Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Side 5

Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Side 5
jDagur-'CEíimmt Fimmtudagur 29. ágúst 1996 - 5 F R E T T I R Hvammstangi Unnið að stækkun Sjúkrahússins á Hvammstanga. Viðbyggingin verður að hluta tii tekin í notkun Um mitt næsta ár. Mynd: Knstján Björnsson. Sjukrahúsið stækkað Framkvæmdir eru í gangi við stækkun Sjúkrahússins á Hvammstanga, um nær 700 fermetra. Að sögn Guð- mundar Hauks Sigurðssonar, framkvæmdastjóra, verður hluti þessarar stækkunar tekinn í notkun um mitt næsta ár og er peningum veitt til framkvæmda í samræmi við þær áætlanir. Heildarkostnaður við að koma fyrri hluta stækkunar þessarar í gagnið er nær 75 millj. kr, en gera má ráð fyrir að heildar- pakkinn fari í um 110 millj. kr. Legurými við sjúkrahúsið á Hvammstanga eru alls 35; það er 15 dvalarrými og 20 hjúkr- unarrými, þar af fjögur fyrir bráðainnlagnir. Þó mun sjúkra- rúmum ekki ijölga með þessum framkvæmdum heldur verður rými ýmissa deilda sjúkrahúss- ins rýmkað, svo sem eldhúss, borðstofu, starfsmannaaðstöðu og þvottahúss. Við bætist líkhús og kapella og fjórum sjúkrastof- um bætt við, en rúmum á öðr- um stofum fækkar þar til sam- ræmis. „Það verður mikil lyfti- stöng fyrir okkur að fá þessar framkvæmdir í gegn,“ sagði Guðmundur Haukur Sigurðs- Ólafsfjörður Starfsfólki Hraðfrystihúss Ólafsflarðar sagt upp störfum Starfsemi Hraðfrystihússins hætt um næstu áramót að óbreyttum aðstæðum Stjórn Hraðfrystihúss Ólafs- íjarðar hf. hefur ákveðið að leggja niður bolflsk- vinnslu fyrirtækisins um óákveðinn tíma frá og með næstu áramótum. Jón Þorvalds- son, stjórnarformaður hrað- frystihússins, segir að sú ákvörðun muni standa að óbreyttum forsendum fyrir bol- fiskvinnslu, rekstrargrundvöllur í hefðbundinni bolfiskvinnslu sé enginn og ekkert sjáanlegt framundan í þeim efnum. Jón segir það hins vegar von stjórnarinnar að þær aðstæður skapist að þessar alvarlegu að- gerðir þurfi ekki að koma til framkvæmda um næstu ára- mót. 60 manns vinna hjá Hrað- frystihúsi Ólafsíjarðar hf. og er það langstærsti vinnustaður kaupstaðarins. Uppsagnirnar eru því mikið reiðarslag fyrir atvinnulíf kaupstaðarins enda vandséð að starfsfólkið eigi annarra kosta völ á vinnumark- aðnum í Ólafsfirði. Rekstrartap ársins 1995 nam 27,1 milljón króna og sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrstu sjö mánuði þessa árs nemur rekstrartapið rúmum 26 milljónum króna, sem er all- nokkru meira en 10% af veltu, og því er eigið fé fyrirtækisins langt til uppurið. Skuldir HÓ nema um 205 milljónum króna. Hráefni hefur fyrirtækið fyrst og fremst fengið af ísfisktogur- unum Sólbergi ÓF-12 og Múla- bergi ÓF-32 sem eru í eigu Sæ- bergs hf. í Ólafsfirði en fyrir- tækið er jafnframt eigandi að þriðjungi hlutaíjár Hraðfrysti- húss Ólafsijarðar hf. GG Eyjafjörður - Reykjavík son. Eins og áður sagði má gera ráð fyrir að heildarpakki fram- kvæmda við Sjúkrahúsið á Hvammstanga kosti um 110 millj. kr. Þar sem um dvalar- heimili fyrir aldraða er að ræða að hluta verður skipting kostn- aðar milli ríkis og sveitarfélaga í þessu tilviki sú að sveitarfélög í Vestnr- Húnavatnssýslu og Bæjarhreppur á Ströndum munu greiða 42,3% kostnaðar, en ríki 57,7%. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við að ljúka fyrri hluta stækkunarinn- ar verði um 75 millj. kr. og á þessu ári veitir ríkissjóður og Framkvæmdasjóður aldraðra um 5 millj. kr. til framkvæmd- anna, hvor aðili. Sveitarfélögin setja 8,7 millj. kr. í framkvæmd- ir í ár. Sömu aðilar veita einnig peningum í það á næsta ári að ljúka framkvæmdum fyrir mitt ár. Ekkert hefur svo verið ákveðið um áframhald fram- kvæmda; það er um fjárveiting- ar til þeirra né hvenær þeim geti lokið, að sögn Guðmundar Hauks Sigurðssonar fram- kvæmdastjóra. -sbs. Miimi kennsluskylda skapar um 100 störf Kennaraskorturinn víða um land er meiri í ár en oft áður Starfsemi grunnskólanna á íslandi hefst í byrjun sept- embermánaðar og verða allflestir þeirra settir 2. sept- ember nk. Enn er óráðið í margar kennarastöður víða um land, þó er ástandið misjafnt eftir landsvæðum og sveitarfé- lögum. Jón Baldvin Hannesson, for- stöðumaður Skólaskrifstofu Ey- þings, segir að með einsetningu skóla flölgi kennarastöðum um nokkur hundruð á landinu öllu. Þegar kennsluskyldan lækkar um eina stund á alla kennara í landinu, alls 3.300 talsins, þýðir það liðlega 3 þúsund tíma. Sé deilt í það með kennslu- stundafjölda að baki einni stöðu, sem er 28, fást út úr því 118 kennarastöður. Með ein- setningu er miðað við að allt að 300 kennarastöðum. Vegna þess að atvinnulífið hefur sýnt á sér ákveðin batamerki og þar með aukið framboð atvinnu- tækifæra hefur verið erfiðara að ráða í kennarastöður þar sem kennaralaun hafa síðustu misseri ekki verið talin vel launuð. Eiríkur Jónsson, formaður Kennara- sambands íslands, segir að mun meira sé auglýst eftir kennur- um nú en mörg und- anfarin ár. Það sé ekki sl. ár þurft að auglýsa í ágústmánuði nema eitt og eitt forfallatilfelli. Ástandið nú minnir á árin kringum 1985. „Það spila aðallega íjórir þættir inn í þetta nú. í fyrsta lagi ijölgun vikustunda sem hófst fyrir tveimur árum og fjölgar stöðugildum og sú þróun Jón Baldvin Hannesson forstöðumaöur skólaskrífstofu „Það er erfiðara að ráða í kennara- stöður vegna atvinnulífsbatans. “ mest áberandi í Reykjavík þar sem kennaraskortur hefur ver- ið nánast óþekkt vandamál á undanförnum árum, t.d. hefur Reykholt Bleikur smokkur í Snorralaug Snorralaug var hreinsuð vikulega í sumar, tæmd og skrúbbuð nokkrum sinnum í mánuði. Ráðum ekki vindum né því sem vindar bera, segir sr. Geir Waage sóknarprestur í Reykholti. Um miðjan mánuðinn, þegar íslenskur forstjóri fór með erlenda gesti sína til að skoða Snorralaug í Reykholti í Borgarfirði, brá þeim heldur í brún þegar við þeim blasti bleikur smokkur íljótandi í lauginni með einhverju gumsi í. Auk þess fannst þeim illa tyrft í kringum laugina með tilheyrandi mold- ardrullu allt í kring. Sr. Geir Waage sóknarprestur í Reyk- holti segir að þótt hann og fólk- ið á staðnum hreinsi laugina samviskusamlega þá hafi hann í sjálfu sér ekkert með hana. að gera, vegna þess að það sé í verkahring Þjóðminjasafnsins að hafa umsjón með fornminj- um á svæðinu. „Ég mótmæli því alveg gjör- samlega að lauginni hafi verið haldið illa hreinni í sumar. Hún hefur eins og undanfarið sumar alltaf verið hreinsuð. Ég gæti hugsað að hún sé tæmd þrisvar eða ijórum sinnum í mánuði og skrúbbuð. Ég hlýt einnig að mótmæla því ef menn halda því fram að staðurinn sé illa hirtur. Hinsvegar ráðum við ekki vind- um né heldur því sem vindar bera. Það eina sem við getum gert er að þrífa laugina og það er gert,“ segir sr. Geir Waage. Hann bendir einnig á að í sum- ar hafi laugin verið hreinsuð vikulega, enda stendur hún á bersvæði við héraðsskólann. Hann minnir jafnframt á að þegar einhver veður eru bæði vor og haust kemur það einatt fyrir að í laugina fýkur rusl sem laust er í nágrenninu. Sóknarpresturinn vekur einnig athygli á því að þegar allt að 15-20 þúsund manns koma árlega til að skoða Snorralaug, séu það 30 til 40 þúsund fætur sem ganga þar á grasinu. Það sé því leitun að þeim grassverði sem mundi þola slíkan ágang án þess að á sæi. Ef eitthvað er þá telur sr. Geir að grasið umhverfis laug- ina sé mun þokkalegra en verið hefur undanfarin ár. -grh Akranes Rúðubrotafaraldur Rúðubrotafaraldur hefur gengið yfir Akranes að imdanförnu. Um þverbak keyrði um síðustu helgi, en þá voru brotnar fjölmargar rúður í Brekkubæjarskóla og bóka- safninu. Auk þess var eitthvað brotið- af rúðum í smábátum í höfninni. Lögreglan á Akranesi fer þess á leit, að þeir sem geti gefið einhverjar upplýsingar hafi samband við hana. - ohr heldur allt til aldamóta; kennsluskyldan í grunnskólun- um hefur lækkað; fleiri hafa farið á eftirlaun en gert var ráð fyrir eða farið í vinnu inn á nýj- ar skólaskrifstofur í tengslum við flutning grxmnskólans til sveitarfélaganna og síðan batn- andi atvinnuástand í landinu. Það eru bæði gömul sannindi og ný að um leið og rofar til í atvinnulífinu eru menn farnir í önnur störf, betur launuð. Mér heyrist að vandræðaástand kunni að skapast einhvers stað- ar í byrjun skólaársins," sagði Eiríkur Jónsson. Einar Már Sigurðarson, for- stöðumaður Skólaskrifstofu Austurlands á Reyðarfirði, sem þjónar svæðinu frá Bakkafírði að Breiðadalsvík, segir verið sé að ganga frá síðustu kennara- ráðningunum. Ástandið sé hins vegar alvarlegra á skólaskrif- stofunum sem flestar fá ekki sálfræðinga til starfa, t.d. vanti tvo til Reyðarfjarðar. Það þýði að leysa þurfi vandann með að- keyptri þjónustu, en staðreynd- in sé sú að engir sálfræðingar búi á svæðinu frá Akureyri austur um að Selfossi. Vestfirð- ingar séu heppnari, til ísaijarð- ar hafi nýlega verið ráðinn sál- fræðingur sem er að koma úr námi. GG

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.