Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Qupperneq 1
Lífskjörin í landinu/19
Heimskulegar
áherslur á
mörgum sviðum
Fjölmiölar/22-25
Hefur Stöð 2
menningar-
legt hlutverk?
Venjulegir og demantsskornir
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Fimmtudagur
29. ágúst 1996
79. og 80. árgangur
163. tölublað
Reykjavík
Nær 60%
styrkþega
atviimu-
lausir
Um 12. hver króna af út-
svarstekjum Reykjavíkur-
borgar árið 1995, eða
675 milljónir króna, fóru í íjár-
hagsaðstoð tU samtals 3.800
einstaklinga og heimila. Upp-
hæðin svarar til þess að hver
4ra manna fjölskylda í borginni
hafi látið 26.000 kr. af hendi
rakna í þessu skyni í fyrra.
HeUdarútgjöld Félagsmálastofn-
unar ReykjavUou námu rúm-
lega þrefalt hærri upphæð, eða
rúmlega 2.100 mUljónum
króna. Launakostnaður 1.400
starfsmanna stofnunarinnar
var stærsti útgjaldaliðurinn, um
1.240 miUjónir króna. Margs
konar þjónusta og aðstoð við
aldraða var litlu minni kostnað-
arhður en fjárhagsaðstoðin. Um
fjórðungur aUra ellilífeyrisþega
í ReykjavUc, eða um 3.000
manns, nutu félagslegrar
heimaþjónustu stofnunarinnar
á árinu. -HEI
Visa Island
Mafía sveik út miUjónir
króna á íslensk guUkort
Handhafi gullkorts
fékk reikning uppá 300
þúsund kr. vegna
úttektar í Bandaríkjun-
um, en þangað hefur
hann aldrei komið.
Mafía í A-Evrópu sveik út
milljónir á íslensk gull-
kort í júh' og ágúst hafa
komið tU Visa íslands rúmar 20
færslur frá bandarískri póst-
verslun á íslensk kortanúmer
fyrir vörur sem hafa verið pant-
aðar frá Póllandi án vitundar
viðkomandi korthafa. Grunur
leikur á að þarna geti verið um
að ræða verk austurevrópskra
mafíusamtaka, en málið er í
rannsókn hjá innra eftirliti Visa
en ekki lögreglu. Sem dæmi
fékk einn handhafi gullkorts
reikning uppá 300 þúsund
krónur sem höfðu verið teknar
ut á kortið hans í Bandaríkjun-
um, en þangað hefur hann
aldrei komið. Svo virðist sem
bylgja glæpsamlegra kortavið-
skipta hafi átt sér stað í sumar
og þá aðallega frá Austurlönd-
um ijær.
Einar Einarsson,
forstjóri Visa ísland,
segir að í þessu dæmi
frá Póllandi sé um að
ræða nokkrar miUjón-
ir króna, sem teknar
hafi verið út af er-
lendri heimUd við-
komandi korthafa án
þeirra vitundar. Hann
segir að þarna sé
einkum um að ræða
gullkort, enda séu þau
með mun rýmri erlenda úttekt
en almenn kort. Forstjóri Visa
íslands segir að þessar upp-
hæðir muni verða bakfærðar á
reikning þeirra sem hafl orðið
fyrir þessari lífsreynslu og því
muni þessi glæpsamlegi verkn-
aður ekki bitna á eigendum
kortanna. Auk þess sé þetta
endursendingarhæft tU upp-
runalandsins og því muni Visa
ísland skaðast mun minna af
þessu en ella hefði getað orðið.
Hann segir að þeir korthafar
sem kannist ekki við úttektir á
reikningi sínum eigi umsvifa-
laust að hafa samband við höf-
uðstöðvar Visa eða við sína við-
skiptabanka. „Það er undrunar-
efnið,“ segir forstjóri Visa ís-
lands aðspurður hvernig pólsk-
ir aðilar geti komist yfir íslensk
kortanúmer. Hann telur líkleg-
ast að þarna liggi að baki eitt-
hvert svikakerfi í Póllandi sem
á eftir að afhjúpa, fremur en að
rekja megi þetta til kortavið-
skipta á Internetinu. Hann telur
jafnframt ekki útilokað að
þarna geti átt hlut að máU aust-
urevrópsk mafía með aðsetur í
Póllandi, „enda aldrei að vita
hvað hún teygir anga sína
víða,“ segir Einar Einarsson.
Hann segir að svo virðist
sem einhver bylgja hafi verið í
þessum glæpsamlegu úttektum
í sumar eftir nokkurt hlé og þá
aðaUega frá Austurlöndum fjau.
Þótt allt sé gert til að tryggja
sem mest öryggi í kortavið-
skiptum, sé nánast útilokað að
komast fyrir svona nokkuð, svo
ekki sé talað um ef menn versU
með kortin sín á Internetinu
eða noti þau í viðskiptum með
eiturlyf. -grh
Sjónvarp úr
söltum mar
Pétur Þór Lárusson sjómaður á Háhyrn-
ingi, AK 20, sem gerður er út frá
Arnarstapa, fékk heldur óvenjulegan
afla á færið þegar hann var á fiskiríi á
dögunum. Hann dró sjónvarp úr söltum
mar, en fyrst þegar Pétur Þór var að
reyna að innþyrða aflann hélt hann að
þetta væri stórlúða. Reyndar segir Pét-
ur að sjónvörp séu góður afli - enda
utan kvóta. Hins vegar hafi menn tals-
vert velt fyrir sér að undanförnu hvaðan
sjónvarp þetta komi.
Pétur er „gulur og glaður" Skagamaður
eins og litirnir á skódanum hans bera
með sér. -Sbs/DT-mynd: Stefán Lártis Pálsson
Einar Einarsson
forstjóri VISA ísland Það er aldrei að vita hvað austur- evrópska Mafian teygir anga sína víða \