag-Tímann þar sem bryddað verður upp á ýmsu sem getur komið fólki í betra form. egar ég tala um form á ég við líkamlegan vöxt og andlega líðan. Ég hef á undanförnum mánuðum reynt allskonar óhefðbundnar aðferð- ir til að ná af mér aukakílóun- um og það hefur gefist vel, en það er ekki þar með sagt að all- ar aðferðirnar hafi skilað ár- angri. Sumt af því sem boðið er upp á í líkamsræktar og fitu- brennsluskyni er tómt bull. Sú hreyfing sem blaðales- endur fá er yfirleitt hefðbundin og einhliða, þ.e. að renna aug- unum í sífellu frá vinstri til hægri. Þessi hreyfmg krefst að sjálfsögðu ekki mikillar orku og er ekki til þess fallin að brenna fitu, þó að róleg áreynsla eins og ganga brenni fítu fremur en hröð áreynsla eins og sprett- hlaup til dæmis. Ekki eru heldur orkufrekar þær hreyfmgar sem lesandinn ástundar þegar hann teygir út hendina og flettir síðu. Þetta eru þó hvorutveggja ágætar hreyfingar og góðra gjalda verðar svo langt sem þær ná - sem er örstutt. Meiri árangri ná blaðalesendur líklega við að innbyrða innihald blaðanna sjálfra, það er iðulega fitu- snautt en þó of oft þeim ann- mörkum háð að vera nánast al- veg án allrar næringar. Á því eru þó ætíð undantekningar. Þeir sem lesið hafa pistla Guðbergs Bergssonar í DV hafa t.d. vafalaust komist í hoilustu. Innihaldsríkur orðaflaumurinn og hugmyndaauðgin er slík að hún hlýtur að örva menn til dáða og ef ekki þá kitlar hann að minnsta kosti hláturtaugarn- ar. Ég man t.d. eftir pistli frá Guðbergi í vetur sem fékk mig til að skellihlæja, hreinlega veltast rnn af hlátri. Og þegar menn eru farn- ir að velta sér um kvið (og þá er ég ekkert sérstaklega að tafa um kvið eins og ég hafði í vetur) þá eru menn hreinlega komnir í lík- amsrækt. Guðbergur er annars með grennri mönn- um, þá á ég við að hann er einn af þeim grennri. Ég veit ekkert hvaða fólk hann um- gengst dags daglega. Hann er ötull við skriftir, iðinn við kolann, eins og sagt er. Ólík- legt þykir mér þó að skriftirnar grenni hann, öllu nær er að álíta að höfund- arlaunin geri það. Menn þurfa að selja bækur í bílförmum á ís- landi ef þeir ætla að fitna á því lífsviðurværi. Það sem ég held að ráði úrslitum í tilfelh Guð- bergs er gangan. Hann gengur og gengur og gengur. Ég hef aldrei séð hann í bíl og er viss um að hann gengur þangað til hann kemst ekki lengra. Spurn- ing er hinsvegar hvort hann borði. Grundvallaratriði allrar líkamsþjálfunar eru nefnilega þrjú: hugsun, hreyfing og hollt mataræði. Ég lofaði í upphafi að brydda upp á ýmsu sem komið gæti les- endum í betra form. Hér kemur ráð númer eitt: Stattu upp, ekki leggja blaðið frá þér, ekki strax. Opnaðu blaðið fyrir miðju og taktu miðsíðuna úr því og legðu hana fyrir framan tærnar á þér. Stígðu yfir síðuna og taktu eitt stórt skref, legðu þá næstu á gólfið. Gerðu þetta þangað til blaðið er á þrotum. Ég legg áherslu á að þú notir Dag-Tímann, Mogginn er allt of stór og það er mjög mikil- vægt að ofgera sér ekki í byrj- un. Þegar þú hefur stigið yfir síðustu síðuna skaltu snúa þér við, blasir þá við röð af dag- blaðssíðum með um það bil meters milli- bili. Nú skaltu hoppa jafnfætis yfir eina og eina síðu í senn. Þessa æf- ingu má endur- taka svo oft sem þrek og orka leyfir en mikilvægt er að í lokin séu blaðsíðurnar teknar upp í réttri röð og menn beygi sig í hnjánum við þá upptínslu. Svo er nú það, Gaui litli. Höfundur er hreyfanlegur. Opnaðu blaðiðfyr- ir miðju og taktu miðsíðuna úr því og legðu hana fyrir framan tœrnar á þér. Stígðu yfir síð- una og taktu eitt stórt skref legðu þá nœstu á gólfið. Gerðu þetta þangað til blaðið er á þrotum. Eg legg áherslu á aðþú notir Dag-Ttmann. Sumarleikhilsið á Akureyri Nýr leikhópur hefur tekið til starfa á Akureyri og eru æfingar þegar hafn- ar. Þessi leikhópur kallar sig Sumarleikhúsið og verður tii- raun til að efla menningarlíf á Akureyri yfir sumartímann, fyr- ir heimamenn og gesti bæjar- ins. Að Sumarleikhúsinu koma vanir áhugaleikarar víða að af landinu, úr nágrannabyggðum og einnig frá Akureyri. Sýndir verða tveir einþátt- ungar (sýndir saman). Fyrra verkið nefnist „Sumarið sem aldrei kom“, höfundur er Val- garður Stefánsson. Leikritið ijallar um Skúla Skúlason, sem fékk styrk frá Alþingi árið 1893 til þess að nema myndlist og var styrkurinn hið fyrsta tillag sem íslenskri myndlist var veitt af opinberri hálfu. í verkinu er rakin örlagasaga Skúla í svip- myndum og þekktar persónur koma við sögu, svo sem Tryggvi Gunnarsson bankastjóri og Matthías Jochumson. Hinn leik- þátturinn nefnist „Sumarferð með Sólon“, höfundur er Örn Ingi Gíslason, í leikritinu er slegist í för með Sölva Helga- syni, landshornaflakkara og listamanni, og dregin upp mynd af honum sem listamanni með skemmtilega persónutöfra sem lét skoðanir sínar í ljós á gam- ansaman hátt og aflaði sér þannig vinsælda meðal alþýð- unnar. Leikstjórn annast Örn Ingi Gíslason og sýningarnar fara fram á Renniverkstæðinu við Strandgötu og heíjast 20. júní næst komandi.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.