Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Blaðsíða 8
8 - Laugardagur 5. október 1996
©agur-Œmtam
ÞJÓÐMÁL
iDagur- ®ímmn
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Brautarholti 1, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 563 1600
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Verkaiýðforystan
í fyrsta lagi
Forystumenn samfélagsins grátbæna lýðinn um sann-
girni og ábyrgð í komandi kjarasamningum. Það er lík-
legt til vinsælda að snúa því faðirvori upp á skrattann
ef maður er verkalýðsforingi. Minna á að ráðherrar
fengu í fyrra mánaðarlaun verkamanns í kauphækkun.
Að þeirri skemmtun lokinni spyr maður: hvað svo?
Hver er hernaðaráætlunin?
s 5J22Z22§2E22SS Uló
r— ■ — “ * “ " * ■ ————1
Á að heiinila veðsetningu
aflaheimilda?
Siv
Friðleifsdóttir
þingmaöur
Framsóknarflokks
Nei, ég sé ekki ástæðu
til þess. Petta hefur
verið rætt nokkuð í
okkar röðum og ég á ekki
von á því að rfkisstjórnin
leggi fram frumvarp þar
sem veðsetning kvóta er
lögð til. í mínum huga
stangast veðsetning kvóta
að verulegu leyti á við 1.
grein laga um stjórn fisk-
veiða, þar sem fiskurinn er
sagður sameign þjóðarinn-
ar. Maður veðsetur varla
eignir annara."
Sighvatur
Björgvinsson
þingmaöur
Alþýöuflokks
Nei, aflaheimildir eru
eign þjóðarinnar og
þú getur aldrei veð-
sett annara manna eign.“
♦
♦
Trúir því einhver innst inni að næstu kjarasamningar
muni skila tvöföldun lægstu launa? Eða bara 40%
hækkun á lægstu taxta? Fullkomlega óraunhæfar kröf-
ur sem enda í klinki við undirskrift „góðærissamninga"
stuðla að gífurlegum vonbrigðum verkafólks, félags-
legri firringu og vantrú á hreyfinguna. Þetta á miklu
fremur við nú en áður vegna þess að vel árar.
þriðja lagi
Nema að orðunum fylgi áætlun til að fylgja eftir. Þetta
blað hefur áður hvatt til þess „jafnlaunakröfur“ sem á
endanum skila láglaunaárangri fyrir alla verði lagðar
á hilluna. Hins vegar er æskilegt að hreyfingin í heild
leggi fram samtímis launakröfum sínum útfærðar hug-
myndir um samfélagsleg verkefni á næstu misserum.
Raunhæfa verkaskrá um að bæta h'fskjör almennings
og verja velferðina. Tvíhliða áætlun um samninga og
brýn velferðarmál heimilana myndi skapa hreyfing-
unni traust og veita henni pólitíska forystu. Þannig
væri ekki aðeins hægt að bæta hag heimilanna heldur
styrkja hreyfinguna pólitískt og siðferðislega til lengri
tíma litið.
Stefán Jón Hafstein.
Helgi
Pétursson
markaösstjóri
Samvinnuferöa-
Landsýn
Nei, ég h't ekki á að
þeir sem hafa afla-
heimildir í dag eigi
þær. Með því að heimila
slíka veðsetningu er verið
að staðfesta eignarrétt sæ-
greifanna á auðlindum
þjóðarinnar. Slíkt væri rán
um hábjartan dag - hið
mesta í íslandssögunni.“
Einar K.
Guðffinnsson
þingmaöur
Sjálfstœöisflokks
Nei, það var frá því
gengið þegar stjórn-
arfrumvarp um þessi
mál var lagt fram í fyrra að
þetta ákvæði ætti ekki að
vera inni í frumvarpinu -
og skoðun mín að þessu
leyti hefur ekkert breyst.
Ég tel að sú þróun sem
verið hefur, að aflakvóta
hafa stórhækkað í verði, sé
stórháskaleg og skekki allt
verðmætamat í landinu."
1 1
S fWl
Stóri bróðir
„Erlendis er það þekkt aðferð að
stórfyrirtæki hóta málssókn þeim
fjölmiðlum sem gagnrýna þau.
Stundum nægir tilhugsunin um
stórfelldan málskostnað til að
fjölmiölar lúffi og tileinki sér
sjálfsritskoðun. Stöð 2 starfar á
þessum nótum,"
sagði leiðarahöfundur Vikublaðsins í gær.
Pólitísk hárgreiðsla
„Ég hef stundum horft á þessar
umræður og haft gaman af. Ég
greiði mörgum konum sem eru í
pólitík og vil vera inni í málum.
En mér finnst þetta vera of
langt,“
sagði Brósi hágreiðslumaður í Alþýðublaðinu í
ga;r um stefnuræðu forsætisráðherra.
Annars flokks
„Flugleiðir Iíta greinilega á Fær-
eyjaflugið sem annars flokks flug
og telja ekki ástæðu til að sinna
því af alvöru og vandvirkni,"
sagði Höskuldur Þráinsson prófessor í Morg-
unblaðinu í gær.
Ferðakirkja Flóka
„Slík ferðakirkja sem færi frá
einni borg til annarrar yrði þó
æði kostnaðarsöm og ekki er víst
að messusókn yrði mikil af hálfu
íslendinga,"
sagði Pétur óskarsson rekstrarráðgjafi í
Þýskalandi í Morgunblaðinu í gær.
Ólög
„Niðurstaðan er frómt sagt sú að
í hverju málinu á fætur öðru hef-
ur Fiskistofa látið vera að fara
að lögum varðandi ákvörðun
gjalds fyrir ólögmætan sjávar-
afla,“
sagði Jónas Haraldsson lögfræðingur LÍÚ í Út-
vegi.
Framsókn og fornir bflar
Framsóknarmenn af Kirkjubóls-
kynslóð eru að rumska hér í
blaðinu með ráðherrann frá
Höllustöðum í broddi fylkingar.
Álengdar eru þessi svenfnrof eins og
þegar fornminjar Þjóðminjafsafnsins
hugsa sér til hreyfings eftir lokun.
Sá dagur kemur að sveitamenn
verða að skrifa undir jöfn réttindi fólks
út um landið. Sum réttindi eru þeirrar
gerðar að þeim verður ekki skipt öðru-
vísi en jafnt á milli manna.
Dettur kannski einhverjum manni í
hug að hefta svo trúfrelsið í landinu að
Húnvetningar megi aðeins giftast
Reykvíkingum í Blönduóskirkju á
þriggja daga fresti og hlaupársdag?
Vill einhver maður þjarma svo að
þyrstu fólki að ekki megi drekka sterk-
an bjór á Kirkjubóli vestur nema
íjórða hvern virkan dag, sprengidag og
tvo fyrstu sunnudaga í aðventu?
Myndi ekki einhver Héraðsbúinn
bresta í grát ef hann fengi aðeins að
lesa Austra sinn eftir kvöldmat á dag-
inn og þá bara eldri árganga?
Ætli heyrðist ekki hljóð úr horni eft-
ir lokun Þjóðminjasafnsins á daginn, ef
svo væri komið fyrir fólki á lands-
byggðinni?
Sveitamenn myndu ekki vilja láta
rýra mannréttindi sín á þennan hátt
fyrir nokkurn pening. En þegar röðin
kemur að kosningarétti er komið ann-
að hljóð í strokkinn. Þá þykir sjálfsagt
að sveitir landsins hafi margfaldan rétt
Reykvíkinga og Reyknesinga.
Reykvíkingar og nágrannar geta
aldrei sætt sig við þessa niðurstöðu.
Kosningaréttur er grunnmannréttindi
og kemur í raunini næst á eftir réttin-
um til lífsins. Sjálfstæðisbarátta þjóða
snýst um réttinn til að hafa full áhrif á
örlög sín með atkvæðaseðli. Með því að
gera einum seðli hærra undir höfði en
öðrum eru mannréttindin hneppt x'
ánauð. Reykvíkingar eru raunverulegir
þrælar sveitamanna á meðan þeir fá
ekki að kjósa um örlög sín nema að
ijórða hluta.
íslendingar sigla nú hraðbyri inn í
nýja öld með netföngum og tölvupósti.
Tími samruna er gengirm í garð fyrir
löngu og hver sameiningin rekur aðra
um þessar mundir. Búið er að sameina
tvö helstu málgögn Framsóknarflokks-
ins í eitt dagblað og kratar eru gengnir
í eina sæng með þingflokki Þjóðvaka.
Framsókn getur því slegið tvær
flugur í einu höggi og nálgast tuttug-
ustu öldina með því að sameina þing-
flokk sinn Fornbílaklúbbnum.
áóg£h Manneó