Dagur - Tíminn - 19.09.1996, Blaðsíða 7
Jlagur-·tmm
Fimmtudagur 19. september 1996 - 7
ERLENDAR
Rússland
Mengun á Kolaskaga
meiri en talið var
Nýjar rannsóknir
leiða í Ijós að meng-
un á Kolaskaga af
völdum þungmálma
og brennisteinstvísýr-
ings er orðin ískyggi-
lega mikil.
Nú er komið í ljós að
mengun á Kolaskaga er
mun meiri en hingað til
hefur verið gert ráð fyrir, og
sökudólgurinn er rússneskur
stóriðnaður. Petta kemur fram í
rannsókn sem vísindamenn og
stjórnmálamenn frá Rússlandi,
Noregi og Finnlandi kynntu um
síðustu helgi í Noregi.
Það eru fyrst og fremst
þungamálmar og brennisteins-
tvísýringur sem ógna náttúrulíf-
inu þar á skaganum. Málm-
bræðslufyrirtæki í bænum
Montsjegorsk dæla á hverju ári
1600 tonnum af nikkel 900
tonnum af kopar beint út í
andriímsloftið ásamt töluverðu
af öðrum málmtegundum, svo
sem platínum og palladíum.
Stórir hlutar skagans verða nú
að teljast með allra menguð-
ustu landsvæðum í Evrópu.
Þessi mengun hefur víðtækar
afleiðingar, sem meðal annars
má sjá af því að stór hluti efna-
mengunarinnar berst út í Bar-
entshaf með vatni í ám og fljót-
um á skaganum. Rognvald
Boyd frá norsku Jarðfræðiþjón-
ustunni fer þess vegna fram á
það að þegar í stað séu gerðar
ítarlegar rannsóknir á hafs-
botninum í Barentshafi. -gb
Kalifornía
Heimilar geldingu kyn-
ferðisafbrotamanna
s
þriðjudag voru und-
irrituð ný lög í Kali-
forníu í Bandaríkj-
unum þar sem gert er ráð
fyrir því að heimilt verði að
gelda afbrotamenn sem
hafa ítrekað gerst sekir um
kynferðisofbeldi gagnvart
börnum. Kaliforníufylki er
þar með orðið fyrsta ríki
Bandaríkjanna sem heimil-
ar aðgerðir af þessu tagi,
en fyrr á þessu ári var reynt
að koma svipuðum lögum í
gegnum löggjafarþing í
fylkjunum Texas, Massa-
chusetts og Wisconsin.
Samkvæmt lögimum, sem
taka eiga gildi þann 1. janú-
ar næstkomandi, er gert
ráð fyrir því að ef einhver
gerist sekur um kynferði-
sofbeldi gagnvart barni
yngra en 13 ára í tvígang
verði hann að sæta því að í
hverri viku fái hann
skammt af lyfi sem nefnist
Depo-Provera, en það lyf
dregur úr kynhvöt. Lyíja-
gjöfin fer fram með sprautu,
en áhrif lyfsins íjara smám
saman út. Viðkomandi getur
einnig kosið að gangast
undir skurðaðgerð, þar sem
geldingin verður varanleg.
-gb
Vísindi
Suður-Afríka
Pappír hættu-
legur hormóna-
starfsemi?
fni sem verða til m.a.
við framleiðslu á pappír
og plasti eru talin eiga
sökina á þvi að frjósemi karla
fer minnkandi, aukinni tíðni
krabbameins o.fl.
Undanfarið hefur athygli vís-
indamanna í æ vaxandi mæli
beinst að efnum sem verða til í
iðnaði ýmis konar og geta að
því er virðist valdið ýmis konar
truflunum á innkirtlastarfsemi
dýra. Meðal annars virðist sem
þau orsaki það að frjósemi
karla fer minnkandi um allan
heim, auk þess sem rekja má
vaxandi tíðni krabbameins til
þessara efna.
Um er að ræða efni af ýmsu
tagi sem öll eiga það sameigin-
legt að verða til í iðnfram-
leiðslu. Um helmingur þeirra
eru h'fræn klórefni sem verða til
sem úrgangsefni í iðnfram-
leiðslu þar sem klórefni eru
notuð, svo sem í pappírsfram-
leiðslu. Enn fremur er þarna
um að ræða plastefni, svonefnt
vínylklóríð (PVC), sem notað er
í regnfatnað, gólfdúka og til að
húða rör, svo nokkuð sé nefnt,
og áður en geisladiskar komu
til sögunnar var þetta efni
uppistaðan í vínylplötunum
gömlu. Sorpbrennsla er einnig
uppspretta þessara efna, svo og
ýmis konar eitxu-efni sem notuð
eru til að eyða skordýrum, ill-
gresi og sveppum.
Komið hefur í ljós að öll
þessi efni geta valdið truflun á
hormónastarfsemi líkamans, og
hafa afleiðingar þess verið að
koma í Ijós á ýmsum sviðum
náttúrulífsins á síðustu árum.
Þannig er talið að rekja megi til
þessara efna fyrirbæri á borð
við það að fuglar af skarfaætt í
Bandaríkjunum hafa fæðst með
vanskapaðan gogg; höfrungar í
Atlantshafinu eru að deyja
vegna smits sem stafar af galla
í ónæmiskerfinu; og krókódflar
í Flórída eru með vansköpuð
kynfæri. Hlutföll kynjanna í
ýmsum dýrategundum víða um
heim hafa raskast, þannig að
ýmist karlkyn eða kvenkyn við-
komandi tegunda eru orðin svo
lítill hluti stofnsins að tegundin
er í útrýmingarhættu.
Athygli vísindamanna er í
auknum mæli að beinast að
áhrifum þessa á mannkynið, og
hvort umrædd efni eigi sök á
ýmsum heilsufarsvandamálum,
svo sem minnkandi frjósemi
karla, aukinni tíðni krabba-
meins í brjóstum kvenna, og
einnig aukinni tíðni annarra
krabbameinstegunda, ásamt
því að algengara er að drengir
fæðist með vansköpuð kynfæri.
Og er þá ekki allt tahð. -gb
Ritskoöun er enn við lýði í Suður-Afríkur þrátt fyrir að aðskilnaðarstefna hafi verið afnumin.
Fyrsta kvikmyndin bönnuð
eftir Apartheit
Kvikmyndin „Kids“ hiaut
þann heiður að verða
fyrsta kvikmyndin sem
bönnuð er í Suður-Afríku eftir
að aðskilnaðarstefnan leið
undir lok.
Þrátt fyrir að Apartheid-
tímabilinu sé lokið er ritskoðun
enn við lýði í Suður-Afríku, eins
og raunar í flestmn löndum
heims, og nú hefur það í fyrsta
sinn gerst eftir stjórnarskiptin
að algjört bann er lagt á sýn-
ingu kvikmyndar í Suður-
Afríku.
Það er kvikmyndin „Kids“
sem fór svona fyrir brjóstið á
kvikmyndaeftirlitinu í Jóhann-
esarborg, en þar er m.a. fjallað
á opinskáan hátt um kynlíf ung-
linga þótt raunar séu nánast
engar nektarsenur í myndinni.
Bannið er úrskurðað sam-
kvæmt gömlu ritskoðunarlög-
unum sem samþykkt voru árið
1974, meðan aðskilnað-
arstefnan var enn í fullu gildi,
en ný ritskoðunarlög fyrir Suð-
ur-Afríku eru nánast fullfrá-
gengin þótt þau hafi ekki enn
verið samþykkt á þingi. -gb
Grænland
Umhverfissamtök fá verðlaun
Akveðið hefur verið að
grænlensk umhverfis-
verndarsamtök, Inuit
Circumpolar Conference
(ICC), hljóti umhverfisverð-
laun Norðurlandaráðs 1955,
og nema þau 350 þúsund
dönskum krónum. Verðlaunin
verða afhent á þingi Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn
þann 12. nóvember.
ICC samtökin hafa allt frá því
þau voru stofnuð árið 1989
unnið einstakt starf sem lýtur
að frumbyggjum, einkum h'fs-
kjörum og lifnaðarháttum ínú-
íta með það markmið að leiðar-
ljósi að viðhalda sjálfbærri um-
hverfisþróun.
Tilgangur samtakanna er að
skipuleggja og styrkja samstarf-
ið milli hinna ýsmu ínúítasam-
taka í Alaska, Kanada, Græn-
landi og Rússlandi. Starf ICC
hefur einkum og sér í lagi verið
unnið innan AEPS (Arctic En-
vironment Protection Strategy)
þar sem ICC hafa, í nánu sam-
starfi við heimastjórn Græn-
lands, unnið að bættari lífskjör-
um heimskautabúa.
Sérverslun til sölu
Gömul og gróin sérverslun í Miðbænum á
Akureyri til sölu.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Ráðhústorgi 5, 2. hæð
gengiö ínn frá Skipagötu
Sími 4611500
Opift virka daga
frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17.
Sölustjóri: Pétur Jósefsson
Lögmaftur: Benedikt Ólafsson hdl.
FASTEIGNA & ft
SKIPASALA 3SZ
NORÐURLANDSÍI