Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Qupperneq 16
/
/ tillögum menntaniálaráöuneytisins um menntun, menningu og upplfsingatœkni frá mars 1996, seg/r m.a.:
„Sá bögguilfylgirþó skammrifi aó Windows-stýrikerfiö semfylgir töivum sem keyptar eru á íslandi er á ensku.
Þetta leiöir til þess aö tölvuumhverfi íslenskra grunnskólabarna er enskt. Þessu þarf aö breyta. “
i llt frá árinu 1984, þegar fyrsta Macintosh-tölvan
Zl kom á markað, hefur verið unnið ötullega að
jL JL íslenskun kerfishugbúnaðarins og á hverju ári er
umtalsverðum fjármunum varið til þess. Að auki hefúr
verið hægt að fá Macintosh-hugbúnað á íslensku, þannig
að vinnuumhverfi notandans hefúr verið á móðurmáli
hans.
Þ
ess vegna hefur fjöldi íslendinga alist upp við
að nota íslensku við tölvunotkun sína og óþarfi ætti
að vera fyrir skólastjómendur að setja æsku landsins
í fjötra enskunnar, þegar sest er á skólabekk. Kröfúna um
að læra á tölvur með íslensku stýrikerfi og hugbúnaði ætti
ekki að þurfa að ræða. Að sjálfsögðu á íslenskan ekki að
vera sett skör lægra þegar tekin er ákvörðun um tölvukost
í skólum landsins.
Foreldrar og uppalendur vita hversu mikilvægt það
er að halda réttu íslensku máli að börnum, ekki
hvað síst nú á dögum. Þess vegna er það ekki aðeins
réttlát krafa, heldur sjálfsögð mannréttindi íslendinga að
nota ísfensku í öllu grunnskólanámi sínu. í Macintosh-
tölvurnar má fá ritvinnsluforrit, gagnagrunn, töflureikni,
kennsluhugbúnað og ýmisfegt annað, sem að sjálfsögðu er
allt á íslensku.
Macintosh-tölvurnar eru notaðar af 56 milljónum
manna um allan heim, við útgáfú, verkfræði,
margmiðlun, forritun, myndvinnslu, kennslu og
fjölmörg önnur störf. Það er því allt sem mælir með
Macintosh-tölvum í íslenskar skólastofur, á íslenska
vinnustaði og á íslensk heimili, þar sem hagur notendanna
er í fyrirrúmi.
Apple-umboðið
ákipholti 21, 105 Reykjavik, sími: 511 5111
Heimasíða: http://www.apple.is
J
Applfrumböðið/GKS Ijósm.: Skafti Guðjónsson 13. júlí 1941 ©Ijósmyndasafn Reykjovíkur