Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 7
jllagurdlmmm
Laugardagur 5. október 1996 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
„Miskunn sem heitir skálkaskjól“
Ljóst er orðið að sú kenn-
ing, að við ættum að láta
okkur ekki síður annt um
glæpamanninn en fórnarlamb
hans, er markleysa"
Af tilefni níðingsverka og
morða á stúlkum á barns- og
unglingsaldri í Belgíu eru
menn sem sækjast eftir börn-
um til kynmaka og barna-
klámi, mjög til umræðu. Þeir
eru á mörgum tungumálum
kallaðir pedófflar (á ensku: pa-
edophiles).
Þeir eru langflestir karl-
menn, bæði hommar og gagn-
kynhneigðir. Þetta er lfldega
eitt af því, sem fylgt hefur
mannkyninu frá örófi alda.
Með Forn-Grikkjum tíðkaðist
þannig svokölluð „sveinaást“
milli fullorðinna karlmanna og
drengja á unglings- eða barns-
aldri.
Gróðavænlegra en
ópíum
Nú á tímum eru kynmök við
börn víðast fordæmd a.m.k.
opinberlega og bönnuð með
lögum, en samt færist þetta lfk-
Iega í vöxt. Sem ein orsaka til
þess er nefnt að margir haldi
að þeim mun yngri sem stúlkur
og piltar séu, þeim mun ólík-
legra sé að þau séu með al-
næmi.
Talið er að barnavændi og
verslun með barnaklám hafi
undanfarið aukist í Suður- og
Suðaustur-Asíu, Afríku og
Rómönsku Ameríku og eftir
hrun sovétkommúnismans rok-
ið upp í fyrrverandi austur-
blokk, þar sem þetta er liður í
athafnasemi „rússnesku mafí-
unnar“. í einhverju blaðinu
stendur að barnasala frá ýms-
um fátækari svæðum megin-
lands Suðaustur-Asíu til vænd-
is sé orðin gróðavænlegi en óp-
íumverslunin, sem sum þau
héruð hafa annars verið þekkt
fyrir.
Baksvið
Dagur Þorleifsson
í ofantöldum heimshlutum
er mikið um að umkomulaus
börn séu neydd eða neyðist út í
þetta, en einnig er eitthvað um
það þar að foreldrar selji börn
sín til vændis eða „starfræki“
þau sjálf.
Eftirspurn
En viðbjóður
af þessu tagi
tíðkast einnig
á Vesturlönd-
um, eins og
mál belgíska
rafvirkjans
Marcs Dutro-
ux hefur
minnt á.
Hér er um
að ræða við-
skipti, þar sem
eftirspurnin er
veruleg og
þegar svo er
má reikna
með því að
reynt sé að
fullnægja
henni í gróða-
skyni. Mafíur
koma hér við
sögu, en
einnig óháðir
„bisness-
menn“ eins og
Dutroux.
Hann og
„starfsmenn" hans (þ.á m. eig-
inkona hans, sem hjálpaði
honum við þetta af ást til hans,
að sögn) rændu stúlkubörnum
og unglingsstúlkum, héldu
þeim föngnum, nauðguðu
þeim, tóku þær aðfarir upp á
myndbönd og myrtu sumar
stúlknanna, þ.ám. tvær átta
ára sem voru sveltar í hel. „At-
vinnurekstur" Dutroux hefur
líklega fyrst og fremst snúist
um framleiðslu á barnaklámi.
Undarlegt þykir hve yfir-
völd, sem höfðu fengið viðvar-
anir um Dutroux, voru lengi
kærulaus um hann. Er því uppi
grunur um að hann hafi notið
verndar manna ofarlega í
„kerfinu". Reikna má með því
að pedófflar séu einnig í efstu
lögum samfélaga og menn of-
arlega í samfélögum kynnu að
eiga gróðahagsmuna að gæta í
barnavændi og barnaklámi.
Dauðarefsingar
krafist
Dauðarefsing var numin úr
lögum í Belgíu í sumar, en nú
rísa þar kröfur um að hún
verði innleidd á ný. Þekktur
sænskur sjónvarpsmaður sagði
fyrir nokkrum árum að tillits-
semi samfélagsins við afbrota-
menn hefði gengið svo langt,
að það væri farið að taka af-
stöðu með þeim gegn fórnar-
lömbum þeirra. Dutroux hafði
1989 verið dæmdur til 13 ára
fangelsisvistar fyrir nauðganir
og misþyrmingar á fimm stúlk-
um, þar af einni tólf ára. Hann
var látinn laus „vegna góðrar
Belgísku stúlkurnar Mélissa Russo
og Julie Lejeune, báðar átta ára,
voru fangar barnaníðinga í níu
mánuði, þar sem þær liðu meiri
þjáningar og svívirðingar en nokk-
ur veit og voru að lokum sveltar í
hel.
hegðunar" eftir að hafa setið af
sér aðeins þrjú ár. Miskunn,
sem heitir skálkaskjól, sagði
sálmaskáldið.
í leiðara í breska blaðinu
The European stendur að
þásem „fremja slíka viður-
styggð, verði að Qarlægja úr
samfélaginu, svo að útilokað sé
að þeir eyðileggi fleiri góð og
ung lif. “ Þar segir og að „ljóst
sé orðið að sú kenning, sem
einu sinni var í tísku, að við
ættum að láta okkur ekki síður
annt um glæpamanninn en
fórnarlamb hans, markleysa."
Gera má ráð fyrir að viðbjóð-
urinn, sem kom í ljós í Belgíu,
ýti undir kröfur á þá leið, að
samfélögin taki hagsmuni
venjulegra borgara og mannúð
gagnvart þeim framyfir hags-
muni glæpamanna og mannúð
gagnvart þeim. Og sérstaklega
má ætla að í því sambandi
verði hert á kröfum um að fyr-
ir öðru verði látið ganga að
tryggja öryggi þeirra varnar-
lausustu af öllum, barnanna.
Dutroux er lýst sem greindum manni og fremur kulda-
legum:... þá sem „fremja slíka viðurstyggð verður að
fjarlægja úr samfélaginu ...“
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN VOPNAFIRÐI
Staða hjúkrunarforstjóra
Heilsugæslustöðin á Vopnafirði óskar að ráða
hjúkrunarforstjóra til afleysingarstarfa í 12 til 14
mánuði frá og með 15. nóv. 1996.
Fjölbreytt og gefandi starf í góðu umhverfi.
Mjög góð kjör.
Nánari upplýsingar veita:
Emil Sigurjónsson, rekstrarstjóri,
vinnusími: 473 1225, heimasími 474 1478.
Adda Tryggvadóttir, hjúkrunarforstjóri,
vinnusími 473 1225, heimasími 473 1108.
Harmur Belga vegna örlaga stúlknanna sem lentu í klóm Dutroux er blandinn ævareiði í garð yfirvalda, sem sök-
uð eru um kæruleysi og jafnvel yfirhylmingar.
Verð miðað við staðgreiðslu
er 1300* krónur
fyrsta birting
og hver endurtekning
400 krónur
JOagur-Ctmmrt
Strandgötu 31 • Akureyri
Garðarsbraut 7 • Húsavík Sími 800 70 80
Brautarholti 1 • Reykjavík