Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Side 4
4 - Miðvikudagur 25. ágúst 1996
í[)agur-(Emium
KVIKMYNDA-
KLÚB8UR
AKUREYRAR
frumsýnir
NEÐANJAR9AR
Næstkomandi surmudag mun
Kvikmyndaklíibbur Akureyrar
(KVAK) sýna myndina Neðan-
jarðar(Underground). Sýnt
verður í Borgarbíói og hefst
sýning kl. 17.00.
Neðanjarðar er eftir leikstjór-
ann Emír isusturica sem
kunnastur er fyrir kvikmynd-
irnar „Arizona Dream“ og
„Time of the Gypsies". Neð-
anjarðar hiut Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes
árið 1995.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 7. október 1996
kl. 20-22 verða bæjarfulltrú-
arnir Sigfríður Þorsteinsdóttir
og Sigurður J. Sigurðsson til
viðtals á skrifstofu bæjarstjóra
að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu
svara símaviðtölum eftir því
sem aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
Akureyri
Tilboða leitað í yfirbyggð-
an knattspymuvöll
✓
Iþrótta- og tómstundaráð Ak-
ureyrar hefur falið fram-
kvæmdanefnd bæjarins að
leita tilboða í smíði yfirbyggðs
knattspyrnuvallar sem yrði á
svæði íþróttafélagsins Þórs í
Glerárhverfi og sambyggt fé-
lagsaðstöðu og búningsklefum
þar.
Að sögn Þórarins Egils
Sveinssonar, formanns ráðsins,
er rætt um að byggja hús sem
yrði því sem næst hálfur knatt-
spyrnuvöllur að flatarmáli, en
lögleg stærð þeirra er
60 x 90 m. Talið er að
bygging slíks húss
myndi kosta 100 til
200 millj. kr. „en við
þurfum að fá frekari
hugmyndir um kostn-
að. 100 millj. kr. til
eða frá er afskaplega
opin tala,“ segir Þór-
arinn, sem gat þess
jafnframt að leitað
yrði aukreitis eftir til-
boðum í hús sem yrði
Þórarinn E.Sveinsson
formaður Iþrótta- og tómstunda-
ráðs Akureyrarbæjar
„ Við þurfiim aðfá
frekari hugmyndir
um kostnað. 100
millj. kr. til eða frá
er afskaplega opin
tala."
að flatarmáli sama og löglegur
völlur er.
Hugmyndir og drög að húsi
þessu eru byggð á plöggum frá
mannvirkjanefnd Knattspyrnu-
sambands íslands sem unnið
hefur ákveðna stefnumótunar-
vinnu í þessu máb, Þórarinn
tekur fram að ekkert sé ákveðið
og að það að leita eftir tilboð-
um, sé hluti af undirbúnings-
vinnu áður en ákvörðun í þessu
málin verður tekin.
-sbs.
Flæmingjagrunn
Fimm togarar á heimleið
en 20 enn fyrir vestan
Sjálfsbjörg
Þakklæti til
Hlífar
Sjálfsbjörg, félag fatlaðara á
Akureyri og nágrenni,
þakkar Verkamannafélag-
inu Hb'f í Hafnarfirði sérstak-
lega fyrir að hafa í kröfugerð
vegna næstu kjarasamninga
gert kröfu um að örokru- og
ellib'feyrir fylgi annarri launa-
þróun í landi, og að frítekju-
mörk skuli hækka samsvarandi
og önnur lágmarkslaun.
Þetta segir í ályktun frá
stjórnarfundi í Sjálfsbjörg, sem
haldinn var í fyrradag. Þá skorar
stjórnin á öll önnur stéttarfélög í
landinu að verja og semja um
kjarabætur í komandi kjara-
samningum til handa þeim fé-
lögum sínum, sem nú njóta ör-
orku- eða ellilauna. -sbs.
Tuttugu íslenskir togarar
eru á veiðum á Flæm-
ingjagrunni við Ný-
fundnaland, en a.m.k. fimm
togarar voru á heimleið að
vestan í gær, en um fimm sólar-
hringa siglingu er að ræða.
Veður eru farin að verða válynd
á þessum slóðum, yfir þetta
svæði fara allar haustlægðir á
þessum árstíma, og hafa tveir
togarar, Arnarborg EA frá Dal-
vík og Nökkvi HU frá Blönduósi,
fengið á sig brotsjói. Ekkert tjón
varð um borð í Nökkva en sjór
fór niður í Arnarborgina og olli
Válynd veður
kunna að draga úr
veiðum en haust-
lægðir herja á
svæðið
nokkru tjóni.
Auk Arnarborgar og Nökkva
eru á heimleið Helga Björg HU
frá Skagaströnd, Sólbakur EA
frá Akureyri og Sigurfari ÓF frá
Ólafsfirði, en síðastnefnda skip-
ið kemur til heimahafnar nk.
þriðjudag. Sigurfari hefur verið
á Flæmingjagrunni síðan um
páska, eða í 39 vikur, og hefur
verið landað í Argencia á Ný-
fundnalandi. Togarinn kemur
með um 60 tonn af iðnaðar-
rækju til Ólafsijarðar en stærri
rækjunni var landað í Argencia
en hún fer á Japansmarkað.
Sigurfari ÓF fer síðan á rækju-
veiðar hór við land.
GG
Bændasamfök íslands
Vonast eftir nýjum
útflutningsmörkuðum
Akureyri
Daði kynnir
grafík og mál-
verk
Kynning stendur yfir í Gallerí
AllraHanda í Listagilinu á Ak-
ureyri á grafíkverkum og mál-
verkum listamannsins Daða
Guðbjörnssonar. Daði er einn
afkastamesti listamaður hér-
lendra í dag og hann notar
mjög húmor í sínum myndum
ásamt fjörlegri litskreytingu.
Kynningin stendur yfir
mánudaga til föstudaga frá
14.00 til 16.00, föstudaga 13.00
til 18.00 og laugardaga 10.30
til 12.30. GG
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtaka íslands,
segir að heldur bjartara
sé framundan hjá bændum en
verið hefur um skeið. Jöfn og
góð sala sé á kjöti og mjólk, og
góð gras-, korn- og grænmetis-
uppskera sé staðreynd. Þá séu
e.t.v. að opnast nýir möguleikar
fyrir útflutning á lambakjöti.
„Það er greinilegt að ríkari
hluti heimsins er farinn að
hugsa æ meir um hvað hann
Það er greinilegt að
ríkari hluti heimsins
er farinn að hugsa æ
meir um hvað hann
borðar og þegar
grannt er skoðað
kemur í Ijós að hvergi
í heiminum eru fram-
leidd aukaefnalausari
matvæli en hér.
borðar og þegar grannt er
skoðað kemur í ljós að hvergi í
heiminum eru framleidd auka-
efnalausari matvæli en hér. Ég
veit ekki hvort við finnum mjög
mikið fyrir þessari hugarfars-
breytingu á þessari öld en þetta
mun örugglega koma okkur til
góða á hinni næstu. Auðvitað
sjá allir hugsandi menn að stór
hluti heimsins stefnir óðfluga í
að verða ein stór sorpgeymsla.
Hins vegar er það þannig hér-
lendis að stór hluti þjóðarinnar
hefur ekki efna á að velja sér
þá hollustu sem fólk vildi. Því
miður.“
Hugað er að markaðssetja ís-
lenskt lambakjöt erlendis með
aukinni áherslu á hreinleika.
Ari segir að komið hafi í ljós að
strangar reglur um lífrænt vott-
uð matvæli hafi haft áhrif á út-
flutningsmöguleika þar og það
hafi orðið til þess að stórar
verslunarkeðjur sem fyrst og
fremst hafa einbeitt sér að líf-
rænt ræktuðum afurðum séu nú
farnar að huga að næsta skrefi,
hreinni fæðu en þó ekki lífrænt
vottaðri. Þarna liggji verulegir
möguleikar hvað sauðíjárrækt-
ina varðar en enn séu íslend-
ingar þó aðeins „peð“ á þessu
sviði. BÞ
Innilegar þakkirtil þeirra fjölmörgu, sem
sýndu okkur og fjölskyldum okkar samúð og
vinarhug við andlát litla drengsins okkar,
bróður og barnabarns,
LEÓS FREYS ELÍSSONAR,
Eikarlundi 27, Akureyri.
Sigríður Hrönn Pálsdóttir, Elís Árnason,
Viktor Páll, Árni Valdór,
Halldóra Höskuldsdóttir, María Ingibergsdóttir,
Páll Þorgeirsson, Árni Vaidór Elísson.