Dagur - Tíminn - 05.10.1996, Page 6
6 - Laugardagur 5. október 1996
jOagurÆímimt
F R E T T I R
Hafnarfjörður
Engar sættir á heitum fundi
óhann Bergþórsson
bæjarfulltrúi fór fram á
sættir innan Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði á
löngum og heitum aðalfundi
fulitrúasráðs flokksins í fyrra-
kvöld sem stóð til 2 um nótt-
ina og voru menn beðnir að
stytta mál sitt undir lokin. Til-
raun til hallarbyltingar mis-
tókst.
Mótframboð gegn sitjandi
formanni, eyrnamerkt stuðn-
ingsmönntun Jóhanns og Ellerts
Borgars Þorvaldssonar, kom
fram á fundinum. Athygli vekur
hins vegar hversu mikið fylgi
frambjóðandinn Kristinn And-
ersen verkfræðingur hjá Marel
hlaut.
Eitt hundrað manns áttu at-
kvæðisrétt í fulltrúaráði Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði.
Þórarinn J. Magnússon, ritstjóri
Mannlífs, hlaut 59 atkvæði og
var endurkjörinn formaður,
Kristinn Andersen hlaut 41 at-
kvæði, en hann er talinn hlið-
hollur Jóhanni Bergþórssyni.
Kristinn og félagar höfðu unnið
mjög fagmannlega að framboð-
inu.
„Það hversu mörg atkvæði
Kristinn hlaut, sýnir og sannar
að ekki hefur verið irnnið að
einhverjum hreinsunum í
flokknum, eins og þeir hafa þó
verið að fullyrða," sagði Þórar-
inn Jón Magnússon í gær.
„Þessi kosning er ekki þver-
skurður af vilja kjósenda
flokksins í Hafnarfirði, það get
ég fullyrt, hún er aðeins árang-
ur af mikilli smölun og
góðri vinnu við hana,“
sagði Þórarinn.
„Þetta var mjög
fögur ræða sem Jó-
hann hélt um sættir.
En það gengur ekki að
á sama tíma og bæjar-
fulltrúar okkar, Val-
gerður Sigurðardóttir
og Magnús Gunnars-
son, mæta þeim Jó-
hanni og Ellert á bæj-
arstjórnarfundum þar sem þau
veita þeim pólitíska andstöðu,
þá hlýtur hver maður að sjá að
það er ekki hægt að þeir sitji
við sama borð og þau við að
stýra flokknum,“ sagði Þórarinn
í gær.
Ekki kemur til greina í Firð-
inum að Magnús og Valgerður
gangi inn í meirihlutasamstarf-
ið. Kratar hafna þeim gjörsam-
lega.
Hafnflrðingar eru að vonum
býsna ruglaðir eftir að hafa
upplifað 3 meirihluta á sama
kjörtímabilinu. Staða Sjálfstæð-
isflokksins í bænum er vægast
sagt veik, flokkurinn klofinn í
tvær fylkingar. -JBP
Jóhann Bergþórsson
bæjarfulltrúi
Bauð sœttir á heitum
fundi fulltrúaráðs Sjálf-
stœðisfélaganna í Hafii-
arfirði - hallarbylting
mistókst
Ferðamálaráð íslands
Knörrirai hlaut
umhverfisverðlaraiin
Hjónin Hörður Sigurbjarnarson og Sigríður Þórdís Einarsdóttir með verð-
launagripinn, sem er höggmynd eftir Halistein Sigurðsson sem ber nafnið
Hyrningar. Mynd: Víkurfréttir
Halldór Blöndal, sam-
gönguráðherra, veitti
KNERRINUM á Húsavík
umhverfisverðlaun Ferðamála-
ráðs fslands fyrir árið 1996. Nú
stendur yfir ferðamálaráðstefna
í Reykjanesbæ, þar sem mættir
eru aðilar úr ferðaþjónustu
víðsvegar að af landinu.
Hæstum hæðum nær íslensk
ferðaþjónusta þegar á mark-
vissan og skemmtilegan hátt er
fléttað saman mannlífi og nátt-
úrulegum gæðum þessa lands .
Þetta var meðal margra atriða
sem höfð voru að leiðarljósi
þegar verðugs handhafa verð-
launanna var leitað. Alls bárust
ellefu mjög frambærilegar til-
nefningar frá ferðamálafulltrú-
um víða um land.
KNÖRRINN er eikarbátur
sem smíðaður var á Akureyri
snemma á sjöunda áratugnum
og er einn fárra sem ekki hefur
orðið eyðileggingu að bráð.
Fyrir tveimur árum stóð til að
farga bátnum en bræðurnir
Árni og Hörður Sigurbjarnar-
synir ákváðu að kaupa hann og
gera upp. Við endursmíði báts-
ins voru náttúruleg efni notuð
eftir megni. Frá upphafi leyfðu
bræðurnir engar málamiðlanir
og heyrist það kannski best á
alíslensku nafni fleysins. Bátur-
inn er gerður út frá Húsavík og
er rekinn sem fjölskyldufyrir-
tæki þeirra bræðra.
Með KNERRINUM er hægt að
komast í sjóstangaveiði og
hvalaskoðun auk þess sem
landganga í Flatey býðst í hluta
ferðannar. Er þá gengið um eyj-
una sem skartar m.a. fallegri
kirkju, ásamt æðar- og kríu-
varpi. Boðið er upp á kaffi,
kakó og heimabakaða snúða á
heimsiglingu. Auk þess er sá
fiskur sem gjarnan veiðist mat-
reiddur um borð og eykur það
óneytanlega gildi ferðarinnar.
Hjónin Hörður Sigurbjarnar-
son og Sigríður Þórdís Einars-
dóttir veittu verðlaununum við-
töku. Verðlaunagripurinn er
höggmynd eftir Hallstein Sig-
urðsson sem ber nafnið Hyrn-
ingar.
Loðnan
Jón Kjartansson með fullfermi
Jón Kjartansson SU landaði
um 1.100 tonnum af loðnu
á Eskifirði á fimmtudags-
kvöldið en loðnan fékkst í kant-
inum norður af Halanum, eða
um 50 mílur norðvestur af
Straumnesi. Strax að lokinni
löndun var haldið aftur á loð-
numiðin út af Vestfjöröum.
Beitir NK var einnig á þess-
um slóðum, en um leið og
heyrðist af veiði þessara báta
fóru fleiri bátar að hafa sig
vestur, m.a. Börkur NK.
Loðnan er á leiðinni upp
kantinn og síðan væntanlega
norðaustur með Norðurlandi,
með straumnum. Loðnan fer öll
til bræðslu, því eftir sýnatöku
reyndist of mikið af átu í henni.
Til stóð að reyna að frysta eitt-
hvað af loðnunni á Rússlands-
markað, en af því getur ekki
orðið fyrr en átumagnið minnk-
ar til muna. GG
Húsavík
Yfír 63 prósent
ungmenna hafa
neytt áfengis
Síðastliðið vor fór af
stað könnun á vegum
starfshóps skipuðum af
bæjarráði Húsavíkur. Með
könnuninni voru lifnaðar-
hættir og aðstæður hús-
vískra ungmenna, á aldrin-
um 14-22 ára, skoðuð.
Heildarsvörun reyndist
75%, svör vantaði helst frá
ungu fólki sem ekki var í
skóla.
Tóbaksnotkun
11,5% af hópnum reykja
daglega, og
höfðu flestir
byrjað að
neyta
tóbaks 13-
15 ára og
eru mun
fleiri dreng-
ir en stúlk-
ur sem
reykja. Ekk-
ert bendir
til þess að
þeir sem
reykja hafi
frekar laun-
aða vinnu
en hinir sem segir okkur að
í mörgum tilfellum eru það
foreldrarnir sem fjármagna
tóbaksnotkun barna sinna.
Marktækur munur er á
þeim sem stunda íþróttir
eða ekki með tilliti til þess
hvort þeir reykja eða ekki.
Áfengisnotkun
63,5% ungmennanna hafði
neytt áfengis en hlutfallið
fer stig hækkandi eftir því
sem þau eldast, þannig að
yngsti hópurinn hefur neytt
áfengis í 43% tilfella, fólk á
framhaldsskólaaldri í 76%
tilvika og af þeim sem ekki
eru í skóla er um neyslu að
ræða í 89% tilvika. Þegar
tíðni neyslunnar er athuguð
kemur í ljós að 52% drekka
sjaldnar en mánaðarlega,
22% mánaðarlega, 17%
hálfsmánaðarlega en hlut-
fallið er komið niður í 7%
hjá þeim sem drekka viku-
lega.
Fíkniefni
15 einstaklingar af 105
manna heildarúrtaki sögð-
ust hafa neytt ffloiiefna og
lítill áhugi hjá öðrum að
prófa fíkniefni.
Athygli vekur að aðspurð
svara ungmennin því að
auðvelt sé
að útvega
hvort held-
ur sem er
landa eða
fíkniefni.
Aldurshóp-
urinn 14-16
ára segist í
40% tilvika
geta útveg-
að landa
með
skömmun
fyrirvara,
17-20 ára í
69% tilvika
og hjá 20-21 árs geta 73%
útvegað landa.
Þegar um fíkniefni er að
ræða kemur niðurstaðan
meira á óvart, þar sem 42%
ungmennanna segjast geta
útvegað fíkniefni hér á
Húsavík eða á Akureyri með
skjótum hætti og nokkrir
töldu sig hafa sambönd
annars staðar m.a. í Reykja-
vík.
Dagleg líðan ungs fólks á
Húsavík var einn þáttur
könnunarinnar og virðist
líðan þeirra nokkuð góð þar
sem 90% svarenda segjast
oftast ánægð eða vera oftar
ánægð en döpur. Af þessu
má draga þá ályktun að það
sé gott að vera unglingur á
Húsavík í dag. GKJ