Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Blaðsíða 10
22 - Laut/árdágur 14. júní 1997 JUrguí-®ímmft Óskum eftir að ráða starfsmann á smurstöð og hjólbarðaverkstæði. Skriflegum umsóknum, með upplýsingum um aldur og starfsreynslu, er veitt viðtaka á staðnum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. EKKJA HÖLLI\ Draupnisgðtu 5, Akureyri. Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 1997. Drætti í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til fO. júlí 1997. Velunnarar flokksins sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 10. júlí n.k. Það er enn tækifæri til að vera með. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 20 (III hæð), eða í síma 562 4480. Framsóknarflokkurinn FSA-Kristnesi ÚTBOÐ Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir tilboðum í uppsteypu og lagnavinnu við innri sundlaug Kristnes- spítala. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Norður- lands hf., Hofsbót 4, Akureyri, frá nk. þriðjudegi. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. júní kl. 11. Verkfræðistofu Norðurlands hf. Hofsbót 4 • 602 Akureyri ■ ■ Sími 462 4031 • Fax 462 7415 Héraðssýning kynbóta- hrossa á Norðurlandi eystra 1997 Hlíðarholtsvelli v/Akureyri Sýning hefst miðvikudaginn 18. júní. Hross í hverjum flokki mæti til mælingar hjá Dýraspítalan- um í Lögmannshlíð í stafrófsröð, samkvæmt sýn- ingarskrá í eftirfarandi aldurshópum: Miðvikudag 18. júní kl. 9-12.30 Stóðhestar, allir flokkar. Sama dag kl. 13.30-18 Hryssur 6 v. og eldri A-L. Fimmtudag 19. júní frá kl. 9 Hryssur 6 v. og eldri M-Þ. Sama dag frá kl. 15 Hryssur 5 og 4 vetra. Sýningarskrá til sölu á mótsstað og hjá BSE Óseyri 2. Yfirlitssýning verður á Hlíðarholtsvelli föstudaginn 20. júníog hefst kl. 20.30. Búnaðarsamband Eyjafjarðar. F4ALLALIFIÐ Jon Krakauer fór uppá hæsta tind veraidar - og síðan hefur sam- viskubitið ekki látið hann í friði. Söluferðir upp á hœstu jjallstinda jarðarinnar grafa undan fastmótuð- um siðareglum fjallamanna. Everest eitrar út frá sér ann 10. maí 1996 fór blaðamaðurinn Jon Krakauer upp á tind Ev- erest í hópi „ferðamanna" sem höfðu keypt sér aðstoð leið- sögumanna til þess að komast upp á Qallið. Krakauer komst að því að það er mikill ábyrgð- arhluti að bjóða lítt eða jafnvel óreyndu fólki upp á „pakka- ferðir" þangað upp eftir. „Fjandinn hafi það, þetta eru hlutir sem mann dreymir um. Hvers vegna getur maður þá ekki notið þeirra?“ segir Krakauer eins og við sjálfan sig. Svarið er hins vegar ljóst: Þegar Krakauer var staddur uppi á tindinum brast skyndi- lega á ofsarok og níu manns létu lífið. í leiðangurshópnum sem hann var með komust fimm á toppinn. Allir týndu þeir lífinu nema Krakauer. Nánasti vinur hans í hópnum dó. „Og ég átti hlut að þessum dauðsföllum,“ segir Krakauer. Röð óhappa varð til þess að félagar hans í leiðangrinum lentu í sjálfheldu. Öll áform um að snúa aftur á tilskildum tíma urðu að engu. Síðan kom óveðr- ið, í sjálfu sér ekki nema venju- legur stormur þar efra. Krakauer var þá þegar á leið- inni niður. Hann fór framhjá einum leiðsögumannanna, sem átti í einhverjum vandræðum og virtist ekki bregðast við þeim á réttan hátt. Ef þetta hefði ver- ið raunverulegur fjallaleiðang- ur upp á gamla mátann hefði Krakauer fundið sig knúinn til að koma honum til aðstoðar. En þarna var staða þeirra tveggja gerólík. Annar átti að vita hvað hann var að gera, hinn var bara ferðalangur í „pakkaferð". „Söluferðir upp á Everest ganga þvert á öll gildi ijalla- mennskunnar sem ég trúði á: Að treysta á sjálfan sig, halda trúnað við hópinn og hugsjón- irnar. Ég var stöðugt að hamra á þessu í ferðinni - en þegar á reyndi, sagði ég við sjálfan mig að ég væri bara „viðskiptavin- ur“. Það er þetta sem er að naga mig.“ Krakauer hélt áfram niður fjallið og leiðsögumaðurinn varð á endanum úti. Háfjallaklifur tók í raun á sig gerbreytta mynd eftir að tveir bandarískir kaupsýslumenn á sextugsaldri, Dick Bass og Frank Wells, tóku sig til um miðjan síðasta áratug klifu sjö af hæstu tindum veraldar, þar á meðal Everest. f bók þeirra fé- laga, „Seven Summits" sem kom út árið 1986, lýstu þeir því yfir að þeir hefðu verið með „svo litla klifurreynslu að þeir gætu varla einu sinni talist til áhugamanna.“ Nú er svo komið að ólíklegasta fólk kaupir sér pláss í hópferð undir leiðsögn reyndra manna upp á Everest tind. Verðið er 65 þúsund doll- arar á kjaft. „Fyrir þann tfma var fjalla- klifur enn eins og lítil klúbb- starfsemi - svolítill menningar- kimi sem einkenndist af hug- sjónamennsku og átti sér skýr- ar siðareglur," segir Krakauer. Það var tímaritið Outside sem sendi Krakauer í eina slíka ferð til þess að kynnast þessum breytingum af eigin raun. Þrátt fyrir það að Krakauer væri reyndur íjallamaður frá fyrri árum leit hann samt ekki á sig sem einn úr hópi hinna útvöldu. „Ég átti alls ekki heima uppi á Everest,“ segir hann. Krakauer var þar með sjálf- ur orðinn efniviðurinn í þeirri frétt sem hann ætlaði sér að skrifa: Hvernig peningar og leiðsögumenn hafa breytt sið- ferði og siðareglum ljallafar- anna. Og vissulega fékk hann fréttina sem hann ætlaði sér að ná í. Hann skrifaði metsölubók um reynslu sína, „Into Thin Air“, og hún er þegar orðin sí- gild sem slík. En það sem hann var í rauninni á höttunum eftir var sjálfur tindurinn. „Ég myndi hætta lífi mínu fyrir fjallaleiðangur. Ég myndi ekki hætta lífi mínu fyrir frétt.“ Áhætta hefur alltaf fylgt ijallamennsku, ekki síst háíjallaklifrinu. A.m.k. 154 hafa týnt lífinu á Everestijalli, þar af 7 á þessu ári og 12 í fyrra. Rétt rúmlega 700 manns hafa náð á tindinn. Tölurnar tala sínu máli: Fyrir hverja fimm sem náðu á toppinn hefur eitt mannslíf tapast. „Ef engin væri áhættan, þá tæki því ekki að gera þetta,“ segir Krakauer, og fellst þar með á aðra hlið málsins. Síðan þagnar hann, h'tur upp í loftið og veltir fyrir sér hinni hliðinni. „En það virðist svo innantómt og barnalegt að segja slíkt þeg- ar 12 manns deyja.“ Byggt á Los Angeles Times.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.