Dagur - Tíminn - 17.10.1996, Blaðsíða 1
79. og 80. árgangur 198. tölublað • Verð í lausasölu 150 kr.
Landlæknir : Stöð 2
Póstur og sími
Hafnarfjörður
Stáíbræðslan
opnar að nýju
Fimmtíu manna vinnustað-
ur í Hafnaríirði mun
væntanlega opna aftur að
nýju áður en langt um líður. Þar
er um að ræða fyrirtæki sem
tekur að sér reksturinn þar sem
Stálfélagið hf. starfaði, en það
varð gjaldþrota.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
ráðherra, sagði í gær að hér
væri um að ræða fyrirtæki sem
framleiddi 100 þúsund tonn af
afurðum, sem hann vildi ekki
gefa upp hverjar væru. Rafafls-
þörfin er 14 megawött.
Þá er von á fulltrúum fyrir-
tækja frá Kóreu á næstunni til
viðræðna, en þeir hafa áhuga á
að kanna matvælaiðju og stór-
iðju hér á landi. JBP
af miklum kvíða, þunglyndi og
sjálfsmorðshugleiðingum. Og
stór hluti unglinga sem ljúka
vistun á meðferðarheimilum
snúa aftur til síns heima, þar
sem þeirra nánustu eiga við
veruleg vímuefnamál að stríða.
Vandamál þessara foreldra
setja mark sitt á unglingana á
unga aldri, rýra öryggi þeirra og
sjálfsmynd, segir landlæknir. Og
vandamál þeirra leysist ekki
nema að til komi öflug íjöl-
skyldumeðferð. Vegna þess
hluta hópsins sem stríðir við al-
varlegan heilsufarslegan vanda
þurfi að efla geðlæknisþjónustu í
landinu.
Ný hús bjarga litlu nema
þá samvisku valdhafa
Uppnám
Breytingar á fróttastjórn á
Stöð 2 eru fyrirhugaðar.
Páll Magnússon forstjóri
Sýnar á að taka við yfirmanns-
stöðu á fréttastofunni. Ekki hef-
ur verið útfært hver staða núver-
andi fréttastjóra, Elínar Hirst,
verður í hugsanlegu samstarfi
við Pál. Eins og Dagur-Tíminn
hefur skýrt frá greina heimildir
frá því að hugsanlegt sé að Elín
hverfi úr stöðu fréttastjóra. Deil-
ur um sjálfstæði fréttastofunnar
gagnvart eigendum og yfirmönn-
um koma við sögu í þeim hrær-
ingum sem þar nú eru.
Mér finnst þetta hreinlega
ekki nógu gott. Að mínu
mati á Póstur og sími
ekki að reka þjónustu sem særir
siðgæðisvitund viðskiptavin-
anna“, segir Guðmundur Björns-
son, verðandi Póst og símamála-
stjóri, í samtali við Dag Tímann
um bersöglis- og stefnumótah'n-
ur þær sem fyrirtækið starfrækir
undir ýmsum nöfnum.
Guðmundur segir að reglu-
gerð um símatorgsþjónustu
Pósts og síma sé í endurskoðun
hjá vinnu-
hópi í
Samgöngu-
ráðuneytinu
með það fyr-
ir augum að
aðgreina
þjónustuna.
„Þá geta
þeir sem
vilja hafa
aðgang að
þessum línum sótt um það skrif-
lega, en hinir verið lausir og
Guðmundur.
jafnframt nýtt sér áfram aðra al-
menna þjónustu Símatorgsins“,
segir Guðmundur.
Einnig stendur til að fylgjast
nánar með því efni, sem sett er á
þessar „rauðu" línur Pósts og
síma og setja því fastari skorður.
Á sama tíma og þessar línur,
sem nú skipta tugum og fer
fjölgandi, skapa Pósti og síma
luntalsverðar tekjur, hafa þær
orðið mörgrnn heimilum í land-
inu þungur íjárhagslegur baggi.
Sjá bls. 6. H.H.S.
Unglinga skortir ekki
þekkingu um hættur
vímuefna, segir land-
læknir. Aðalmarkhóp-
urinn er í flestum til-
fellum fjölskyldan.
Olafur Ólafsson landlæknir
vísar til skólahjúkrunar-
fræðinga um það að ung-
linga skorti í fæstum tilfellum
þekkingu um hættur vímuefna -
þá skorti að tileinka
sér þekkinguna.
Landskönnun land-
læknisembættisins,
m.a. á áhrifum af
áfengisfræðslu, leiddi
m.a. í ljós þessa
óvæntu niðurstöðu:
„Marktækt hærra hlut-
fall þeirra sem sögðust
enga fræðslu hafa
fengið segjast ekki
neyta áfengis“.
„Menn virðast sammála um,
og éta það hver eftir öðrum, að
höfuðatriðið sé að kenna ungl-
ingum að segja nei. En hvernig
gengur það eftir þegar foreldrar
segja ekki nei. Auglýsingaher-
ferðir eru einnig vinsælar, þótt
árangur þeirra hafi reynst tak-
markaður. Og hvern er verið að
auglýsa?", spyr landlæknir, sem
ekki efast um að allt sé þetta þó
af góðum hug gert.
Ólafur trúir heldur ekki að ný
steinsteypt hús mundu bjarga
miklu - „nema þá samvisku
valdhafa“. Raunhæfar leiðir fel-
ist fyrst og fremst í stórefldri
íjölskylduráðgjöf og því að
skapa villuráfandi unglingum
verkefni, með námi og starfs-
Ólafur Ólafsson
þjálfun. Erfitt reynist hins vegar
að fá fjármagn til slíkra hluta,
því árangur sé þar ekki eins
sýnilegur og í vel hönnuðu húsi.
Landlæknisembættið hefur fylgst
með vímuefnaneyslu unglinga í
framhaldsskólum landsins á
annan áratug. Komið hafi í ljós,
segir Ólafur að áfengi sé langal-
gengasti vímugjafinn. Þótt tölu-
verður hópur unglinga fikti við
ólögleg vímuefni þá sé það rangt
að 200 unglingar í Reykjavík,
14-16 ára, séu ofurseldir vímu-
efnrnn, eins og haldið hefur ver-
ið fram að undanförnu.
Raunhæfar lausnir segir Ólaf-
ur ekki fást nema menn taki mið
af niðurstöðum margra vel
gerðra rannsókna um liagi
þeirra sem ánetjast vímuefnum.
Meðal einkenna þessa hóps séu;
að hafa ekki lokið skyldunámi,
hafa ekki starfsréttindi og fylla
raðir atvinnulausra, óöryggi, lé-
leg sjálfsmynd og minnimáttar-
kennd. Margir þeirra búi líka
við mjög erfiðar heimilis- og
fjölskylduaðstæður, samskipta-
erfiðleika, afskiptaleysi og lítinn
stuðning. Allt að 'A hluti ungl-
inga sem leita meðferðar þjást
landlæknir
„Ný steinsteypt hús
bjarga litlu nema þá sam-
visku valdhafa, Raunhœf-
ar leiðir felast í stórefldri
fjölskylduráðgjöf og að
skapa villuráfandi ungl-
ingum verkefni".
Erria Rut Konráðsdóttir
riióðlr f Reykjavík. Ungur
sonur hennar skuldar nú
Pósti og síma á þriðja
hundrað þúsund krónur
fyrir hringingar í
„makalausar
Amorslínur".
Mynd: BG
Munu læsa kynlífslínum
Lífið í landinu
Bls. 3
Forum i
tvífrysta
rækju
íjulegir og demantsskornir
lofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI