Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Side 2
// - Laugardagur 19. október 1996
|D^tgur-'3Ktnmn
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Freyja Jónsdóttir
skrifar
Templarasund 3 er byggt á
lóðinni sem Jakob Sveins-
son trésmiður fékk til við-
bótar vestan við lóð súia árið
1878. Þaf byggði hann smíða-
hús. Jakob nam trésmíði í Kaup-
mannahöfn á árunum frá 1847
til 1856. Eftir að hann kom til
landsins kenndi hann trésmíði
og margir ungir menn voru hjá
honum í námi. Hann byggði hús-
ið Strýtu (Kirkjustræti 6) og bjó
þar ásamt lærisveinum sínum,
en flestir þeirra dvöldust á heim-
ili hans meðan á námi stóð.
Grein um Strýtu birtist í blaðinu
28. september.
Einn af lærisveinum Jakobs
Sveinssonar var Jón Sveinsson,
sem keypti smíðahúsið og vest-
urhluta lóðarinnar árið 1897.
Smíðahúsið var einlyft með risi
og á steyptum kjallara, byggt af
bindingi og járnklætt.
Árið 1904 reisti Jón tvflyft
timburhús á steyptum kjallara
vestar á lóðinni meðfram Templ-
arasundi. Sama ár fær hann leyfí
til þess að hækka smíðahúsið,
sem byggt var á horni Kirkju-
torgs og Templarasunds. Jón
byggir síðan viðbót við nýja hús-
ið og með þeirri viðbót tengdi
hann þessi tvö hús saman. Sami
inngangur var í bæði húsin.
Fyrsta brunavirðingin á
Templarasundi 3 var gerð í októ-
ber 1904, en þá er húsið í bygg-
ingu. Þar segir að húsið sé byggt
af steinsteypu 4 1/2 álnir upp, en
þar fyrir ofan af bindingi, klætt
utan með plægðum 5/4” borðum,
pappa í milii og með járni yfir.
Kjallari er ofanjarðar, í honum
tveir gangar og vestur- og suður-
rými. Gangarnir eru þiljaðir og
kalkdregnir. Helmingur af gólf-
um er steyptur, en hinn helming-
urinn er úr tré.
í binding er fyllt með hálmi
og í milligólfi milli annarrar og
þriðju hæðar. Á öðru gólfi eru
tveir gangar, þiljaðir og málaðir,
en hæðin að öðru leyti í smíðum.
Á þriðja gólfi eru sex herbergi
og geymslur, sem allt er þiljað,
og tvö herbergin með striga og
pappír á veggjum og loftum. Allt
málað.
í október 1905 koma virð-
ingamenn aftur á staðinn, en þá
hefur Jón Sveinsson að mestu
fuUgert húseign sína í Templara-
sundi 3. Þá er þess getið að suð-
urgaflinn, sem húsið Þórshamar
(Templarasund 5) er byggt upp
að, sé úr steinsteypu.
í kjaUara hússins er sölubúð
með skápum, hillum og búðar-
borði; skrifstofa, ketUrými og
tveir gangar. Þar eru allir út-
veggir kalkdregnir, en skilveggir
þiljaðir; allt málað.
Á fyrsta gólfi eru fimm íbúð-
arherbergi, eldhús, tveir gangar
og fjórir fastir skápar. Fjögur
herbergjanna eru með striga og
pappír á veggjum og loftum, allt
málað.
Á öðru gólfi eru fjögur her-
bergi, myndastofa, myrkraklefi
og gangur. Tvö herbergin eru
með striga og pappa á veggjum
og loftum og máfuð. Þá er þess
getið að hluti hússins sé ekki
fullkláraður að innan, en húsið
sé allt fullbyggt að utan.
í aprfl árið 1906 er húsið full-
byggt og búið að endurbyggja
smíðahúsið. Þá er sölubúð lýst
eins og í mati árinu áður, en bú-
ið að gera tvö íbúðarherbergi við
hliðina, þiljuð á einn vegg, kalk-
Templarasund 3 er virðulegt hús í nánd við Alþingi og Dómkirkjuna.
Templarasund 3
x:
.
Inngangurinn. I glerskápunum var stillt út Ijós-
myndum, en í húsinu var „atelier" Magnúsar Ól-
afssonar og sonar hans Ólafs um langt skeið.
dregin á þrjá veggi, með stein-
steypugólfi og timburgólfi ofan á.
Þrír gangar og hitavélarrými er
einnig á jarðhæðinni.
Á öðru gólfi eru tíu fbúðar-
herbergi, eldhús og fjórir
gangar. Þar eru sex kolaofnar.
Á þriðja gólfi eru sex íbúðar-
herbergi, myndastofa, tveir
myrkraklefar, þrjár vinnustofur
og gangar, með átta upphitunar-
ofnum.
Samkvæmt íbúaskrá frá árinu
1910 eru til húsa í Templarar
sundi 3: Jón Sveinsson trésmið-
ur, fæddur 14. nóvember 1881
að Árnesi í Staðarsveit, Elísabet
Árnadóttir kona hans, fædd 9.
júlí 1861 að Eyri við Skutuls-
fjörð, Helga Arnórsdóttir móðir
frúarinnar, fædd 11. september
Bakhliðin.
1834, Kofurd Han-
sen, fæddur 22.
júlí 1869, Jón
Kristinn Jónsson
nuddlæknir, fædd-
ur 14. júh' 1881 að
Breiðabólstað í
Vesturhópi, og
Guðmundur Stef-
ánsson, fæddur 20.
maí 1876 að Kleif-
arstekk í Breið-
dalshreppi.
Á öðru heimili
voru: Magnús Ól-
afsson stýrimaður,
fæddur 10. maí
1862 að Hvoli í
Saurbæjarhreppi,
Guðrún Jónsdóttir
kona hans, fædd
19. september
1862 á Krossanesi
í Eyrarsveit og
börn þeirra: Ásta,
fædd 27. febrúar
1888, Ólafur, fæddur 15. júlí
1889, Karl Georg, fæddur 19.
desember 1892, Pétur Jón Hoff-
mann, fæddur 14. nóvember
1894, Karolína Þorbjörg, fædd
23. september 1898, og Tryggvi,
fæddur 1895.
Á þriðja heimilinu voru: Ásta
Hallgrímsson, fædd 7. júlí 1857 í
„Húsinu" á Eyrarbakka, og börn
hennar: Kristrún Hallgrímsson,
fædd 7. júní 1877, og Tómas
Hallgrímsson, fæddur 9. ágúst
1894. Þá voru einnig á heimilinu
vinnukonurnar Kristín Guð-
mundsdóttir, fædd 14. desember
1860, og Guðríður Sveinsdóttir,
fædd 13. aprfl 1887 á Stokkseyri.
Frú Ásta Hallgrímsson var
ekkja Tómasar Hallgrímssonar
læknis, sem var yfirlæknir á Far-
' *$ t' • **
Þessi arinn er á annarri hæð og er í einum af veit-
ingasölum „Við Tjörnina". Rósabekkurinn á veggn
um hefur skreytt húsið frá því það var byggt.
Frú Ásta Hallgrímsson rak veit-
ingasölu í húsinu í 35 ár.
sóttarhúsinu í Þingholtsstræti og
fyrsti læknakennarinn á íslandi.
Ilún missti mann sinn 1893.
Stuttu síðar flutti hún í Templ-
arasund 3 og rak þar matsölu í
35 ár. Meðal annars seldi hún
þingmönnum og öðrum starfs-
mönnum Alþingis fæði yfir þing-
tímann. Meðfram hafði hún mat-
reiðslukennslu og voru yfirleitt
átta stúlkur í námi hjá henni í
einu. Ásta Hallgrímsson var
mjög vel gefin og fjölhæf kona.
Hún fór til Kaupmannahafnar
aðeins sautján ára gömul og
lærði söng. Hún hafði fagra rödd
og var fyrsta konan á íslandi
sem söng einsöng opinberlega.
Hún söng við útfór Jóns Sigurðs-
sonar forseta og Ingibjargar
konu hans.
Ásta Hallgrímsson lést 29.
mars 1942.
Kristrún, sem bjó með móður
sinni í Templarasundi 3, var
elsta barn Ástu og Tómasar
Hallgrímsson. Hún lærði ung að
spila á píanó og lagði einnig
stund á söngnám. Hún var við
nám í sjö ár í Kaupmannahöfn,
en kom síðan heim og kenndi á
píanó. Einnig var hún undirleik-
ari hjá kórum, einsöngvurum og
erlendum hljómlistarmönnum
sem komu til íslands.
í húsinu var lengi ljósmynda-
stofa Magnúsar Ólafssonar, en
hann tók mikið af merkilegum
myndum úr Reykjavík. Síðar var
sonur hans Ólafur Magnússon
með stofuna, en hann var kon-
unglegur ljósmyndari. Við úti-
dyrnar á húsinu
eru enn sýn-
ingakassar, sem
notaðir voru
fyrir útstillingar
frá ljósmynda-
stofunni.
Ölgerð Egils
Skallagrímsson-
ar var stofnuð í
þessu húsi árið
1913. í húsinu
var lengi
ungbarnavernd
Hjúkrunarfé-
lagsins I.fknar.
Til margra
ára var hár-
greiðslustofa á
annarri hæð
þar sem nú er
veitingarekstur-
inn Við Tjörn-
ina.
Á fyrstu ár-
um hússins var
sælgætisverslun
á fyrstu hæð-
inni, sem frú
Sæmundsen frá
Blönduósi átti.
Frá árinu 1965
hefur verið
gleraugnaversl-
un í plássinu
sem upphaflega var innréttað
fyrir búð. Passamyndataka hefur
verið á jarðhæðinni frá því um
1950. Iljörtur Nielsen skraut-
munaverslun var þarna til húsa í
mörg ár.
Á fyrstu árum aldarinnar var
h'tið útihús á baklóðinni við
Templarasund 3, í námunda við
útikamrana. Þar átti heima mað-
ur að nafni Jón, ættaður austan
úr sveitum. Hann sá sér far-
borða með vatnsburði og sótti
vatnið í brunninn við Aðalstræti.
Hann var sagður einfari og skipti
sér lítið af öðrum.
Stóri gluggiim á efstu hæð,
þar sem ljósmyndastofan var,
hefur verið tekinn af og í staðinn
settir tveir gluggar, sem sam-
svara gluggunum á neðri hæð-
inni. f gegnum tíðina hefur útliti
hússins lítið verið breytt. Að inn-
an hafa ekki verið gerðar neinar
stórfelldar breytingar og þar
sem veitingareksturinn er hefur
herbergjaskipan haldið sér að
mestu, með breiðum skrautlist-
um og rósettum í loftum.
Heimildir frá Þjóðskjalasafni og
Borgarskjalasafni.