Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Qupperneq 10
10 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996
^Dagur-'QIntttrat
Jörð til sölu
Bærinn Fagri-Hvammur stendur við Berufjörð,
Djúpavogshreppi, Suður-Múlasýslu.
Gott íbúðarhús. Fjárhús fyrir 400 fjár. Fjós fyrir 12 gripi
og hlöður.
Jörðin selst án framleiðsluréttar.
Mikil náttúrufegurð.
Upplýsingar í síma 553 1322.
Akureyri
134 ára
Oskum bœjarbúum til hamingju
með afmælið 29. ágúst
Bcejarstjórn Akureyrar
Nýr, sterkur
auglýsingamiðill
kynntur í
Sttissinu.
(Greifanum, Akureyri)
föstudaginn
30. ágúst
kl. 17.00-18.00
Kynnið ykkur nýjan valkost.
Verið velkomin
Kaffi & veitingar
|Dagur-®tmttm
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
-besti tími dagsins!
E R L E N T
Mikil stemmning
á flokksþingi
demókrata
Hilary Clinton, eiginkona
Bills Clinton forseta
Bandaríkjanna, hélt
ræðu á flokksþingi demó-
krataflokksins í gær þar sem
hún svaraði m.a. gagnrýni
Bobs Dole, sem hafði and-
mælt orðum hennar um að
það þurfi heilt þorp til þess
að ala upp barn. En Dole
sagði að það þyrfti ekki heilt
þorp til þess, heldur eina fjöl-
skyldu. „Það þarf eina fjöl-
skyldu,“ sagði Hillary á þing-
inu, en bætti svo við að
einnig þyrfti til kennara,
presta, viðskiptafólk og
marga fleiri: „Það þarf okkur
öll. Já, og það þarf heilt þorp.
Og það þarf forseta.“ Ræðu
hennar var mjög vel tekið á
þinginu.
Áður höfðu bæði Jesse Jack-
son og Mario Cuomo haldið
þrumandi ræður á þinginu.
Jesse Jackson, sem sjálfur gerði
í tvígang tilraun til þess að
verða útnefndur forsetaefni
flokksins, hélt áhrifamikla ræðu
sem flokksmenn hrifust mjög
af, þrátt fyrir þá staðreynd að
stefna flokksins sé nú sem
stendur töluvert frábrugðin því
sem Jackson hefur barist fyrir.
„Við erum ósammála um mikil-
væg málefni eins og velferðar-
máhn ... En við erum nógu
þroskaðir til þess að vera á
öndverðum meiði án þess að
samstaðan rofni,“ sagði Jack-
son og endaði ræðu sína á ein-
dreginni hvatningu til upprif-
inna flokksmanna sinna um að
„halda trúnni.“
Þá flutti Mario Cuomo, sem
tapaði fylkisstjórastöðu New
York fylkis til frambjóðanda
repúblikana fyrir tveimur ár-
um, einnig ræðu sem olli ekki
síður tilfinningaróti meðal
flokksmanna en ræða Jacksons.
Cuomo hefur eins og Jackson
oft verið ósáttur við ákvarðanir
og stefnu Clintons, en sagði að
nú þyrfti forsetinn á stuðningi
þingsins að halda óskiptum.
„Þegar allt kemur til alls vekur
Bill Clinton vonir en repúblik-
anar valda hörmungarástandi,"
sagði hann meðan áheyrend-
urnir söngluðu hinn hefð-
bundna söng um „fjögur ár í
viðbót".
Þá var samþykkt á þinginu
að falla frá því markmiði sem
ákveðið var fyrir fjórum árum
um að gera miklar umbyltinar
á stjórnkerfinu og að allir eigi
rétt á heilbrigðisþjónusut. Enn
fremur var samþykkt að hafna
hugmyndum Doles, forseta-
frambjóðanda repúblikana-
flokksins, um að tekjuskattur
verði lækkaður um 15 prósent á
línuna, en í staðinn kæmu
skattalækkanir sem sérstaklega
kæmu börnum til góða.
f nótt stóð síðan til að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti yrði
samþykktur sem næsta forseta-
efni flokksins. Þinginu lýkur
síðan í dag með því að Clinton
heldur ræðu sína þar sem hann
mun m.a. fara hæðnislegum
orðum um þá áherslu sem Bob
Dole var með á flokksþingi
repúblikana fyrir skömmu, en
þar sagðist Dole stefna að því
að endurreisa gömul og góð
gildi. Clinton mun leggja
áherslu á að þar sé horft til for-
tíðar á meðan demókratar
munu horfa til framtíðarinnar.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LÚCINDA ÁRNADÓTTIR,
Skinnastöðum, Austur-Húnavatnssýslu,
verður jarðsungin frá Þingeyrakirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 14.
Alda Þórunn Jónsdóttir, Magnús Eyjólfsson,
Árni Vigfússon, Björk Kristófersdóttir,
Anna Guðrún Vigfúsdóttir, Kristófer Sverrir Sverrisson,
Vignir Filip Vigfússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
HÓLMFRÍÐUR ÍSFELDSDÓTTIR,
Helluvaði, Mývatnssveit,
verður jarðsungin frá Skútustaðakirkju föstudaginn 30. ágúst
kl. 14.
Jónas Sigurgeirsson,
Þórhildur A. Jónasdóttir, Guðmundur Gunnarsson,
Elín Inga Jónasdóttir, Jón A. Jónsson,
Sólveig G. Jónasdóttir,
Sigurgeir Jónasson,
Ingólfur í. Jónasson, Anna D. Snæbjörnsdóttir,
barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HREINN JÓNSSON,
bóndi, Klaufabrekkum, Svarfaðardal,
sem lést 24. ágúst, verður jarðsunginn
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 31. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður að Urðum.
Jónfna Hallgrfmsdóttir,
Jón Hreinsson, Vilborg Friðriksdóttir,
Hallgrímur Hreinsson, Herdís Geirsdóttir,
Sigurður Hreinsson, Arnfrfður Friðriksdóttir,
Soffía Hreinsdóttir, Gunnlaugur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.