Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 7
|Dagur-®imtmt Fimmtudagur 29. ágúst 1996 - 7 FRETTASICYRING Forsetaframboð Ólafs Ragnars Skuldaskil að árí Sigurður G. Guðjónsson, lögfræðingur og umboðs- maður Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetakosningun- um í sumar, segir að það sé stefnt að því að ljúka við að greiða allar íjárhagsskuldir kosningabaráttunnar næsta sumar, en eftirstöðvar þeirra nema um 17-18 miljónum króna. Til að grynnka á skuld- unum er m.a. verið að vinna að gerð bókar um forsetakjörið sem kemur væntanlega út í október n.k. „Ég hefði ekki viljað vakna upp daginn eftir hafandi tapað kosningunum," segir Sigurður G. aðspurður hvort ekki sé létt- ara undir fæti að afla fé til að greiða niður skuldir sigurveg- ara en þeirra sem lúta í gras. Þar fyrir utan hefði framboð Ól- afs Ragnars haft verulegan byr frá upphafl, sem hefði óneitan- lega létt allan fjárhagslegan róður í sjálfri kosningabarátt- unni. Gert er ráð fyrir að útgáfa bókarinnar um forsetakjörið geti jafnvel minnkað skuldir kosningabaráttu Ólafs Ragnars um allt að 4-8 miljónir króna, en í bókinni verður mikið af myndum, eða vel á annað hundrað. Þá getur fólk sent for- setahjónunum kveðjur með því að kaupa línur í bókinni og fengið nafnið sitt á heillaóska- lista. Ekki er ólíklegt að þessi bók geti orðið ein af metsölu- bókunum um næstu jól. Sigurður G. segir að ákvarð- anir um næstu skref til að grynnka á skuldunum muni væntanlega verða teknar þegar ljóst verður hvað bókin muni gefa mikið af sér. Hann segir að obbinn af ijárútlátum vegna kosningabar- áttunnar í sumar hafl verið í tengslum við blaðaútgáfu, bæk- linga, póstburðargjöld og flug- ferðir að ógleymdum útvarps- og sjónvarpsauglýsingum. Hann segir óvarlegt að bera þennan kostnað saman við það sem gerðist í forsetakosningun- um árið 1980 þegar aðeins ein sjónvarps- og útvarpsstöð var starfrækt í landinu. í því sam- bandi bendir hann m.a. á að enginn hinna ijögurra fram- bjóðenda hefði staðið fyrir bar- áttufundi í Laugardalshöllinni vegna þess að tími þessara stóru funda er liðinn. Þess í stað vill fólk fá upplýsingar um frambjóðendur beint í stofuna til sín í gegnum sjónvarp og út- varp. -grh Sigurður G. Guðjónsson „Ég heföi ekki viljað vakna upp daginn eftir hafandi tapað kosningunum, “ segir Sigurður G. Guðjónsson, lögfrœðingur og umboðsmaður Ólafs Ragnars í forsetakosningunum. Dauðadæmdur fýll? Þessi fýlsungi er dauðadæmdur ef hann nær ekki að hefja sig til flugs en hann sat fastur í skóginum [ þjóðgarðinum f Ásbyrgi þegar myndin var tekin. Fýllinn er fugl út- hafsins en verpir einnig uppi á landi enda þjóðsaga að sögn fræðinga að fýllinn geti ekki flogið nema sjá sjóinn. Ungarnir eru lengi f hreiðrunum og eru nær fulivaxnir þegar þeir yfirgefa þau f lok ágúst. Þeir eru sflspikaðir og segir þjóðgarðsvörðurinn í Ásbyrgi, Aðalsteinn Snæþórsson, að þeir séu illa settir ef þeir lendi f of miklu logni því fýllinn þurfi loft undir vængina til þess að hefja sig til flugs. Ef þeir komist upp á veginn eða einhverja sillu geta þeir oftast náð flugi en það fari eftir því hvar þeir lenda hvort grilla megi f Iffsmöguleika með þeim hætti þar sem fýllinn er vart göngu- fær og rétt bröltir áfram. mgh RA , VERÐ ÞJONUSTA Kosningabaráttan reyndist Ólafi dýr og ófyrirsjáanlegt hverníg greitt er fyrir hana. DT-mynd gs Á einu ári hafa hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands hækkað um 50,7% Hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands veita skattaafslátt. Þannig getur einstaklingur sem kaupir hlutabréf fyrir 130.000 krónur, lækkað skattana um 44.000 krónur. Upphæðin er tvöföld fyrir hjón. Tryggðu þér skaitaafsláut með einu símtali! 462 4700 Greiðslukjör: Visa/Euro • Boðgreiðslur éé KAUPÞING NORÐURLANDS HF -Löggilt verðbréfafyrirtæki Kaupvangsstræti 4 • 600 Akureyri • sími: 462-4700 • fax: 461-1235.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.