Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Page 5
fkgur-®mttrat
Laugardagur 19. október 1996 - V
S Ö G U R
O G
S A G N I R
Furðudýr á fjöllum
og í sjó
Það land sem Krýsar byggðu var
land ævintýra og hefur Skuggi
eftirfarandi lýsingu frá Kol-
skeggi: Hann segir að enn sé
mikið af villtum geitfénaði í íjöll-
um og skógum, einkum í Reykja-
nesijallgarði, og að enn verði
vart villisvína, sem norrænir
menn hafl ekki flutt inn og hann
veit engan uppruna að. Segist
hvergi hafa séð þau á ferðum
sínum utanlands. Þau temjast
ekki og séu skæð viðureignar.
Um það er sagt eitthvað á þessa
leið: „Áður runnu dýr þessi í
stærri og minni ílokkum frá
skógi og í ijörur og svo ill við-
skiptis að víggirða varð nokkra
bæi á Suðurnesjum fyrir ásókn
þeirra. Þau voru eigi stórvaxin,
en höfðu vígtennur eða skögul-
tennur í hvofti og beitu þeim sem
vopni."
Þá segir að Krýsar hafi ferð-
ast með ströndum fram og jafn-
vel yfir höfin í skinnbátum, sem
kallaðir voru „briamar“. Það er
sama og Brjánn, Brjánslækur og
ættarnafnið Briem er þaðan
dregið. Brian (bátur) er algengt
mannsnafn á írlandi.
Skinnbátana gerðu Krýsar af
húðum sædýrs af spendýrakyni,
er þeir nefndu þangkú, hafmær
eða sírenu, en Austmenn nefndu
skrumsl (skrýmsli). Segir Kol-
skeggur mikið af þessum dýrum
hafa verið við landið, en þau séu
horfin á hans dögum og harmar
það mjög.
Dýrið var búið öllum þeim
kostum sem voru mönnum gagn-
legri til flestra hluta en nokkurt
annað dýr sem í sjónum býr.
Dýrið var svo gæft að það kunni
ekki að hræðast og hafðist við á
grunnsævi við sker og flúðir og
lifði eingöngu af þangi og fjöru-
gróðri. Dýr þetta hafði tvenn
húðlög og var hvítt fitulag, betri
en öll önnur feiti, milli húðlag-
anna. Ytri húðin var miklu þykk-
ari og ekki ósvipuð trjáberki, en
seig og óslítandi. Var þessi ytri
húð tekin af dýrinu í heilu lagi
og réð stærð dýrsins bátsstærð-
inni. Var baklína dýrsins höfð
fyrir kjöllínu bátsins, en sporð-
urinn, er látinn var fylgja, gerði
stýrið.
Skuggi lýsti ágæti þessa farar-
tækis í löngu máli, sem hafði
yfirburði fram yfir aðra þekkta
báta eða skip.
Fleiri dýr koma við sögu, því
Krýsar fluttu með sér arabíska
hesta til landsins og úlfalda not-
uðu þeir til að flytja varning á
landi.
Kellingar varðveita
bókmenntir
Faðir Kolskeggs hins vitra var
Úrban Colombos, sem var ráðs-
maður flota Krýsa og sat hann á
Vífilsstöðum. Móðirin hét Sigrún
og var 14 ára gömul ambátt,
þegar hún ól sveininn, en faðir-
inn var þá orðinn aldraður. Sig-
rún var afbragð annarra kvenna
að mannkostum og atgjörvi og
var aldrei við karlmann kennd
eftir að hún ól Kölska. Varð hún
mikil virðingarmanneskja og
stóð fyrir búi í Gömlu Krýsavík.
Þegar aðförin var gerð að
Krýsum, var hún sögð hafa
bjargað öllum handritunum og
þar með norrænni menningar-
arfleifð.
Hún kom þeim í jarðhýsi eitt
um leynigöng, neðanjarðar, en
lét sjálf lífið í reyk og svælu er
bærinn var brenndur af innrás-
armönnum. Fannst hún dauð
löngu síðar í undirganginum. En
þessari miklu dáð hinnar stór-
brotnu konu var þó ekki meira á
lofti haldið en svo, að hún var í
minningum verka sinna kölluð:
„Sigrún kelling“ eða „Krýsa kell-
ing, sú er í svælunni kafnaði",
skrifar Skuggi af mikilli foragt.
Hér má minna á að annar
höfundur lætur kellingu varð-
veita bókmenntalegan dýrgrip í
frægu skáldverki. Það er þegar
móðir Jóns Ilreggviðssonar
dregur blöð úr sjálfri Skáldu upp
úr bosi sínu á Rein.
Hvar Skálda er núna niður-
komin veit enginn og ekki annað
um það sem í henni stóð, en æv-
intýralegar sögur, sem voru
fremur draumsýnir en sagn-
fræði, eða jafnvel skáldskapur.
Enginn spyr um sannfræði
þeirrar sögu, en á sínum tíma
var heimtað að Skuggi legði
fram gömul skinnhandrit og rún-
ir til að sanna sinn skáldskap,
annars væri hann ómerkur.
En Jochum Eggertssyni var
sama. Hann þurfti ekki að sanna
sitt mál fyrir öðrum en sjálfum
sér. Töflur þær og skinnpjötlur,
sem hann segist hafa fróðleik
sinn úr, eru hvergi finnanlegar
og ekki til nema í hans eigin
hugarheimi. Þær eru draumar
sveitapiltsins að vestan um fag-
urt mannlíf í landi þar sem lífs-
baráttan var ljúf og andlega h'fið
nærri fullkomnun.
OÓ tók saman.
Eldborg.
Krýsa og
Herdís
Fleiri sagnir eru til um
landnám Krýsuvíkur og
hvernig örnefnið er til
komið. Hór fer á eftir útgáfa
Brynjúlfs Jónssonar:
Þórir haustmyrkur nam
Selvog og Krýsuvík. Það hefur
verið seint á landnámstíð, því
að íjölbyggt hefur verið orðið
syðra eftir þeirri sögu, að fá-
tækt fólk hafi flakkað í Selvog
bæði utan með sjó og sunnan
yfir Qall. Það þótti Þóri illt og
setti því grindarhlið læst í
Grindaskarð, en annað í
skarð það, sem farið er úr
Grindavík upp á Siglubergs-
háls. Þar af skulu þessi ör-
nefni vera dregin: Grinda-
skarð og Grindavík. Það er
naumast annað en getgáta að
Krýsa og Herdís hafi verið
dætur Þóris haustmyrkurs. Þó
hefur það verið sagt.
Krýsa bjó í Krýsuvík, en
Herdís í Herdi'sarvík. Þær
deildu um landamerki milli
sín. Vildi Krýsa eiga Geitahlíð
alla og væru landamerki í
stóran stein, er stendur í
hrauninu fyrir austan hlíðar-
hornið. Herdís vildi eiga út á
Deildarháls. Hann er nokkuð
vestar en undir miðri Geita-
hh'ð og hefur spúið eldi, því í
honum er gígur ekki alllítill
og úr honum hefur runnið
hraun það, er Klofningur
heitir eða Klofningar. Þar hitt-
ust þær og deildu þar til báð-
ar heittust (höfðu í heiting-
um), og eru dysjar þeirra á
hrygg nokkrum undir hlíðinni
skammt fyrir austan hálsinn.
Neikvætt fiskeldi
Má geta til að Herdís hafi
gengið þangað undan, því
henni veitti miður, þó hvorug
hefði vel. Þangað til hafði ver-
ið veiði mikil í Kleifarvatni í
Krýsuvíkurlandi og tjörnin í
Herdísarvík stararflóð og sil-
ungapollur í miðjunni. Herdís
mælti svo um, að allur silung-
ur í Kleifarvatni skyldi verða
loðsilungur óætur. Þá lagði
Krýsa það á, að tjörnin í Her-
dísarvík skyldi éta sig út og
eyða úr sér störinni og brjóta
bæinn, en allur silungur
skyldi verða að hornsílum.
Það skyldi og fylgja, að tvær
skipshafnir skyldu í henni
drukkna.
Þetta gekk allt eftir. Bær-
inn í Herdísarvík stóð áður
undir Búrkletti, en tjörnin
gróf undan honum grundvöll-
inn, svo hann varð að flytja úr
stað, og einn vetur sem oftar
var tjörnin lögð með ís. Þá
komu sjómenn með skipum
(þau voru tvö) og gengu tjörn-
ina, en ísinn brast og allir
drukknuðu. Og enn er varast
að ganga hana, þó hún sé
lögð. Svo fór um landamerkin
sem Krýsa vildi, og heitir nú
kletturinn Sýslusteinn.
Skammt fyrir austan Kerling-
ar (dys Krýsu og. Herdísar)
eru tveir steinar, sem líka
hafa verið nefndir Sýslustein-
ar, en eru auðsjáanlega hrap-
aðir úr hlíðinni á seinni tím-
um.
þeim viðtökum: „Ungúlf Arnar-
son, fyrsta norræna landnáms-
manninn, eða fyrsta „Danann“,
settu þeir til höfðingja yfir „allan
og einasta" byggða hluta lands-
ins, og gerðu allan veg hans sem
virðulegastan „til þess eins að
þar yrði ekki síðar á leitað með
ránum og hernaði".
En kirkjan og annað erlent
áhrifavald hafði horn í síðu
Krýsa, sem voru sannkristnari er
páfinn í Róm og konungur rán-
kristninnar, Ólafur digri, að áliti
Skugga. Eigi að síður börðust
þeir á móti kristninni á sína and-
legu vísu og gerðu Ásadýrkun allt
til vegs og sóma. Rétt er að reyna
ekki að velta of mikið fyrir sér
hvernig þetta kemur heim og
saman, en í hugarheimi Skugga
er kirkja og kristni ekki endilega
hið sama og létt fer hann með að
gera Jesúm Krist að Krýsa, hvað
sem kenningum guðfræðinnar
líður.
Kristnir heiðingjar
Skuggi segir Krýsa hafa verið
nokkurs konar kristna heiðingja,
örlagatrúar, frelsisunnandi
stjórnleysingja, óháða ríki og
kirkju. Þeir urðu svo voldugir
undir stjórn Kolskeggs, eða
Kölska, og yfirburðir þeirra svo
miklir að víkingahöfðingja- og
kirkjuveldið nötraði og riðaði.
Þar kom að ráðist var að
Krýsum, en þeir voru þá orðnir
ríki í ríkinu. Höfðingjaveldið
safnaði saman tvö þúsund
manna hði og fór að Krýsum. Ion
Kjarvalsson, sem orðinn var 200
ára gamall, var brenndur inni á
Vífilsstöðum og Kolskeggur var
ofurhði borinn í Krýsavík, þar
sem hann varðist með vösku Uði.
Hann slapp þó undan á Brimfaxa
sínum, arabískum gæðingi, og
náðist síðan fyrir sunnan Hafn-
arfjörð, eftir að hafa sloppið
gegnum mörg umsátur. Þar fót-
brotnaði hesturinn í hrauni og
þar var Kolskeggur veginn eftir
vasklega framgöngu. Lík hans
var smánað og steglt á stengur.
Þar lét ísleifur biskup Gissurar-
Gatan gegnum hraunið skammt frá
Krýsuvík er mörkuð af hestahóf-
um. Þarna hefur verið fjölfarin leið
á fyrri öldum.
son síðar reisa kapeUu og er
hraunið síðan við hana kennt og
heitir Kapelluhraun.
Ekki var guðshúsið reist
Kölska til heiðurs, heldur vegna
þess að þarna var felldur heið-
ingi, galdraskratti og holdi
klæddur djöfuU. Áttu vegfarend-
ur að biðjast þarna fyrir.
Ekki voru aUir Krýsar drepnir,
en þeir sem Ufðu voru ofsóttir og
iUa með þá farið. Samt kváðu
hinir bestu menn á íslandi vera
af þeim komnir.
Eftir fall Krýsa varð alger
kyrrstaða í hinu forna menning-
arstarfi, segir Skuggi, og lágu öU
ritstörf niðri þar tU loks að Ari
fróði var orðinn svo ritfær, sex-
tugur að aldri, að biskupar
gerðu tilraun með að láta hann
gera bók, og þykir höfundi Brís-
ingamens Freyju og fleiri ævin-
týralegra athugana lítið til koma.
Rústir kapellunnar í Kapelluhrauni fyrir sunnan Hafnarfjörð.
Gamla Krýsuvík, þar sem Krýsa bjó samkvæmt þjóðtrúnni, en var höfuð-
ból Krýsa samkvæmt kenningum Skugga.