Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.07.1997, Page 7
iDagur-(Emrám
Miðvikudagur 16. júlí 1997 -19
aega. fólkið
Kvikmyndakroppurinn fæst ekki gefíns
Það er sumar. Og
fœst höfum við
gaman af að ganga
úti með bert á milli
laga ef maginn hef-
ur mjög greinilega
þurft að þola sjón-
varpsgláp og jukk-
fœði í vetur. Þú hef-
ur kannski ekki ráð
á einkaþjálfara
eins og súperkropp-
ar kvikmyndanna
(sem eru reyndar
bara til rétt á með-
an á tökutíma
stendur) en getur
hér tínt það til sem
þér þykja fýsilegar
aðferðir til aðná
maganum sléttum,
rassinun kúlulaga,
kálfunum sívölum,
tánum íspíss...
Einkþjálfarar eru nefnilega
hugsjónamenn en ekki í gróða-
hugleiðingum og eru því ónískir
á töfraformúlur sínar.
Mark Stevens er einn þeirra
og hefur hann m.a. unnið gott
starf á líkama Jamie Lee Curtis
síðustu fimm ár. Prógrammið
samanstendur af lóðalyftingum
og þolfimi og gengst hún undir
stífa þjálfun síðustu sex vikur
fyrir tökur. Og bragðkirtlarnir
tárast við matseðilinn a la
Mark: fimm skammtar prótíni
og fimm af kolvetni á dag auk
ótakmarkaðs magns af ávöxt-
um og grænmeti. Búið. Ekki
nota olíur eða dressing, ekki
ost, ekki borða síðla dags og
alls ekki drekka minna en 20
glös af vatni.
Ray Kybartas hefur m.a. pínt
þau Madonnu, Sean Penn og
Chris Penn. Ray hefur annan
stfl á þjálfuninni en Mark og til
að marka sér sérstöðu fer hann
gjarnan með kúnnana sína út í
náttúruna, setur þá í kanóa,
hjólabáta eða fylgist haukfránn
með þeim hlaupa á gljúpum
sandströndum - til að fríkka
kálfana. Matseðilinn nefnir
hann megrun hellisbúans og
mun vera í hlutföllunum 30%
fita, 40% kolvetni og 30%
prótín (og reiknið nú!). Á
mannamáli myndu þessi
hugtök vera fólgin í mögru
kjöti, fiski, ávöxtum og
grænmeti.
Þegar vekjaraklukkan
hringir á fólk, sam-
kvæmt ráði Gunnars
Peterson, að stökkva
fram í eldhús, setja
einn bolla af eggja-
hvítum saman við
blandarann og strá svo fitu-
lausu kakódufti yfir. Þar með er
ljúffengur morgunverður tilbú-
inn. Gunnar er vinsæll meðal
margra leikara og þykir hafa
„aggressívan“ þjálfunarstfl(!).
• Sé kúnninn að þjálfa líkam-
ann fyrir nektarsenu minnk-
ar Gunnar hlutfall kolvetnis
smám saman síðustu þrjár
vikurnar íyrir upptökurnar,
svo húðin verði stinnari.
(sko, það er ekkert að marka
þessa kvikmyndakroppa).
• Heillaráð Gunnars er að
byrja daginn (þ.e. áður en þú
færð þér eggjahvítu orku-
drykkinn) á því að drekka
glas af volgu vatni og gera
nokkrar magaæfingar. Þar
með ertu víst búinn að fyrir-
gera matarlystinni fram eftir
degi.
Jamie Lee Curtis
hefur líklega verið
svona slank og fiott
alla tíð en Mark
Stevens hefur alla-
vega gert sitt til að
hún haldi í horfinu.
Alyssa Milano er ein þeirra sem fílar þjálfunartaktík Gunnars Petersons og
er hér á veggjaklifurssvæði.
Madonna þarf að þola prógrammið hans Ray Kybartas.