Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Síða 1
)
Húsavík
Grímsey
Knörrinn vinnur
enn til verðlauna
Verðlaunagripurinn, sem
þeir bræður Árni og
Hörður Sigurbjarnarsynir
veittu nýverið viðtöku frá
Ferðamálaráði, var varla kom-
inn í hús, þegar þeim var
tilkynnt um að enn séu verð-
laun á leiðinni.
Nú eru það samtök breskra
blaðamanna sem eingöngu
fjalla um nýjungar á sviði
ferðamála sem hafa valið
hvalaskoðunarferðir með
Knerrinum á Húsavík það næst-
besta sem í boði er í ferðamál-
um í heiminum í dag.
Verðlaun sem þessi hafa ver-
ið veitt á hverju ári síðan 1978
og nefnast þau „Silver Otter
Award" og að þessu sinni fara
þau til Kenya og Masai þjóð-
flokksins fyrir griðastað villtra
dýra sem nefnist Ambolesi og
hvalaskoðunarferðir með
Knerrinum eru í öðru sæti. Það
sem á eftir kemur er t.d. skög-
ræktaráætlun í Abu Dabi,
verndun villtra dýra í Costa
Rica, nýtt gufuskipasafn í Suð-
urríkjum Bandaríkjanna og
stórhátíð á Nýfundnalandi, þar
sem ferðar John Cabott frá
1497 er minnst.
Til að öðlast tilnefningu til
verðlauna sem þessara er
þrennt sem verður að koma til:
Verkefnið verður að miðast að
því að fjölga ferðamönnum á
Árni Sigurbjarnarson og kona
hans, Line Werner, eru að vonum
ánægð með viðtökurnar sem
Knörrinn hefur fengið. Mynd: gkj
svæðinu, vera til hagsbóta fyrir
samfélagið og höfða til náttúru-
verndarsjónarmiða.
Að sögn Debru Taylor, mark-
aðsstjóra hjá Artic Experience í
Bretlandi, eru þessi samtök
„ferðamálablaðamanna" í Bret-
Iandi þekkt samtök og auk þess
að veita verðlaun sem þessi,
gefa samtökin út árbók, þar
sem nýjungar í ferðamálum í
heiminum og verðlaunahafar
ársins fá sérstaka umfjöllun.
Verðlaunin verða veitt þann
11. nóvember næstkomandi á
World Travel Market í Bret-
landi, þar sem viðstaddir verða
allir helstu lykilmenn úr ferða-
málabransanum auk fulltrúa
erlendra sendiráða. GKJ
Kjalarnes
Leitað eftir sameiningu
Bágborinn fjárhagsstaða
Kjalarneshrepps þrýstir
á samvinnu og hugsan-
lega sameiningu við ná-
grannasveitarfélögin. Rætt
við Mosfellsbæ, Reykjavíkur-
borg og Kjós.
Sveitarstjórn Kjalarnes-
hrepps er að hefja viðræður við
nágrannasveitarfélögin um
aukið samstarf vegna bágrar
fjárhagsstöðu hreppsins. Fyrsti
fundurinn var í gær við bæjar-
stjórn Mosfellsbæjar en fyrir-
hugað er að ræða þessi mál
bæði við Reykjavíkurborg og
Kjós.
Jónas Vigfússon sveitarstjóri
Kjalarneshrepps segir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar
um samvinnu og þaðan af síður
um hugsanlega sameiningu við
eitthvert af þessum þremur
sveitarfélögum. Hann segir að
Reykjavíkurborg hefði sýnt
áhuga á samstarfi við Kjalarnes
þegar hreppurinn vildi ná út
fjármagni úr sorpsamningi um
urðun sorps á Álfsnesi og það
hefði aðeins kveikt í mönnum
hvort ástæða væri til að skoða
þessi mál eitthvað frekar.
Sveitarstjórinn segist að-
spurður vel geta trúað því að
landrýmið á Kjalarnesi sé með-
al þeirra atriða sem nágranna-
Jónas Vigfússon
sveitarstjóri Kjalarneshrepp
Erfitt fyrir sveitar-
félag eins og Kjalar-
nes að keppa við
þjónustu sem veitt
er í stóru nágranna-
sveitarfélögunum.
sveitarfélögin munu hugsanlega
horfa einna mest í þegar kemur
að viðræðum þeirra við sveitar-
stjórnina um aukna samvinnu
eða jafnvel sameiningu. í
tengslum við það líta
heimamenn einnig að-
eins lengra fram í txm-
ann og m.a. á fyrir-
hugaða staðsetmngu
svokallaðs Sundaveg-
ar, þ.e. vegur yfir
sundin og til Álfsness.
Þar fyrir utan mun
aðkoma að Hval-
íjarðagöngunum
verða um Kjalarnes.
Að öðru leyti sagðist
Jónas ekki geta tjáð sig mikið
um hugsanlega þróun þessa
máls vegna þess að viðræður
væru rétt að hefjast, né heldur
hver fjárhagsstaða hreppsins
væri. „Við erum það nálægt
þessu svæði sem veitir alla góða
þjónustu og því er svo erfitt að
keppa við það,“ segir sveitar-
stjórinn.
Hann segir að hugmyndir
um frekari samvinnu sveitarfé-
laga á milli séu í gangi um land
allt og þá sérstaklega í því ljósi
að það er alltaf að herða að
með rekstur smærri sveitarfé-
laga á sama tíma og kröfur eru
um aukna þjónustu. Á sama
tíma fer mikill tími sveitar-
stjórnarmanna í það að skoða
leiðir hvernig hægt sé að halda
öllum kostnaði niðri.
-grh
fið í landinu
GSM
hvað?
I mál við
Alþýðu-
blaðið
SÍMIÁ RITSTJÓRN
4616000